Sjallar ætla í EBE

Í viðtali við Fréttablaðið segist Geir H. Haarde „forsætisráðherra“  ekki óttast klofning Sjálfstæðisflokksins vegna Evrópumála á landsfundinum í janúar, samkvæmt frétt á Vísi.is. 

Geir segir m.a.:   „Verði menn ekki sáttir við niðurstöðu Sjálfstæðisflokksins á landsfundi þá eigi þeir ekki aðra kosti en að ganga til liðs við Vinstri græna“.

Þessi fullyrðing Geirs H. Haarde er mjög athyglisverð. Forysta flokksins er sem sagt búin að ákveða, að landsfundur Sjálfstæðisflokksins muni samþykkja að æskja eftir inngöngu í Evrópusambandið.

Þeir sem ekki vilja það geti gengið til liðs við VG, en það gera góðir Sjallar að sjálfsögðu ekki, segir Geir.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.