Klofnar Sjálfstæðisflokkurinn í tvo eða fleiri parta?

Anti-capitalism_colorYfirgnæfandi líkur eru á að Evrópumálin kljúfi Sjálfstæðisflokkinn, spurningin sé aðeins hvenær, hvernig og  í hve marga parta.

Leiða má að því líkur að þeir sem hvað helst aðhyllast aðild að Evrópusambandinu í Sjálfstæðisflokknum séu kratar sem af einhverjum óútskýranlegum ástæðum hafa fundið sér skjól þar frekar en með öðrum krötum.

Sá klofningur sem fyrirsjáan- legur og óumflýjanlegur virðist í Sjálfstæðisflokknum út af Evrópumálunum kann að skila þessu fólki til síns heima.

Þó kann svo að fara að þeir sitji áfram og myndi kjarna hins nýja Sjálfstæðisflokks, sem yrði þá hægrisinnaður krataflokkur, en hægri armur flokksins, frjálshyggjan og íhaldið kljúfi sig frá og myndi  nýjan Íhaldsflokk.

Sá Íhaldsflokkur, og hans hugsjónir gætu þá sannarlega ekki falið sig undir falska flagginu „Stétt með stétt“ eins og þeir hafa gert í Sjálfstæðisflokknum um áratuga skeið.

Fari svo væri upp komið nýtt og áhugavert landslag í Íslenskri pólitík.


mbl.is Taugastríð Geirs og Ingibjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband