Færsluflokkur: Spaugilegt

Magnað atriði...

...í Erovision 1985 í Svíþjóð þegar Lill Lindfors rýfur kjólinn sinn þegar hún kemur inn á sviðið.


Toppurinn á tilverunni

Toppurinn á tilverunni fyrir sænska framagosa, sem óska sér stórrar fjölskyldu, er auðvitað að geta haft allan pakkann á framfæri ríkisins, án þess að hafa til þess unnið.

Sænska kirkjan er að auki komin á hliðina vegna þessa væntanlega brúðkaups í sænsku steinaldarfjölskyldunni, því „Vala“ prinsessa vill víkja agnarögn frá hefðinni þegar hún gengur að eiga sinn „Bam Bam“.

Flintstone-Rubble-Car


mbl.is Langar í marga prinsa og prinsessur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver kannast ekki við bíómyndirnar....

 ....um The Pink Panther þar sem Peter Sellers fór á kostum ásamt Herbert Lom.

Hér er klippa úr -The Pink Panther Strikes Again.-

 
mbl.is Bleikur pardus handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert er ungbörnum hollara og betra....

....en móðurmjólkin. En brjóstagjöf getur að sjálfsögðu farið úr böndunum og út í öfgar eins og annað.

Little Britain gerir þessu góð skil, ein góð klippa af mörgum.

 
mbl.is Með fimm ára son sinn á brjósti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Það er víðar en hjá fleirum“

Ein kunningjakona mín, var á leiðinni frá Blönduósi til Reykjavíkur í vikunni  eftir að Hvalfjarðagöngin voru opnuð. Hún ekur sem leið liggur uns hún kemur að gangamunnanum og skellir sér í gegn.

En þegar hún kemur upp úr göngunum kannast hún ekkert við sig og stoppar til að ná áttum.

Þá rennur upp fyrir henni að hún er öfugu megin við fjörðinn og þá fyrst áttaði hún sig á því að hún hafði  ekið allan fjörðinn og farið ofaní öfugan enda.

  
mbl.is Hringavitleysa sjóarans með ökukortið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fátt er það núorðið...

 ..., sem ekki heldur vöku fyrir fólki.

En Össur í gufubaði? Seint hefði ég veðjað á það.


mbl.is Geta ekki hætt að hugsa um Össur beran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margt getur orðið....

.... til þess að breyta friðsælli og skemmtilegri veiðiferð í martröð.


mbl.is Stangveiðin hafin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Átakanlegt

Hvað er ógnvænlegra en missa undan sér?

Þetta gæti verið  „viðtal við manninn“, eða þannig.

 

 

Fyrirgefið aulahúmorinn.


mbl.is Fjarlægðu rangt eista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að slá gras getur verið dauðans alvara.

 

Það er vissara að fara að öllu með gát þótt græjurnar séu ekki af stærrigerðinni.

Gullna reglan er að velja ekki stærri tæki en maður ræður þokkalega við.


mbl.is Ótrúleg uppákoma í Króatíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Anda með nefinu gott fólk, anda með nefinu.

Fjölmiðlar hafa margir hverjir, með dramatískum hætti,  fjallað  um eldgosið á Fimmvörðuhálsi, missterkt að vísu.  

Á Fox-news í Bandaríkjunum lýsti andstutt og taugatrekkt  fréttakona af  mikilli sannfæringu yfirvofandi hörmungum, flóðum, öskufalli og eiturgufum sem umturna myndu andrúmslofti Jarðar með tilheyrandi  ósköpum fyrir heimsbyggðina  ef svo færi að Katla gysi, eða spryngi eins og hún orðaði það.  

Hún ræddi við jarðfræðing sem fór yfir hættuna af stórgosum og tiltók dæmi um slík gos. Hann lét ekki æsta fréttakonuna raska ró sinni og bað hana í lokin að anda með nefinu.

   
mbl.is Varað við banvænum eiturgufum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband