Svona á að gera þetta, en ekki .......

Þetta er gott framtak hjá Ölgerðinni, þeir eiga hrós skilið. Olífélögin brugðust hratt við með ölgerðinlækkun, takk fyrir það.

Þeir eru aumkunarverðir sem reyna að maka krókinn á ástandinu og sumir fara ekki leynt með það.

gallabuxurÞannig aðila eigum við að sniðganga og beina viðskiptum okkar annað.

Hún er spaugileg auglýsingin frá Vinnufatabúðinni sem hefur síðustu daga auglýst að allar buxur væru á „gamla genginu“ til að laða til sín viðskipti.

Þessi auglýsing var spiluð áfram í dag.  Í græðgisviðleitni sinni höfðu þeir ekki áttað sig á því að „gamla gengið“  var orðið 30% dýrara, miðað við gengi Seðlabankans í dag.


mbl.is Ölgerðin lækkar verð á innfluttum vörum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það verður að segjast að þetta er sérstök tilkynning frá fyrirtæki sem er nú þegar búið að hækka verð 14 sinnum á árinu án þess að tilkynna okkur neytendum um það ...

neytandi (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 20:40

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hvað sem öðru líður er þetta rétti andinn við þær aðstæður sem uppi eru.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.10.2008 kl. 21:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband