Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Eiga menn að trúa því að hraunavinir láti segjast og pakki saman þegar Hæstiréttur dæmir gegn þeim?
22.10.2013 | 16:58
Það er afskaplega ótrúverðugt að hraunavinir láti segjast og hætti þessum fíflalátum þegar Hæstiréttur hafnar kröfum þeirra, eins og þeir láta í veðri vaka. Þeir vilja aðeins bíða dóms Hæstaréttar til að kaupa tíma, í þeirri veiku von að tíminn vinni með þeim, sem hann gerir ekki.
Ætli Hraunavinir séu tilbúnir, allir sem einn, að gefa slíka yfirlýsingu skriflega?
Það er fyndið að raddirnar að hraunið verði að varðveita því þar sé að finna ómetaleg mótíf Kjarvals hafa hljóðnað.
Menn hafa áttað sig á því að það eru ekki haldbær rök, enda erfitt að finna fyrirmyndirnar, því velflestar klessur Kjarvals eru þess eðlis að þær sýna það sama hvernig sem þær hanga, réttar, á hvolfi eða út á hlið.
Boltinn er hjá Hæstarétti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Betra að hafa Eið Guðnason á móti sér en með
21.10.2013 | 17:48
"Reiður" Guðnason hefur undarlegar hugmyndir um réttarríki annarsvegar og lögregluríki hinsvegar. Að hans mati er réttarríkið samfélag þar sem fámennir hópar fara sínu fram hvað sem öllu líður. Þegar lögreglan skerst í leikin, eftir ótrúlega þolinmæði, til að stöðva ólöglegar aðgerðir slíks hóps er að hans mati skollið á lögregluríki.
Hætt er við, ef Eiður yrði sjálfur fyrir aðgerðum svona lögleysuhópa og þyrfti að kalla lögreglu til, yrði skilgreining hans á nokkuð annan veg. Eiður er ekki heppilegur sem talsmaður, því hann er þeim ósköpum gerður að betra er að hafa hann á móti sér en með.
Eiður: Löggan tók mig fyrst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Núna reynir á, hvort Bjarni og Sigmundur verði sjálfum sér samkvæmir
20.10.2013 | 19:07
Á síðasta kjörtímabili töngluðust formenn og þingmenn núverandi stjórnarflokka á því að þáverandi ríkisstjórn bæri að segja af sér þegar fylgi hennar mældist illa í skoðanakönnunum.
Samkvæmt þessari könnun FHÍ er núverandi ríkisstjórn fallin. Herrarnir Sigmundur og Bjarni hljóta að vera sjálfum sér samkvæmir og segja af sér strax, varla vilja þeir ómerkingar kallast.
En strax er víst hægt að teygja í það óendanlega samkvæmt orðabók Framsóknar og vera samt vel innan marka.
Stjórnarflokkarnir tapa fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ógnvænleg tíðindi
1.9.2013 | 15:47
Í ljósi þess að Vigdís Hauksdóttir er sennilega næst í ráðherra goggunarröð Framsóknar, þá er þessi tilkynning forsætisráðherra hrein og klár hamfaratilkynning og sönnun þess að lengi getur vont versnað.
Það er óvíst að Geir H. Haarde hefði talið það duga að biðja landinu Guðs blessunar með slíka vá fyrir dyrum.
Nýr ráðherra kynntur fljótlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hver gætir okkar fyrir þeirra gæsku?
30.8.2013 | 21:29
Vesturlönd leita núna logandi ljósi að réttlætingu þess að varpa sprengjum á Sýrland í þeim tilgangi að drepa enn fleira fólk í nafni frelsisins, sem þau hafa gefið sér undarlegt einkaumboð að útdeila.
Allt í nafni Drottins, ekkert minna, auðvitað. Það hljómar betur þannig.
Allir góðu gæjarnir hérnamegin veggjar segjast vera að vernda okkur fyrir hinu illa, en hver gætir okkar fyrir allri þeirri "góðvild" sem þeir ná ekki að útdeila öðrum?
Getum ekki setið aðgerðalaus | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Hvað, vantar 8600 milljónir Kristján? Eruð þið dæmafáu vitleysingjarnir ekki nýbúnir að gefa LÍÚ ríflega þessa upphæð?
11.7.2013 | 16:48
Er það ekki yndislegt að sjálfstæðismaðurinn Kristján Þór Júlíusson skuli kalla eftir þjóðarsátt til að verja heilbrigðiskerfið og að þjóðin leggi til 8600 milljónir í því skyni.
Þessir peningar voru til, eða á leiðinni í pípurnar. En í stað þess að eyrarmerkja heilbrigðiskerfinu aurana ákvað Kristján og sökunautar hans í Sjálfstæðisflokknum að gefa þá LÍÚ. Það var ekki kallað eftir þjóðarsátt um þá aðgerð.
Svo kemur þetta skoffín, ber sér tárfellandi á brjóst og boðar þjóðinni að hún leggi til 8.600.000.000 til bjargar heilbrigðiskerfinu, sem hann og flokkurinn hans eru staðráðnir í að fórna á altari einkavæðingarinnar.
Þegar þeim hefur tekist það ætlunarverk sitt getur Kristján gefið þjóðarátakið til allra bágstöddu auðmanna sem Bjarni Ben hafði hvað mestar áhyggjur af í kosningarbaráttunni.
Vantar 8.600 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Yfirklór og aflúsun
10.7.2013 | 20:46
Forsætisráðherra boðar skipan nefndar sem hafi það eina hlutverk að ritskoða skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð í þeim tilgangi að leiðrétta meintar villur í skýrslunni til að aflúsa Framsóknarflokkinn af því klúðri öllu.
Græni liturinn á flokkskírteinum grandvarra nefndarmanna verður örugglega hrein tilviljun. Nefndin verður að sjálfsögðu vel búin að heiman með vönduðum pappírstæturum og digrum yfirstrikunarpennum.
Eftir hreingerninguna verður skýrslan að vonum stutt og viðráðanleg lesning fyrir alla meðal Sigmunda.
Ekki þarf að efa að svo góður rómur verði gerður að störfum nefndarinnar að henni verði í framtíðinni falin fleiri hreingerningar verkefni við endurritun á spillingarsögu Framsóknar. Það verður mikil og örugg framtíðarvinna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Auðvitað skrifaði Ólafur undir
9.7.2013 | 18:27
Auðvitað staðfesti forsetinn lögin hann gat ekki annað. Því það eina sem skiptir Ólaf Ragnar máli er hvað kemur Ólafi Ragnari best, ekki þjóðarhagur eða þjóðarvilji, fari það ekki saman.
Ólafur Ragnar vissi að synjaði hann lögunum staðfestingar myndi enginn framar mæra vit hans og visku. Hann hefði þá brennt allar brýr að baki sér og stæði uppi smáður og hataður....af öllum!
Og þannig mun óhjákvæmilega fara að lokum.
Forsetinn staðfestir lög um veiðigjald | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Bjarni Ben opinberar meðfæddan kjánaskapinn
29.6.2013 | 22:29
Veit kjánaprikið Bjarni Ben ekki að Landsdómur verður ekki aflagður með einfaldri laga- breytingu?
Til að leggja niður Landsdóm þarf að breyta núverandi stjórnar- skrá, sem Bjarni lýsti heilaga á síðasta þingi og vildi, þar til nýlega hið minnsta, verja með öllum ráðum.
Hvernig eru fylgjendurnir, ef svona er leiðtoginn?
Ætla að leggja niður landsdóm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Til hamingju Ísland
23.5.2013 | 17:59
Það er vert að óska nýjum forsætisráðherra og ríkisstjórn hans velferðar í starfi sínu fyrir land og þjóð. Full ástæða er þó að óttast að í samstarfi við íhaldið verði velferðin ekki allra.
Íslensk alþýða veit af biturri reynslu að það er regla, frekar en undantekning, að réttlæti og gjafir íhaldsins renna helst þangað sem þeirra er síst þörf.
Sigmundur Davíð fékk lyklana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)