Gott að eiga góða að.

Svonefndur Parísarklúbbur, sem er samtök 19 landa og hefur það verkefni að fást við skuldavanda fullvalda ríkja, tilkynntu í dag að allar erlendar skuldir Afganistans við löndin, samtals tæplega 1,1 milljarður dala eða um 140  milljarðar króna, verði felldar niður.

Þessar afskrifuðu skuldir Afgana námu um sem svaraði 4.300, krónum á hvern íbúa. Núverandi skuldir Íslenska ríkisins nema 3.700.000, krónum á hvern íbúa og ekki fyrirséð að þær aukist enn. Afganir geta ekki borgað 4.300 krónur en við skulum borga 3.700.000, og ekkert múður.

Hér er auðvitað ólíku saman að jafna, við getum bara lagt þeim til fúlan fisk, en Afganar hinsvegar sjá Evrópskum ungmennum fyrir um 90% af heróín þörf þeirra og munar um minna.

Þann hlekk má fyrir alla muni ekki rjúfa, eftir að tókst að endurreisa valmúaræktina eftir að Bandamenn „frelsuðu“ landið.  


mbl.is Erlendar skuldir Afganistans felldar niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Góðir punktar hjá þér. Lauslega þessu tengt vil ég benda þér á ítarlega grein sem ég skrifaði um Hamid Karzai fyrir einu og hálfu ári síðan.

Guðmundur Ásgeirsson, 17.3.2010 kl. 18:18

2 Smámynd: Hörður Halldórsson

140 milljarðar.Væri glaður ef skuldir Íslands væru sú tala.

Hörður Halldórsson, 17.3.2010 kl. 20:50

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir innlitin. Ég leit á greinina Guðmundur, þetta er mikil lesning og áhugaverð, kláraði ekki, ætla að líta á restina síðar.

Hörður, já það myndi gleðja fleiri.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.3.2010 kl. 21:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.