Heigulsháttur utanríkismálanefndar

árni páll árnasonÁrni Páll Árnason  varaformaður utanríkismálanefndar  gerir sig barnalegan í meira lagi þegar hann segir að slit á stórmálasambandi  við Ísrael óskynsamleg og yrði til þess að við gætum ekki komið okkar skilaboðum á framfæri við þá. Hvaða helvítis bull og vitleysa er þetta í manninum? Þarna talar Sjálfstæðisflokkurinn sem óttast að missa kyssiblett sinn á rassi USA ef Ísrael er styggt.

Skammastu þín Árni og allir þeir sem hann mælir fyrir.

Slitum við ekki stjórnmálasambandi við Breta í síðasta þorskastríðinu? Voru það mistök? Gátum við ekki eftir það komið okkar sjónarmiðum á framfæri við Breta? Jú það var gert í gegnum Norska sendiráðið í London.

En skýrustu skilaboðin,  skilaboð sem ekki voru misskilin, sendum við Bretum og umheiminum einmitt þegar við slitum stjórnmálasambandi við þá, skýrari og harðari gerast ekki skilaboð í milliríkjaviðskiptum.

B-52bombingAf hverju viljum við ekki senda Ísraelum okkar skýrustu og hörðustu skilaboð, erum við samþykk aðgerðum þeirra?  Styðjum við sprengjukast  Ísraela á börn og aðra borgara? Leggjum við blessun okkar yfir þessi morð?

Hvað þarf til að Íslendingar hafni svona framferði,  jú það er augljóst, það sem þarf til er að morðin séu Bandaríkjunum ekki þóknanleg, þá vaknar samviska Sjálfstæðisflokksins.


mbl.is Deilt um stjórnmálasamband
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Nikulásson

Psst! Árni er í Samfylkingunni. Annars sammála þér.

Haukur Nikulásson, 5.1.2009 kl. 17:49

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir innlitið Haukur og gleðilegt árið.

Jú mér er kunnugt um pólitískt heimilisfang Árna, en mér hefur fundist eins og þeim sem þar eru skráðir til heimils hafi ekki verið með það á hreinu sjálfir eftir að þessi ólukkaðs stjórn var mynduð.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.1.2009 kl. 18:01

3 identicon

Við Íslendingar erum alþjóðlegir markleysingjar eftir að útrásarvíkingarnir settu okkur á hausinn.  Höfum bara hægt um okkur og verum ekki með neina mikilmennskustæla.

Hér eru smá fróðleiksmolar:

Það er opinber  stefnuskrá Hamas að gereyða Ísraelsríki.

Það er opinber stefna hins pólitíska íslams að drepa alla Ekki-Múslíma (Kafíra) sem ekki játast Íslam  (sjá Kóran 008:039).

Hamas er hernaðararmur  PLO  og Fatah er hinn pólitíski armur. 

Hernaðararmurinn var kosinn af íbúum Gaza og þeir eru því samsekir og ábyrgir fyrir gerðum Hamas.

Sjá illvirkjaskrá PLO  á neðanskráðri slóð.

http://blogg.visir.is/hermdarverk/

Þar er sagt frá morðum PLO á 40,000 kristnum mönnum í Líbanon 1976.  PLO er enginn engill.

 

Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 18:20

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Einar, dropinn holar steininn. Það færi nú um þá í Ísrael ef heimurinn, sem hefur fætt þá og nært, snéri við þeim bakinu.

Mér er nær að halda að það sé nóg í þínum augum Skúli að menn séu arabar þá sé þeir sekir, ef ekki um þetta, þá hitt. Álíka gáfulegt og telja að það sé nóg að heita Skúli þá sé viðkomandi asni!

Það er auðvitað misjafn sauður hjá aröbum eins og öðrum. En ekki er hægt að dæma heildina eftir örfáum. Ekki erum við sáttir að öll Íslenska þjóðin sé dæmd af gjörðum 20 einstaklinga, ekki satt?

Þú fullyrðir þarna ýmislegt þó þú hljótir að vita betur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.1.2009 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband