Myrkur mánudagur
7.10.2008 | 11:26
Mikið gjörninga veður hefur gengið yfir Ísland undanfarna daga og náði hámarki í gær á þessum myrka mánudegi. Endapunkturinn var snöfurmannleg neyðarlagasetning á Alþingi seint í gærkveldi.
Þar hristi ríkisstjórnin af sér slyðruorðið og gekk loks ákveðin og fumlaust til verka. Við verðum að trúa því að stjórninni takist að fylgja þessu eftir af krafti á viðeigandi hátt og til betri vegar.
Segja má að við séum þessa stundina stödd í auga fellibylsins, dottið hefur á dúnalogn en það mun hvessa aftur næstu daga áður en fer að kyrrast aftur.
Fjármálaeftirlitinu hefur verið falið nánast alræðisvald yfir fjármálastofnunum. Fyrstu skrefin í endurreisninni voru stigin með morgninum þegar Fjármálaeftirlitið tók yfir stjórn Landsbankans. Ég hef fulla trú á að staðið verði við yfirlýsingar um að hagsmunir viðskiptavina bankans verði tryggðir. Seðlabankinn hefur fryst gengi krónunnar og hækkað það verulega.
Landsbankinn er alfarið minn viðskiptabanki því er nokkur órói í mér, annað væri óeðlilegt. En við verðum að trúa því að það besta verði gert úr hlutunum.
Ekki verður því á móti mælt að frjálshyggjan á Íslandi hefur sett verulega ofan svo ekki sé dýpra í árina tekið. Hannes Hólmsteinn holdgerfingur hennar reynir þó að berja í brestina í Moggaviðtali. Við þurfum að gera greinarmun á kapítalismanum og kapítalistunum sem eru auðvitað mistækir. Segir Hannes.
Athyglisverð setning, ég sé fyrir mér einhvern kommúnista mógúl nota sömu rök: Við þurfum að gera greinarmun á kommúnismanum og kommúnistum sem eru auðvitað mistækir. Ekki þarf að fara orðum um hvað Hannes hefði um slíka þvælu að segja.
Það þarf enginn að fara í grafgötur með það að aðgerðir gærdagsins eru sársaukafullar fyrir Sjálfstæðismenn , þeir ganga gegn grundvallar hugmyndafræði sinni, nauðugir að vísu, en samt. Ég tek ofan fyrir þeim fyrir það.
Svo hefur salti verið stráð í opna und þeirra að þurfa að þiggja myndarlegt lán frá Rússum. Þar reynast þeir okkur betri en vinir okkar í vestri sem vildu okkur ekki með í gjaldeyrisskiptasamningum við Norðurlöndin.
Sjálfstæðismenn geta sjálfum sér um kennt hvernig komið er. Við einkavæðingu bankana á sínum tíma og stofnun hins nýja fjármálaumhverfis urðu þeim á grundvallarmistök. Þeir trúðu því betur en nýju neti að engin ástæða væri til að lög og lagarammar á Íslandi um fjármálastofnanir væru jafn ítarleg og gengju jafn langt og sambærileg lög í nágrannalöndunum.
Engin hætta var talin á að nýríkir Nonnar Íslands misstu fótanna á hálu svelli auðmagnsins. Ekkert mátti hindra eða tefja vöxt nýjasta ávöxt íslensks hugvits og áræðni. Í engu var sinnt viðvörunum og ábendingum þeirra sem vildu fara hægar og halda sig á jörðinni.
Nú súpum við seyðið af þessu. Lögin sem sett voru í gær ganga lengra en sambærileg ákvæði annarra landa en þau fylla í þá eyðu sem áður voru í lögunum. Ef þessi ákvæði hefðu verið sett í lögin strax er óvíst að krísa þessi, sem nú er uppi, hefði komið upp þrátt fyrir ástandið á heimsmarkaðnum.
Með þetta hangandi yfir sér frá upphafi hefði það án efa dregið úr offorsi nýfrjálsu bankana í fjárfestingum og nýríku Nonnarnir farið hægar í sakirnar og verið til muna jarðbundnari.
Nú er hluti bankana að komast aftur í eigu ríkisins, Glitnir um síðustu helgi og Landsbankinn er næstu daga að verða aftur banki allra landsmanna. Vonandi lærum við eitthvað af þessu. Þetta frjálshyggjunámskeið verður þjóðinni ansi dýrt.
Hvað ætli verði langt þar til að frjálshyggjuofsatrúar Hannesarnir í Sjálfstæðisflokknum fari að tala um að allt það, sem ríkið hefur og mun leysa til sín næstu daga, verði aftur gefið í hendur einstaklinga, því þeim farnist svo miklu betur í svona rekstri en ríkið.
Það má alltaf reyna aftur, ekki fullreynt fyrr en í þriðja, ekki satt?
Gengi krónu fest tímabundið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:52 | Facebook
Athugasemdir
Ég skil ekki afhverju var ekki hægt að fara út í þessar aðgerðir strax með gengið á krónunni, afhverju var beðið með það þangað til að búið var að yfirtaka glitnir og þessum nýju lögum þvingað gegnum þingið. Þetta er líkt því að smíða hús og byrja á toppnum á húsinu og vinna sig niður.
Hallgrímur Þór Axelsson. (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 14:35
Hannes Hólmsteinn er fínn.
Annars þakka ég þér góðan pistil Axel.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 7.10.2008 kl. 16:51
Hallgrímur, já má hugsa sér það.
Heimir, takk fyrir það.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.10.2008 kl. 17:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.