Hver er tilgangurinn?

 Þetta er ekki rétta aðferðin þótt einhverjum sé í nöp við Davíð eða einhverja aðra.

Hefur einhverju réttlæti verið fullnægt eða náð fram með þessari aðgerð?

Þótt mér sé pólitískt í nöp við D.O. þá fróar þetta mér þetta ekki á nokkurn hátt. 


mbl.is Egg og níð á hús Davíðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst nú bara fínt að einhver láti þessa drullusokka vita að þeir eru ekki lengur velkomnir á Íslandi. Réttast væri að senda þetta skíta pakk sem setti okkur á hausinn út á haf á fleka.

Óli (IP-tala skráð) 20.7.2009 kl. 14:29

2 identicon

Hver er rétta aðferðin?

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 20.7.2009 kl. 16:11

3 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Sammála þér í þessu.

Eva: Hver er rétta aðferðin?

Það er nú erfitt að segja. Auðveldar væri að segja þér, að  skemma eigur annarra á nokkurn hátt er ekki rétta aðferðin. Þá er frekar verið að gefa honum skotfæri í stað þess að slá byssuna úr höndum hans.

Auk þess sem ég held að það þurfi ekkert að vera að níðast á manninum, þar sem hann er full upptekinn við það að eyðileggja eigið orðspor með öllu þessu kjaftæði í honum. Það þarf ekkert að aðstoða hann við það.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 20.7.2009 kl. 17:09

4 identicon

Hvað meinaru með ekki velkominn á Íslandi

Ég er ekki frá því að Davíð Oddson hafi reynt, þótt menn deila um hvort hann hafi gert vel, að bjarga Íslandi frá þessum hrakföllum sem dynja á núna.

Davíð Oddson er hættur sem seðlabankastjóri svo af hverju ætti hann ekki að vera velkominn hér á landi?

Fáránlegt

Fannar (IP-tala skráð) 20.7.2009 kl. 17:23

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það eru lög í landinu, eftir þeim vinna dómstólar. Ef okkur finnst hvorutveggja hafa brugðist þá þarf að bæta lögin og kerfið. Lausnin er ekki að almenningur taki málin í sínar hendur og dæmi eða auki við dóma kerfisins með þessum hætti. Það kallar á stjórnleysi. Engin dómur er þannig vaxin að einhver eða einhverjir séu ekki sáttir. Eiga þeir þá að grípa til "viðeigandi" ráðstafana?

Eva ef ég er ekki sáttur við hvernig þú tekur á þessum málum á ég þá persónulega að grípa til beinna "aðgerða" gegn þér, sem ég tel hæfa tilefninu? Þú færir svo út í gagnaðgerðir og ég bætti enn um betur og þú ...... Ný Sturlungaöld væri upp runnin.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 20.7.2009 kl. 23:31

6 identicon

Axel, öll helstu réttindamál sögunnar hafa unnist með beinum aðgerðum, með því að rísa gegn stjórnvöldum og dómstólum sem vinna ekki að hagsmunum fjöldans. Konur hafa kosningarétt í dag vegna þess að bresku suffragetturnar brenndu kirkjur og rústuðu heilu borgarhlutnum en ekki af því að konur hafi hógværlega farið fram á mannréttindi.

Það er stór munur á því að almenningur rísi gegn valdhöfum og því að fólk ráðist á jafningja sína (eða einhvern minni máttar) vegna persónulegra deilna.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 04:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband