Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
Tímamótaræða, orð í tíma töluð
4.6.2009 | 14:03
Ræða Obama Banda- ríkjaforseta í Kaíró í morgun er tímamótaræða, sem getur orðið vísir að nýju upphafi, nýrri hugsun og nýtri framtíð.
Hér kveður við nýjan, gerbreyttan og ferskan tón frá Washington, tón sem jafnvel bjartsýnustu menn voru farnir að efast um að þaðan gæti komið.
Forsetinn kastar burt þeirri stefnu sem ríkjandi hefur verið vestur þar um langa hríð, stefnu þröngsýni, öfga, og forræðishyggju, stefnu sem aðeins gat alið á tortryggni, hatri og ofbeldi.
Forsetinn réttir fram sáttahönd, hönd vonar og bræðralags milli ólíkra menningar- og trúarsamfélaga.
Ég hygg að jafnvel kunni að líða einhver tími áður en öllum verði að fullu ljóst hversu risastórt og markvert skref Obama hefur stigið með þessari ræðu.
Fyrsta verk Obama, til að sýna að hugur fylgi máli, hlýtur að vera, að gera Ísraelsstjórn það fyllilega ljóst að sá tími sé liðinn að þeir geti farið sínu fram að vild. Þeim verði gerður sá eini kostur að skila herteknu landi, leggja af landtökubyggðir, tryggja Palestínumönnum sitt land og semja frið við sjálfstætt ríki Palestínu.
Gerist þetta ekki, verður þetta skref fram til friðar að risastökki afturábak. Við heimsbyggðinni blasir þá að þessi ræða hafi verið orðin tóm og þær vonir sem við hana vöknuðu, verið tálsýn ein.
![]() |
Obama hvetur til nýs upphafs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Við skulum vona að Kínverjarnir.........
2.6.2009 | 19:49
.....spryngi ekki af illsku og vandlætingu.
Það gæti orðið subbó.
.
.
![]() |
Óljósar fregnir af sendiherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 19:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mr. Brown í bobba
31.5.2009 | 13:36
Að Gordon Brown skuli telja það vænlegast í þröngri stöðu Verkamannaflokksins að henda ráðherrum, en sitja sjálfur, er svipað og líkamanum sé hent til að bjarga krabbameininu.
![]() |
Brown vill Darling úr stjórninni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
....oogosjh......
27.5.2009 | 12:31
.......hvað getur maður sagt við svona heimsviðburði?
![]() |
Ófrísk ofurfyrirsæta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriggja ára „glæpakvendi“
22.5.2009 | 18:19
Sem betur fer gerðist þetta á Nýja Sjálandi en ekki t.d. í Bandaríkjunum, þar sem allt eins hefði verið ákveðið að líta á barnið sem fullorðinn einstakling og ákæra það fyrir allt sem hugsanlega væri hægt að hengja á málið.
Sem dæmin sanna.
![]() |
3 ára keypti skurðgröfu á netinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Brown fer með bænirnar sínar.
16.5.2009 | 23:27
Eins og meðfylgjandi mynd sýnir þá hefur Íslandsvinurinn Gordon Brown áttað sig á að nú sé orðið tímabært að fara með faðirvorið.
..........
Og eigi leið þú oss í freistni,
heldur frelsa oss frá Íslendingum,
.......
![]() |
Hætta að styrkja flokkinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Halló, hvað erum við að hugsa?
11.5.2009 | 12:32
Þessi afstaða Finna kemur ekki á óvart. Sú hugmynd að Finnar, sem ekki eru í NATO, komi að hinu svokallaða loftrýmiseftirliti í Íslenskri lofthelgi, er fáránlegasta hugmynd sem upp hefur komið í öllu hernaðar bullinu, sem heltekið hefur suma ráðamenn þjóðarinnar.
Það er von mín og trú að sú endurskoðun, sem ný ríkisstjórn ætlar að gera á þessari svokölluðu loftrýmisgæslu, gæluverkefni hernaðar- sinna, verði til þess að við afboðum frekari framkvæmd þess tilgangsleysis og fjársóun því samfara.
Íslendingar verða aldrei sannfærandi boðendur friðar og bræðralags meðal þjóða standi þeir með óvígan her bandalagsþjóða að baki sér, tilbúinn að láta verkin tala.
.
.
![]() |
Finnar ófúsir til þátttöku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 13:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sumum leyfist....
8.5.2009 | 01:55
Það er ekki á hreinu í mínum huga hvaða tilgangi það þjónar í dag, eftir 64 ár frá stíðslokum, að elta uppi þau fáu gamalmenni, sem enn kunna að vera á lífi af böðlum Hitlers.
Það þjónaði betur hagsmunum mannkyns að beina kröftunum að því að stöðva þá sem slík voða verk stunda í dag.
Og þá ekki hvað síst þá sem lærðu listina í útrýningarbúðum nasista.
![]() |
Hæstiréttur synjar beiðni Demjanjuk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hreðjarnar taka völdin
29.4.2009 | 12:26
Af þessari átakanlegu yfirlýsingu eiginkonu Silvios Berlusconis forsætisráðherra Ítalíu, í fjölmiðlum, má glögglega ráða að Silvio karlinn hugsar hreint ekki með höfðinu.
Það er Ítölum vonandi fagnaðarefni að landinu sé stjórnað af hörðum nagla en ekki einhverjum vingli.
![]() |
Kona Berlusconis segist þjást |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 12:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Skipað gæti ég, væri mér hlýtt.
11.4.2009 | 23:22

Andstaða Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í Asíu gegn eldflaugaskotum N-Kóreu væri skiljanleg ef hún væri af mannúð og þeir vildu kappkosta að fjármagninu væri frekar varið í að brauðfæða þjóðina eða annarra þarfari hluta, en sú er nú ekki raunin.
Spyrja Bandaríkjamenn eða bandamenn þeirra önnur ríki heims hvort þeir megi skjóta á loft eldflaug eða gera tilraunir með ný vopn? Nei það hvarflar ekki að þeim og hefur aldrei gert. Samt telja þeir sig þess um komna að banna öðrum að gera slíkt hið sama.
Nú nota þeir Sameinuðu þjóðirnar til að ná sínu fram gegn N-Kóreu og þá með viðskiptabanni og álíka geðslegum verkfærum sem aðeins bitna á almenningi í N-Kóreu, þeim sem síst skildi og hafa ekkert um málið að segja.
Bandaríkin hafa ekki hikað við að hundsa ályktanir Sameinuðu þjóðanna eða beita neitunarvaldi í öryggisráðinu henti það þeirra hagsmunum eða taðgatssleikjum þeirra.
Ekki hefur staðið í þeim t.d. að hindra að Sameinuðu þjóðirnar álykti gegn framferði Ísraelsmanna gegn Palestínumönnum.
En þann vígvöll hafa Bandaríkin grímulaust notað um árabil til að prófa nýungar í hergagnaflórunni.
![]() |
Sammála um ályktun um N-Kóreu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)