"Go home yankee go home"
31.8.2009 | 13:31
Þetta er sama vandamálið og hjá kommunum í gamla Sovét. Verksmiðjum gekk alltaf illa að framkvæma glæstar 5 ára áætlanir flokksins. Alltaf var gripið til sama úrræðisins til lausnar, verksmiðjustjórinn var sleginn af og nýr skipaður, nú skyldi tekið á því. En niðurstaðan var ætíð sú sama, því það var kerfið, stefnan, sem var gölluð ekki framkvæmd hennar sem slík, því fór sem fór.
Bandaríkjamenn hafa alltaf átt á brattan að sækja þegar frelsisástin grípur þá fyrir hönd annarra og þeir leggjast í víking á fjarlægum slóðum.
Ástæðan fyrir basli þeirra hefur sjaldnast verið hernaðarlegs eðlis. Hún er fyrst og fremst sú að Bandaríkjamönnum er gersamlega fyrirmunað að setja sig í spor heimamanna og hugsunarhátt þeirra. Þeir hugsa allt út frá eigin rassgati og eins þröngt og kostur er.
Talibanar höfðu á valdatíð sinni nær alveg útrýmt valmúaræktun í Afganistan. Eftir innrás Bandaríkjanna hófst ræktunin aftur til fyrri vegs og virðingar með svo skjótum hætti að undrun sætti.
Nú dafnar eiturlyfjaútflutningurinn þaðan sem aldrei fyrr og eitrið sprautast í æðar barnanna okkar hér á vesturlöndum. Þökk sé hinni Bandarísku frelsisást.
Besta framlag Bandaríkjamanna til friðar í heiminum væri að halda sig heima.
Breyta verður um stefnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 13:34 | Facebook
Athugasemdir
Er bröltið í Afganistan ekki fyrst og fremst eitthvað sem hefur að gera með hergagnaiðnaðinn að gera?
Jens Guð, 31.8.2009 kl. 22:08
Það geri ég ráð fyrir Jens, þeir hafa aldrei útbreitt neitt nema hel og hörmungar.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 31.8.2009 kl. 22:45
Afganistan og það svæði er eins og ísland var í kaldastríðinu; hernaðarlega mikilvægt fyrir komandi heimsskipan!
Kalikles.
Kalikles, 1.9.2009 kl. 13:03
Kalikles; auðvitað eru það efnahags- og hernaðarlegir hagsmunir USA fyrst og fremst sem ráða för þótt það sé fært í búning frelsisástar og umhyggju fyrir fólkinu sem löndin byggja.
Þeim var skítsama um fólkið í Írak meðan Saddam var þeim hliðhollur og þeir mokuðu í hann vopnum, sem hann notaði ekki hvað síst gegn eigin þjóð auk þess að herja á Íran. En þegar Saddi snéri við þeim bakinu, þá var allt í einu gríðarleg þörf á að "frelsa" fólkið og koma á lýðræði og "umbótum".
Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.9.2009 kl. 13:29
Getur Kaninn ekki lært neitt. Öll utanríkisstefnan frá seinni heisstyrjöld hefur misheppnast, öll stríð hafaf tapast.
Finnur Bárðarson, 1.9.2009 kl. 14:54
Finnur; þeim gengur illa að læra af reynslunni og kannski ekki nema von þegar sértrúarsöfnuðir, eins og Sjálfstæðisflokkurinn, vítt og breitt um heiminn lofa þá og tilbiðja og gleypa gagnrýnislaust í sig allt sem frá þeim kemur.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.9.2009 kl. 15:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.