Finnair góðan daginn!

finnairEr  McCarthy  ekki mættur og kominn í flugreksturinn! 

Ein hringing til flugfélagsins frá „vini“ og þú verður skilin eftir.

Takk fyrir að fljúga (ekki) með Finnair.

Góða ferð!

.


mbl.is Neita að fljúga með svínaflensusmitaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég veit allaveganna að ef ég væri á leiðinni til Finlands og Finnair væri möguleiki þá myndi ég pottþétt fara með þeim. Farð þú bara með einhverju öðru flugfélagi og skelltu þér á eitt stykki svínaflensu.....

Óli Tómas (IP-tala skráð) 21.7.2009 kl. 01:12

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Já og ég hringi í Finnair og lauma því að þeim að Óli Tómas sé svolítið svínslegur og Óli Tómas fer hvergi, pottþétt. A.m.k. ekki með þessu "nasista" flugfélagi.

Eitt stykki "svínaflensa" er rétt eins og annað stykki "bara" flensa. Fjölmiðlar hafa gert úlfalda úr mýflugu, að vanda.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 21.7.2009 kl. 01:37

3 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Þetta þykir mér furðuleg hugmyndafræði.

Svínaflensa, er bara flensa. Magnið af fólki sem hefur dáið af völdum svínaflensu er sama magn og deyr af venjulegri flensu.

Ef þú horfir á þetta svona Óli Tómas, viltu þá ekki bara að fólki verði bara almennt bannað að fljúga ef það er með ósköp venjulegt kvef?

Því við vitum jú öll, að ósköp venjulegt kvef getur þróast útí banvæna lungnabólgu ef sá sem af því sýkist hefur þá líkamlegu eiginleika sem þarfnast til að svo verði.

Góð hugmynd það. Við skulum bara koma paranojunni í þjóðfélagi, í heiminum öllum bara, svo hátt, að hver maður þarf að skila in heilbrigðisvottorði í hvert skipti sem hann vogar sér útúr húsi. Bara til að ganga úr skugga um það að viðkomandi aðili sé ekki smitberi af neinsskonar óbjóði. 

Svona eins og var gert við eyðnisjúklinga hér í denn. Góð fokkings hugmynd.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 21.7.2009 kl. 01:44

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Svo verður doktor við landganginn og rekur farseðilinn ofaní kok á þér og segir - segðu AAAAAaaaaa! Svo er góði doktorinn kannski smitberi. Eða sá sem fór höndum um flugvélamatinn, þetta er vonlaust dæmi.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 21.7.2009 kl. 02:05

5 Smámynd: brahim

Jamm og jæja. Hvernig ætlar þeir hjá Finnair að finna það út að einhver þeirra flugfarþega sé með H1N1 flensuna ? Búast þeir virkilega við því að fólk upplýsi þá um það ! Get real plp. Eða þarf fólk að sýna heilbrigðisvottorði við skráningu? Hræddur um að það sé nú engin trygging fyrir því að fólk hafi ekki flensuna...Tryggir aðeins að fólk var ekki með hana daginn sem það fór til læknis.

brahim, 21.7.2009 kl. 02:35

6 identicon

Ég hef þá tilhneigingu að vera svolítið paranoid og ferðast helst ekki neitt undir þessum kringumstæðum. En það er auðvitað út í hött! Nú þegar við vitum að flensan lætur ekkert stoppa sig þá kemur hún bara til mín og ég missi ofan á allt af skemmtilegu ferðalagi. Hugmyndin hjá Finnair er "bull". Ættu þau þá ekki að hætta að fljuga og láta stjórnvöldin loka landamærin? Good luck!

Sigrun Rohleder (IP-tala skráð) 22.7.2009 kl. 18:52

7 identicon

Þessar aðgerðir Finnair má sjálfsagt gagnrýna, en það er hins vegar kolrangt að þessi flensa sé nákvæmlega jafn hættuleg og hin venjulega árstíðabundna flensa sem við öll þekkjum.

Munurinn er sá að hér er um nýja flensu að ræða, sem gerir það annars vegar að verkum að menn vita ekki hvernig hún hagar sér. Hins vegar þýðir það að fleiri smitast af þessari flensu en annarri, þar sem hún er og fólk því almennt ekki með mótefni gegn henni í líkamanum. 

Það má vera að sama prósenta smitaðra drepist úr þessari flensu og annarri (það hef ég þó hvergi séð staðfest) en fleiri munu hins vegar fá þessa flensu. Þó hlutfallið verði það sama munu því væntanlega fleiri deyja. 

Það er augljóslega engin ástæða til að fá taugaáfall yfir þessum faraldri. Það er hins vegar litlu gáfulegra að gera lítið úr eðlilegum og hóflegum varúðarráðstöfunum sem hver og einn getur gert fyrir sig. Það er bæði eðlilegt og æskilegt að menn reyni að forðast smit af þessari flensu eins og þeir geta. 

Arndís (IP-tala skráð) 27.7.2009 kl. 16:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband