Var óþverrinn ekki dæmdur í...

panam

...líftíðar fangelsi? 

Var það þá allt í plati að hann færi ekki út úr fangelsinu fyrr en dauður?

Þó maðurinn sé með krabbamein er það misnotkun á samúð að sýna hana þessum manni.

.

.


mbl.is Mál Megrahi vekur reiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

jámm.  maður hefði haldið að lífstíðarfangelsi væri lífstíðarfangelsi og það væri sjúkradeild í þessu fangelsi.

hann eyðir þá síðasta ævikvöldinu í  að lofa guð og gorta sig við vini það sem hann gerði.  hef ekki trú á öðru

jonas (IP-tala skráð) 14.8.2009 kl. 00:37

2 Smámynd: el-Toro

ætli hann lofi ekki allah frekar ;)

hinsvegar eru þessi réttarhöld sem hann var dæmdur í mjög vafasöm.  það er margt grunsamlegt bakvið tjöldin í þessu máli öllu saman.  ég mæli með því ef þú hefur áhuga á að kynna þér þetta mál, þá er góð heimildarmynd sem heitir "maltese double cross" eitthvað sem fær þig til að hugsa orðið lockerbie upp á nýtt.  þú getur nálgast þessa mynd á thepiratebay.org eða bara googlað hana.  örugglega hægt að horfa á hana einhverstaðar á netinu líka.

el-Toro, 14.8.2009 kl. 01:12

3 Smámynd: Þorri Almennings Forni Loftski

Þessi maður er saklaus. Eru ekki tíu ár inni nóg fyrir það vera arabi?

Þorri Almennings Forni Loftski, 14.8.2009 kl. 04:20

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þorri, er þetta staðall hjá þér að vera á móti eða býrð þú yfir einhverjum upplýsingum sem sanna sakleysi mannsins? Það er ábyrgðarhluti að leyna slíku, eða er það enn ein samsæriskenningin?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.8.2009 kl. 12:34

5 Smámynd: Þorri Almennings Forni Loftski

Axel: Ég fylgdist með þessu mál á sínum tíma þegar ég bjó í Bretlandi. Sönnunargögnin eru vægast sagt vafasöm. Réttarhöldin og rannsók málsins pólitísk. Baksamningar voru gerðir við Libýu og Gaddafi fékk inngöngu í alþjóðsamfélgið og var tekinn af terrorlistanum í staðinn. Fékk líka pening.

Böndin berast að Írönum.

Annars vísa ég til athugasemdar 2 ef þú vilt kynna þér málin áður en þú fullyrðir.

Ég er með saklausum og þolendum ofbeldis og óréttlæti. En oft á móti yfirvöldum og þjóðfélagi sem byggir á óréttlæti.

Þorri Almennings Forni Loftski, 14.8.2009 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband