Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Spellvirki Öryrkjabandalagsins

Ég er fullkomlega sammála kærendum kosninganna um forsendur kærunnar. Núverandi fyrirkomulag við aðstoð þeim til handa sem ekki geta kosið hjálparlaust er gersamlega óviðunandi og því verður að breyta strax.

En ég er gersamlega ósammála þessari aðgerð og tel það gífur- legan ábyrgðarhluta af hálfu Öryggjabandalagsins og beinlínis spellvirki að ætla ganga alla leið og krefjast ógildinga forsetakosninganna á forsendum þessa formgalla. Ekki hvað síst þegar ljóst má vera að ágallalausar kosningar hefðu ekki skilað öðrum úrslitum.  Fráleitt er að styðja slíka rökleysu.

Umræðan um hnökra nýgengina kosninganna hefur klárlega orsakað þann þrýsting á Alþingi að breyta þessu misrétti fyrir næstu kosningar. Kæra Öryrkjabandalagsins er því að öllum líkindum fullkomið vindhögg og því ekkert annað en hreinræktað spellvirki, verði hún til þess að ógilda kosningarnar.

    


mbl.is Vilja ógilda forsetakosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona er hans heilagur hræsnarinn Snorri Óskarsson.

Snorri Óskarsson erindreki Guðs og sannleikans, kenndur við Betel, hefur það á hreinu hverra tjáningarfrelsið er og hverra ekki.  Hann telur að honum, sem kennara,  sé heimilt að birta á prenti hvaðeina skoðanir  sem honum þóknast í nafni málfrelsis.

Svo mælir Óskar þegar hann ver sinn málstað og rit og málfrelsið:

„Á maður ekki að hafa rétt til að segja hlutina, hvort sem maður er að segja einhverja vitleysu eða ekki? Það fái þá allavega að heyrast mismunandi sjónarmið og mismunandi álit. Ef við ætlum að þagga niður allar spurningar, umræður, efasemdir og vangaveltur og fullyrðingar, þá held ég að íslenskt samfélag sé komið í svakalega vond mál."  

En þegar þessi sami Óskar fær athugasemdir á hans eigin blogg gilda aðrar reglur og annað tjáningarfrelsi en hann áskilur sjálfum sér í samfélaginu. Á síðum Óskars  eru innlegg sett í ritskoðun,  mál- og ritfrelsi úr gildi fellt, og þeim innleggjum hafnað, sem heilögum Óskari hugnast ekki.

Svona er nú hans heilagleiki Snorri Óskarsson. Hann virðist töluvert jafnari en aðrir, ef ekki eitthvað umfram það.

 


mbl.is „Hvar endar þetta?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í sjálfu sér lítið skref, en risastökk á heildina litið

Bandaríkin eru loksins að slaka á fimmtíu ára viðskiptabanni sínu á Kúbu. Það, svo ekki sé talað um algert afnám þess, er risa skref í átt að afnámi kommúnisma á Kúbu.

Það hafa allir séð áratugum saman nema Bandaríkjamenn, sem hafa alla tíð séð rautt í bókstaflegri merkingu og gersamlega tapað áttum við það eitt að heyra orðið kommúnismi nefnt.

Obama er að reynast betri en enginn og takast það, þar sem fyrri forsetum brást kjarkur og þor, í málefnum Kúbu.

Þetta er samkvæmt frétt á Vísi.is. Mogginn þegir þunnu hljóði enda hefur Mogginn ekki áhuga á svona fréttum, þar á bæ eru menn varla farnir að átta sig á falli Járntjaldsins hvað þá falli Berlínarmúrsins og þar lifir gamla Rússagrýlan  enn góðu lífi.

   


Þarf að hugsa þetta mál frekar?

Auðvitað er Ögmundur úti á túni, í þessu „öryggis hneyksli“ á Keflavíkurflugvelli, sem flest öllu sem hann kemur nálægt. Varla hefur einhver reiknað með öðru.

Það undarlegasta í bakgrunni þessa máls er  að hegðan hælisleitenda, hátterni þeirra eða jafnvel afbrot á meðan á úrvinnslu hælisumsókna þeirra stendur, virðist ekki hafa hin minnstu áhrif á hælisumsókn þeirra.

Fyrir öllu meðalgreindu fólki er þessi „flótta tilraun“ hælisumsækjenda staðfesting þess að engin innistæða er fyrir hælisumleitan mannanna og var aldrei.

Það er því aðeins ein lausn á þessu máli, snara umsókn þeirra upp úr skúffunni, stimpla á hana  SYNJAÐ! Með eins stórum stöfum og á blaðið rúmast og senda síðan kappana með fyrstu vél úr landi, þangað sem þeir komu, með skófar á rassgatinu. Nema auðvitað að til standi að neyða upp á þá landvist!


mbl.is „Við fengum gula spjaldið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessir misbrestir...

...og gallar í kerfinu eru svo augljósir  og sláandi að jafnvel kerfisrisaeðlan Björn Bjarnason sér þá og fær ekki orða bundist.

 Þarf þá frekari vitna við að breytinga sé þörf á þessu verklagi, sem nefndur Björn hefur mjög líklega átt sinn þátt í að skapa? 


mbl.is „Eitthvað bogið við kerfið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að tarna?

Trúði því einhver annar en Lilja að henni væri nóg að skipta um nafn og kennitölu á framboði sínu til að gamla eðlið og innrætið þekktist ekki og henni yrði tekið sem nýrri og ferskri vöru?

  


mbl.is Furðar sig á fylgi flokkanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítlega eðlið

Vaxandi stuðningur við ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna kemur ekki á óvart. Það streyma inn upplýsingar og hagtölur sem segja frá afgerandi bata í efnahag landsins, minnkandi atvinnuleysi og auknum fjárfestingum.

Þetta eru upplýsingar og tölur sem stjórnarandstaðan, Íhaldið og Framsókn vonuðust til að bærust ekki eyrum og augum landsmanna fyrr en eftir næstu kosningar. Svo þeir, sem nýir stjórnarherrar gætu tilkynnt þær sem sín verk og eignað sér þannig glæsilegan árangur núverandi ríkisstjórnar.

Nákvæmlega eins og Davíð nokkur Oddson gerði þegar hann, eignaði sér persónulega niðurbrot langvarandi  óðaverðbólgu, þegar Viðeyjarstjórnin hans  tók við af ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar 30. Apríl 1991.

Stjórn Steingríms skilaði verðbólgu upp á 4 %, rétt nógu tímalega fyrir stjórnarskiptin, til að Davíð tækist að stela heiðrinum af því í augum almennings, sem hann gerði svikalaust.

Íslenska Íhaldið hefur aldrei stundað ærlega og heiðarlega pólitík og mun aldrei gera, ótrúlegt hvað margir láta glepjast af fagurgalanum.


mbl.is Stjórnarflokkarnir bæta örlítið við sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er skammgóður vermir að pissa í skóinn sinn

Ég óska forsetanum til hamingju með sigurinn. Ég óska líka Hannesi Hólmsteini og Sjálfstæðisflokknum til hamingju með sigur þeirra frambjóðanda. Sjálfstæðisflokkurinn hefur allt frá lýðveldisstofnunni, rembst eins og rjúpan við staurinn, að hlutast til um það á einn eða annan hátt hver sæti Bessastaði.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf, þar til núna, þurft að lúta í gras í þeirri baráttu. En núna rættist langþráður draumurinn og þeir unnu Bessastaði með því stórfenglega herbragði að fylkja sér að baki fyrrverandi formanni Alþýðubandalagsins, höfuð Óvininum sjálfum. Manninum sem forðum fór um landið á rauðu ljósi, manninum sem hefur aðeins einu sinni sagt satt á öllum sínum ferli, þegar hann sagði Davíð Oddson haldinn skítlegu eðli.

Það er því von að Hannes Hólmsteinn brosi hringinn og að kátt sé í Valhöll. Það var kómísk og sannarlega söguleg stund að sjá í sjónvarpinu í nótt inn í helbláa Valhöll, hvar menn fögnuðu ákaft árangri Ólafs Ragnars og svolgruðu mjöðinn  af hofmóði miklum.

Ólafur Ragnar hefur víða komið við í pólitíkinni á sínu flokkaflakki, gengið í nánast alla flokka nema Sjálfstæðisflokkinn. Sjálfstæðisflokkurinn hefur núna leyst það vandamál með því hreinlega að ganga í heild sinni í Ólaf.  Hætt er við að hnökrar og brestir muni koma í þann sælusamruna, fljótlega eftir að Sjálfstæðisflokkurinn fær lyklana að Stjórnarráðinu á næsta vori, gangi skoðanakannanir eftir.

  


mbl.is Segir sigur Ólafs ósigur stjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Anna Kristín laug

Anna Kristín Ólafsdóttir höfðaði mál á grundvelli jafnréttislaga, þegar henni þótti á sér brotið, þegar hún var ekki þeim lögum samkvæmt tekin fram yfir hæfari eða jafn hæfa umsækjendur. Anna hefur á grundvelli þessara forréttindalaga unnið sitt mál, eðlilega, því að lögum skal fara.

En svo kemur Anna Kristín fram í fjölmiðlum og lýsir hróðug yfir sigri, belgir sig sem hæna á haug,  og segir Jóhönnu Sigurðardóttur ljúga því að ráðuneytið hafi reynt að fara sáttaleiðina. Anna segir að Jóhanna og ríkið hafi aldrei boðið sættir eða reynt að fara sáttaleiðina.

Ekki er að sökum að spyrja, bloggheimur reis með það sama upp á afturlappirnar og hellir yfir forsætisráðherrann óbótum og skömmum fyrir hina meintu lygi og spara ekki stóru orðin og fúkyrðin.

Nú hefur dúkkað upp bréf frá ríkislögmanni til lögmanns Önnu hvar óskað er eftir sáttafundi til að finna lausn og ná sáttum.

Bréfið sannar að Anna Kristín laug. Nú hljóta þessir sömu bloggarar, sem ekki þola lygi og misgjörðir, að segja Önnu Kristínu skoðun sína á henni – umbúðalaust!  

Vonandi lærir Jóhanna Sigurðardóttir og aðrir femínistar það á þessu rugli öllu að lagasetning sem veitir einum forgang umfram aðra með þeim rökum að slíkt auki jöfnuð, getur ekki annað en borið í sér feigðina.


mbl.is Bauð fram sátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk Eiríkur Jónsson, þú hjálpaðir mér, og vonandi sem flestum öðrum, að taka ákvörðun!

Ég hef aldrei áður þakkað skítseyði fyrir þess framlag, en allt er einu sinni fyrst. Takk Eiríkur Jónsson fyrir þitt framlag.

Ég hef áður tjáð hug minn um þann skítmokstur sem stundaður er í forsetakosningunum og þá aðallega af meintum samstuðnings félögum mínum við Ólaf Ragnar. Skítkastinu er eingöngu beint gegn Þóru, þar sem hún er helst talin ógna Ólafi.

Menn draga ekki af sér, tilgangurinn er látinn helga meðalið og eins þykkt smurt og framast er kostur. Hamrað er látlaust á lyginni og hálfsannleikanum uns  þau hljóma sem sannleikurinn eini.

Núna í kvöld horfði ég á eitthvað sem átti vera sjónvarpsþáttur á "sjónvarpi Eiríks Jónssonar", þátt  í sama dúr og þættir með sama manni fyrir margt löngu sem nutu nokkra vinsælda um hríð en ofbuðu að lokum fólki fyrir lágkúru og ljótleika. Eiríkur reynir þarna að höggva í sama hnérunn og fer beint í sorann.

Eiríkur dregur fram fyrrverandi sambýliskonu Svavars, eiginmanns Þóru, kynnir hana til leiks sem SPÁMIÐIL (hvað sem það nú er) til að spá til um úrslit kosninganna. (SJÁ HÉR)

Síðan snýst "spádómurinn" þeirrar fyrrverandi  aðallega um kalann sem miðillinn virðist bera í brjósti gegn fyrrverandi sambýlismanni og barnsföður eftir þeirra misheppnaða samband. Auk þess sem "spádómurinn" upplýsir helst hvað frænka Eiríks eigi mikla möguleika í kosningunum.

Er þetta það sem móðirin matar barnið sitt á um föður þess? Þvílík móðir, geri hún það.

Það er athyglisvert að þessi magnaði miðill skuli ekki hafa verið heppnari með eigið líf, svona vel sjáandi inn í framtíðina.

Hér tók steininn úr í þessum hatursáróðri gegn Þóru. Mér ofbýður, ég snýst henni til varnar og geng í hennar lið. Rétt eins og ég gerði 1996 þegar árásirnar á Ólaf Ragnar náðu hámarki.


mbl.is Gegn forseta í þriðja sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband