Færsluflokkur: Vísindi og fræði
Það þykir örlítið skrítið .......
10.6.2009 | 00:22
.....svo ekki sé meira sagt þegar karlmaður er sagður hafa gengið með og alið barn. En kannski verður það eðlilegasti hlutur í heimi þegar hinu fullkomna jafnræði milli kynjana verður náð.
Karlmaður fæðir annað barn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 02:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Af mislitu fé....
11.5.2009 | 17:27
Mikið er gaman að sjá að ræktun er í gangi á einhverju öðru en þessu flata hvíta sauðfjárkyni sem verið hefur ríkjandi á Íslandi af misskildum ullarástæðum.
Sauðburður við Reykjanesbraut | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gagnlausar ráðstafanir
29.4.2009 | 19:10
Rykgríma sem vörn gegn flensunni er sennilega álíka góð vörn og regnhlíf gegn loftsteini.
Kaupa rykgrímur og spritt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 19:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Í minningu Keiko
28.4.2009 | 13:34
Vísindamenn, sem tóku þátt í því verkefni að frelsa háhyrninginn Keikó og flytja hann til Íslands, segja nú að ekki hafi verið rétt að frelsa hann þar sem aldrei hafi verið raunhæfur möguleiki á því að hann gæti lært að lifa úti náttúrunni.
Þetta er stórmerkileg yfirlýsing, en fyrirsjáanleg vísindaleg niðurstaða. Ekki er þess þó að vænta að þeir sem hvað harðast gengu fram í Free Willy (Keiko) endaleysunni, reknir áfram af misskildu tilfinningarbulli, séu líklegir til að samþykkja þessa niðurstöðu vísindamanna.
Gegn slíku tilfinninga fári duga engin rök, hversu haldbær sem þau kunna að vera. Rétt eins og þeir sem vöruðu við útrásinni, voru þeir miskunnarlaust hrópaðir niður, sem töluðu gegn og vöruðu við þeirri hugmynd að sleppa Keikó.
.
Rangt að frelsa Keikó" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Konur eru hommar inn við beinið
23.4.2009 | 14:36
Þá vitum það, konur eru hommar inn við beinið. Það mun vera megin skýringin á því að þær laðist að karlmönnum, að öllu jöfnu.
Hommi inn við beinið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fingralöngum vegnar betur
13.1.2009 | 16:45
Þá liggur það fyrir, vísindalega sannað, að fingralangir eiga auðveldara með að afla sér lífsviðurværis en öðrum.
Væri ekki rétt að bregða tommustokknum á krumlunar á útrásarvíkingunum?
.
.
(P.s. Heiða takk fyrir myndina.)
Stærðin skiptir máli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 17:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
George skiptir um skoðun
11.1.2009 | 13:48
George varð frelsinu afskaplega feginn, strauk svitann af enninu með öðrum griparminum og stundi pjúúh þegar hann gerði sér ljóst að örlög hans yrðu ekki að enda í gráðugum kjöftum manna sem hafa þann ósið að éta dýr sér til viðurværis. Hann blessaði frelsara sína í huganum og skildi ekkert í þessu láni sínu.
En fljótlega varð George ljóst, þar sem hann nýfrjáls humarinn, skreið eftir botninum að ekki var nú allt fengið með frelsinu, hvað var orðið um paradísina sem hann hafði lifað í? Hér var allt með öðrum hætti, sjórinn ekki jafn svalandi, ekkert æti sem hentaði honum og umhverfið allt fjandsamlegt og verst af öllu, þá voru hér engar Georgínur. Hvað var búið að gera honum?
Ekki leið á löngu þar til hann fór að bölva dýraverndarsamtökum sem héldu sig veita dýrum líkn og líf með því að sleppa þeim út í umhverfi þar sem þau eiga enga möguleika til afkomu.
George fór að sakna búrsins á veitingahúsinu, þar hefði dauðastríðið tekið fljótt af, hér gæti það tekið vikur í kvöl og pínu.
Humarinn George fékk frelsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hugrekki, byggt á blekkingu
24.12.2008 | 14:03
Málmgrindin sem maðurinn er inn í myndar svokallað Faraday-búr. Þau verja það sem inni í þeim er fyrir rafmagni og rafsegulbylgjum. Bílar og flugvélar eru dæmi um góða virkni Faraday- búra, menn sakar ekki þótt eldingu ljósti niður í flugvélar eða bíla. Öryggi búrsins eykst í réttu hlutfalli við aukna rafleiðni málmsins sem búrið er gert úr.
Stöngin sem maðurinn heldur á í síðara atriðinu er tryggilega jarðtengd og því er greiðasta leiðinn fyrir strauminn til jarðar.Góðir og þykkir gúmísólar tryggja svo að maðurinn nær ekki tengingu við jörð og leiðir því ekki rafmagn.
Ástralskur stuðbolti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Litla Ísland minnir á sig.
16.12.2008 | 17:23
Enn heldur litla Ísland áfram að skekja Danmörku og Svíþjóð. Kannski eftirhreytur bankahrunsins?
Ísland og Afríka ollu skjálftanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Og?
1.12.2008 | 12:52
Hver er pælingin? Reikna menn með því að geta krafið hræið um bætur ef sekt þess sannast? Veltur á því hvor var í rétti.
Varð hvalurinn fyrir Herjólfi? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 12:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)