Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Fullkomin fimma?

Það er kona í embætti forsætisráðherra, það er kona í forsæti Alþingis, það er kona á leið í embætti biskups, það er kona á leið í embætti vígslubiskups.

Það yrði svo saga til næsta bæjar, sendi þjóðin konu til Bessastaða.

  
mbl.is Solveig Lára vígslubiskup á Hólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Launaleiðrétting, en hvernig?

Innanríkisráðuneytið hefur „leiðrétt“ svokallaðan  2,5% „óútskýrðan kynbundin launamun“ í ráðuneytinu.

Ráðuneytið þarf að úrskýra með hvaða hætti þessi svokallaða launa „leiðrétting“ var framkvæmd og forsendur hennar.

Voru laun kvenna hækkuð upp fyrir laun karla, sem þessari prósentutölu nemur, og þannig skapaður svokallaður „jákvæður“ launamunur til að mæta og jafna hinn „óútskýrða“ launamun, eða hvernig var þetta gert?

Er ráðuneytið fyrst núna fara að lögum um launamál?


mbl.is Ráðuneyti leiðréttir launamun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingflokksformaður LÍÚ

Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingsflokksformaður LÍÚ reif sig niður í klof í þinginu í fyrr dag og upp aftur, yfir þeirri ósvífni að þingmenn þyrftu að sitja þingfundi og væru þannig hindraðir í því að sinna mun mikilvægari málum, t.a.m.  hanastélspartí austur á landi til að lepja þar froðuvín og hlusta á lofræður um þeirra eigin háborinnheit.

Ragnheiður Elín sagði ennfremur að LÍÚ flokkurinn  muni ekki  semja „hagsmuni þjóðarinnar“ út af borðinu til að fá þinglok. En verði hinsvegar gengið að kröfum LÍÚ varðandi fiskveiðistjórnunarfrumvörpin, þá sé hagsmunum þjóðarinnar vel fórnandi fyrir þinglok.


mbl.is Þjóðarhagsmunum ekki fórnað fyrir þinglok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baráttan um Bessastaði

Niðurstaða skoðanakannana

Það hafa verið í gangi 3 kannanir á síðunni hjá mér undanfarið, en samtengdar. Sama spurningin var borin upp í þeim öllum: 

Ef aðeins tveir eftirtaldir frambjóðendur yrðu í kjöri til embættis forseta Íslands þann 30. júní n.k., hvort myndir þú kjósa? 

Fyrst var Þóru Arnórsdóttur teflt fram gegn Ólafi Ragnari, 600 svöruðu og niðurstaðan varð: 

 

Ólafur Ragnar Grímsson 50.8%

 

Þóra Arnórsdóttir 41.8%

 

Skila auðu- sitja heima 7.3%

 

  
  
  
   
 Síðan var Jóni Val Jenssyni stillt upp gegn Ólafi, 412 svöruðu, niðurstaðan varð:
  

Ólafur Ragnar Grímsson 55.8%

 

Jón Valur Jensson 13.6%

 

Skila auðu – sitja heima. 30.6%

 

  
  
   
 Að lokum var Stefán Jón Hafstein sendur fram gegn Ólafi, 403 svöruðu, hans árangur varð sem hér segir:

Ólafur Ragnar Grímsson 54.3%

 
Stefán Jón Hafstein 32.3%
 
Skila auðu – sitja heima. 13.4%

 Forsetinn er samkvæmt þessu með unnið tafl.

 


Góð frammistaða RUV

RUV á þakkir skyldrar fyrir þáttinn „Baráttan um Bessastaði“, hvar öllum forsetaframbjóðendum var gert jafnt undir höfði, en skoðanakannanir ekki látnar ákveða hverjir væru til muna jafnari en aðrir, eins og Stöð2 gerði sig seka um.

Það er mín skoðun að í þættinum í kvöld hafi Þóra og  Ari Trausti staðið sig best. Herdís kom mér verulega á óvart, hún stóð sig líka afar vel. Ólafur Ragnar kom mér líka verulega á óvart, hann var slakur.

Þáttastjórnendur stóðu sig mjög vel og ég get ekki betur séð en þeir hafi með frammistöðu sinni afsannað þær ásakanir að RUV stæði vörð um framboð Þóru.


mbl.is Ósammála um 26. greinina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skandall

Það er deginum ljósara að framkvæmd Stöðvar tvö á þessum  kappræðufundi, var stöðinni, stjórnendum hennar og eigendum til skammar og háðungar.

Svo beit sjónvarpsstöðin höfuðið af skömminni þegar útsendingunni var læst skyndilega og óvænt.


mbl.is „Stöð 2 læst stöð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorgleg afsökun (ásökun) Ástþórs Magnússonar

Ef ég hef skilið Ástþór Magnússon fyrrverandi forsetaframbjóðanda rétt, í fréttum sjónvarps í kvöld, þá kennir hann öðrum forsetaframbjóðendum og fulltrúum þeirra um falsaðar undirskriftir, sem hans eigin fulltrúar „söfnuðu“ og skiluðu inn.

Það skyldi þá ekki vera að sú  aðferð, sem Ástþór var sagður beita við söfnunina, hafi einmitt skilað þessari niðurstöðu. En hvernig sem í þessu klúðri liggur, getur ábyrgðin á þessum „mistökum“ tæplega legið hjá öðrum en Ástþóri sjálfum og þeim sem unnu fyrir hann.

  


mbl.is Forsetaframboð Ástþórs ógilt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjallar sóla sig

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur lagt undir sig Arnarhól, sem er ágætt í sjálfu sér, þeir eru þá ekki til óþurftar á Alþingi á meðan.

 
mbl.is Fíflafaraldur á Arnarhóli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blogg dagsins

!


Allir vildu Lilju kvatt hafa

Hvað ætli Lilja þurfi að hóta mörgum hinu og þessu, til að koma á þessu fyrirmyndar 1000 ára ríki sínu?

 
mbl.is Þrengingum þjóðarinnar ekki lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.