Ekki til siðs

„Það er ekki til siðs að ríkisstjórn Íslands álykti um svona mál“. Segir Geir Haarde, hana nú þá vitum við það. Svo læða menn útúr sér einhverri málamynda fordæmingu sem einstaklingar.

En það var vel til siðs að lýsa yfir fullum stuðningi við innrás Bandaríkjanna o.fl. í Írak á sínum tíma. Þótt stjórnarskráin segi að Ísland muni aldrei fara með ófriði á hendur öðrum þjóðum.

Enda ólíku saman að jafna, annarsvegar að bakka upp Bandaríkin í „miklu þarfaverki“ og hins vegar nú að ganga gegn vilja þeirra um að Ísrael megi fara sínu fram án afskipta.

Og eins og alþjóð veit göngum við grandvarir Íslendingar ekki gegn vilja vina okkar í vestri á hverju sem gengur, við bara gerum það ekki, það er ekki til siðs.

Skammist ykkar, ef þið kunnið það!

 
mbl.is Fordæma Hamas og Ísraelsher
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband