Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Mál að linni

Það kemur betur og betur í ljós, eftir því sem fleiri og fleiri löglærðir þungavigtarmenn tjá sig um dóm Landsdóms, hvað Geir Hilmar Haarde má vera lukkulegur með þá niðurstöðu sem hann fékk í Landsdóms málinu.

Landsdómurinn,  mun verða umræðuefni  svo lengi sem Geir vill halda lífi í þeirri umræðu með þvermóðsku sinni og rembingi.

Það getur enginn endað þessa umræðu í eitt skipti fyrir öll nema Geir sjálfur. Hann myndi slá botninn í  umræðuna með því einu að stíga fram af auðmýkt og halda ræðuna sem hann hefði átt að flytja í stað fúkyrða súpunnar sem hann jós yfir land og lýð að nýuppkveðnum dómi.

   


mbl.is Hefðu getað sakfellt fyrir vanrækslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn og aftur er Ögmundur úti á túni

Það er ekki vandamál að vera sammála Ögmundi að það hafi verið mikið lán að við fengum ekki sæti í Öryggisráðinu á sínum tíma. Þó það sé án efa á ólíkum forsendum.

ogmundur_jonassonEn þegar Ömmi segir að Svíþjóð hafi verið móralskt stórveldi á sínum tíma, þegar þeir sjálfskipaðir gerðust samviska heimsins og gagnrýndu af offorsi hernaðar- og utanríkispólitík annarra ríkja, er hann heldur betur langt úti á túni.  

Því á sama tíma og Svíar predikuðu öðrum siðferði með vinstri hendi, framleiddu þeir og seldu vopn hverjum sem kaupa vildi, með þeirri hægri. Það var ekkert stórt við þá hegðan Svía annað en hræsnin.

Svíar voru þá, og eru enn, meðal stærstu framleiðenda  og útflytjenda  hergagna í heiminum og þeir langstærstu miðað við höfðatölu.

Það er því misskilningur hjá Ömma að Svíar hafi tekið upp hræsnina og aðra ósiði við inngönguna í ESB. Hún er orðin giska þreytt þessi súra lumma að allt sem miður fer heima og að heiman sé ESB að kenna.


mbl.is Íslendingar heppnir með höfnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir dæmir sig sjálfur

Það er örugglega mjög fátíður ef ekki einstæður atburður, að maður sem vinnur „fullan sigur“ í dómsmáli, að frátöldu litlu ómerkilegu agnarsmáu formsatriði (að hans mati), skuli ætla að áfrýja öllum sigrinum. 

Raunar tel ég að það standi ekki til að Geir vísi „sigri sínum“ til Mannréttindadómstóls Evrópu. Þessi umræða og fréttaflutningur þjónar aðeins þeim tilgangi að ala á þeirri píslarvottaímynd sem Geir kýs að draga upp af sjálfum sér.  Andri Árnason lögfræðingur Geirs, sem veit auðvitað að engin mannréttindi voru brotin á Geir, leikur sitt hlutverk af kostgæfni, enda feiti kötturinn aðeins hálffleginn.

Andri kemur vel undan þessu máli, vinna hans og aðstoðarmanna, sem þjóðin greiddi, hljóðaði upp á  1947 tíma, sem er 243 daga stíf vinna, nánast heilt ár. Landsdómur dæmdi lögfræðingnum litlar 25 milljónir fyrir þjónustuna. Það leggur sig á 12.550 á tímann, sem þætti, að öllu jöfnu, dágott fyrir starfsmann á plani.

geir í fullum fókusGeir hefði komið út úr þessu máli með pálmann í höndunum og samúð þjóðarinnar í farteskinu, hefði hann tekið dómum af auðmýkt, sagst fallast á niðurstöðuna og málinu væri lokið. Punktur!

Nei það var Geir um megn, hann kaus þess í stað að ausa úr skálum reiði sinnar yfir allt og alla, sagði Landsdóm spilltan, sagði dóminn „ sprenghlægilegan og fáránlegan“ og kallaði eftir afsögn manna vítt og breitt. Með því gerði Geir sjálfan sig sprenghlægilegan og fáránlegan og uppskar ekki annað en andúð almennings.

Sendi Geir málið fyrir Mannréttindadómstólinn, hlýtur dómstóllinn sá að kalla eftir nýjum gögnum m.a. eftir hljóðritunum af símtölum starfsmanna Seðlabankans dagana kringum hrunið, sem ekki var upplýst um að væru til fyrr en eftir að dómur Landsdóms féll, og komu ekki fyrir dóminn. Ekki víst að Geir hætti á það.

En eitt er alveg öruggt,  því meir sem Geir ólmast kringum eigið egó, því meir fjarlægist hann  samúð og aðdáun þjóðarinnar, sem hann telur sig eiga skilið.

Þannig dæmir Geir sig sjálfur!


mbl.is Stefna til Strassborgar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástþór Bessastaðafari undirgengst (pung) þukklun til staðfestingar á hæfi hans til embættis forseta

 

„Við þurfum ekki þæga strengjabrúðu á Bessastaði, heldur mann með harðann pung (balls)“.

Svo segir í þessu framboðsmyndbandi Ástþórs Bessastaðafara.

Til að staðfesta „punghæfi sitt“ hefur Ástþór kallað til 40 manna sveit vaska Strandamanna, sem standa manna  fremstir í svokölluðu hrútaþukkli. Þeir munu þukkla frambjóðandann svo sem þurfa þykir og fer aðgerðin fram í Reiðhöllinni í Víðidal n.k. laugardag kl. 14.00.

Reiknað er með að þukkla þurfi lungað úr deginum. Stefnt er að því að niðurstaða punghörku Ástþórs liggi fyrir ekki síðar en kl. 18.00.

Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir og er aðgangur ókeypis.

  


mbl.is „Þar sem er vilji er vegur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sendlingurinn, Bjarni litli Ben, hittir naglann á höfuðið - alveg óvænt

BjarvíðBjarni litli Ben, sendill Morgunblaðs- ritstjórans, telur einsýnt að gera þurfi ýmsar lagfæringar á þankagangi Íslenskra stjórnmálmanna varðandi efnahagsstjórnun, verði erlendur gjaldmiðill tekinn upp á Íslandi. En verði íslenska krónan notuð áfram, þá er að mati Bjarna, engin þörf á slíku og eðlilegast að hjakka áfram í sama gamla farinu.

Gengisfellingar hafa nefnilega verið eina „efnahagsstjórnin“ sem íslenskir stjórnmálamenn hafa kunnað, hvar sem þeir í flokki standa. Með upptöku erlends gjaldmiðils,  yrði þessi „töfralausn“ og eina lausn, skerðing lífskjara, frá þeim tekin. Þeir þyrftu þá að taka upp nýja efnahagshugsun,  svipaða því sem tíðkast meðal siðaðra þjóða.

Húsbóndi Bjarna hefur sagt honum , að það megi  ekki gerast, verði hjá því komist, gamla aðferðin sé  svo miklu auðveldari og þægilegri fyrir alla, nema almenning.


mbl.is Einhliða upptaka veikasti kosturinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arfur Framsóknar

Úr því formaður Framsóknarflokksins er hrokkinn í þennan gírinn ætti hann að fylgja þessum athugunum sínum eftir og kanna allan pakkann.

Sigmundur ætti í þessari sveiflu sinni að taka saman þann skaða sem Framsóknarflokkurinn hefur valdið þjóðinni á tæplega 100 ára sögu sinni. Arfur Framsóknar nemur örugglega nokkrum þjóðargjaldþrotum, á heildina litið. 

 


mbl.is Íslendingum allir vegir færir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Náriðlar

Eru náríðingar  svo algengar og vinsælar í Egyptalandi, og þeim menningarheimi, að eðlilegt sé talið að heimila mönnum þetta óeðlisógeð með lögum.

Hversu sjúkt er slíkt samfélag orðið?

  


mbl.is Mega sænga með látnum konum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmigert fyrir Sjallana

Þeir reyna alltaf allt hvað þeir geta, að eigna sér mál annarra.

  
mbl.is SUS gerir tilboð í málið hennar Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hægri grænir hafa fundið breiðu bökin og boða græna skattastefnu - fyrir hátekjufólk

Hægri grænir , sem kalla sig flokk fólksins, boða græna skattastefnu – fyrir hátekjufólk. Markmiðið HG er helmings lækkun + á tekjuskatti hátekjufólks og auðmanna.

Maður með 2.000.000,00 í mánaðartekjur, sem greiðir núna um 830 þúsund í tekjuskatt, myndi greiða 400 þúsund í flötu 20% skattkerfi HG. Skattar hans myndu því lækka um meira en helming og ráðstöfunartekjur hans hækka um 430 þúsund.

Það þarf einhversstaðar að ná í þennan 430 þúsund kr. afslátt  sem tveggja milljónamaðurinn fengi hjá HG. Það ætla þeir að sækja til öryrkja og annarra látekjuhópa með því að skattleggja það fólk að fullu frá 1. krónu!

Því verður ekki á móti mælt að þetta er hreinræktuð og ómenguð hægri stefna, ekki þarf að fara í grafgötur með það og að auki mjög græn og væn fyrir auðmenn þessa lands, sem eru víst að sligast af greiðslum sínum til samfélagsins.

Öryrki eða annar lágtekjumaður með t.d.  124.617 kr í tekjur, sem eru nákvæmlega skattleysismörkin, og greiðir því engan tekjuskatt - myndi hinsvegar greiða í kerfi HG 24.923 kr. Ráðstöfunartekjurnar lækka um sömu krónutölu, niður í tæp 100 þúsund.

Það þarf því að skattníða rúmlega 17 þannig aðila til að fá upp í afslátt tveggja milljóna mannsins í boði HG. Allir sem hafa undir 270 þúsundum í mánaðartekjur myndu borga hærri skatta en áður. Þeir sem eru fyrir ofan þau mörk fara hinsvegar á framfærslu ríkisins.  

HG hafa fundið breiðu bökin, þeir vita hverjir eru aflögufærir. Ekki veitir af, einhverjar tekjur þarf víst ríkið til að standa undir öllu því sem HG ætlar að hrinda í framkvæmd. Allt fyrir ekkert heitir það víst.


mbl.is Hægri grænir kynntu stefnumál sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð felldi Golíat, nei afsakið, Geir

DavidGeirSamkvæmt fréttum Stöðvar 2 var það framburður Davíðs Oddsonar sem tryggði Geir sakfellinguna.

Egó Morgunblaðsritstjórans lætur ekki að sér hæða. Það verður gaman að sjá hvernig unnið verður úr þessum tíðindum á Íhaldsheimilinu.  


mbl.is Dómstólar ekki fyrir pólitískar deilur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband