Dýr myndi stofninn allur!

Miðað við fjölda þeirra Hvítabjarna sem hafa að jafnaði gengið hér á land s.l. 15 ár og  beinan kostnað við björgun hvers dýrs upp á  11,5 milljónir og rekstrarkostnað björgunarsveitar þá má ætla að   heildarkostnaður við hvert dýr muni nema  um og yfir 22 milljónir.

Það gerir um 55.000, kr pr kíló. Dýr biti það! 

Er ekki rétt að þeir borgi sem áhugan hafa?


mbl.is Dýrt að bjarga hvítabjörnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Mér finnst það þess virði, hugsaðu þér Axel þegar barnabörnin( eða barna barna ?) þín spjalla við þig eftir tuttugu ár og spyrja: Hvað varð um bangsana ? Af hverju gerðuð þið ekkert ?

Finnur Bárðarson, 19.3.2010 kl. 15:18

2 identicon

Sammála Finni í einu og öllu. Einhvernvegin trúi ég samt ekki alveg þessum kostnaðartölum. Það er eins og þær hafi bara verið settar upp til að reyna að réttlæta þessu miskunnarlausu og óþörfu dráp.

Valgeir (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 15:46

3 identicon

Ég er sammála Axel í þessu efni. Er ekki sjálfsagt að þeir sem hafa hvað mestan áhuga á því að standa í bjarnaflutningum milli landa beri kostnaðinn af því? Þetta eru stórhætturleg kvikindi og engin gæludýr.

Guðrún (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 16:05

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Guðrún, Afríka má þakka sínu sæla fyrir að þú hafir ekki sest þar að.

Finnur Bárðarson, 19.3.2010 kl. 16:09

5 identicon

Væri ekki hægt að girða af vænan skika á hálendinu og geyma þar ísbirni sem flæktust hingað? Þó það kostaði segjum 100 milljónir væri örugglega hægt að fá náttúruverndar samtök til að styrkja verkefnið og svo mætti hafa af björnunum tekjur frá ferðamönnum.

Tóti (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 16:27

6 identicon

Eru umhverfisráðherrar að keppa í rugli ? Í fyrra kom fram að grænlendingar vilja ekki sjá ísbirni frá Íslandi  vegna hættu á að þeir beri ef til vill með sér hættulegt smit riðu eða  hver veit hvað þessi dýr éta hér. Það er nóg annað við peningana að gera sem til dæmis fóru í "björgunina" á ísbirninum fyrir norðan um árið og þurfti að ná mynd af umhverfisráðherra á vettvangi. Svo var bóndinn  sem skaut björninn í haust atyrtur fyrir að bjarga lífi sínu og fjölskyldunnar.

Olgeir E. (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 16:28

7 Smámynd: Finnur Bárðarson

"bjarga lífi fjölskyldunnar" maður tárast :)

Finnur Bárðarson, 19.3.2010 kl. 16:49

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 19.3.2010 kl. 16:55

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er auðvitað göfug og falleg hugsun að bjarga bangsa, en algerlega óraunhæf. Að mati kunnugra er öldungis óvíst að þeir birnir sem síðast voru á ferðinni hefðu lifað af björgunaraðgerðir en kostnaðurinn verið sá sami.

Því hefur verið ranglega haldið fram að ísbirnir séu í útrýmingarhættu, þeirri hættu hefur verið afstýrt og stofninn er í vexti.

Mig langar að vísa á eldra blogg mitt um efnið - linkur á hana er hér.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.3.2010 kl. 17:23

10 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Þess má líka geta, að í byggðum sem eru nálægar ísbjörnum eða björnum af einhverjum tagi, hvort sem það er Grænland, Rússland eða Alaska.. ef ekki tekst að reka björninn burt þá er hann skotinn.

Honum er ekki byrlað deyfilyf svo hægt sé að flytja hann einhverja tugi kílómetra í burtu. 

Þess vegna ættu íslendingar ekki að vera að fara út í einhverjar björgunaraðgerðir. Þessir birnir syntu líkast ekki yfir á klakann sér til skemmtunar. Því er nær að þeir hafi gert það í leit af æti.  Svo að eins göfug og þessi hugmynd er, að bjarga bangsa bestaskinni, þá er það bara svo mikil vitleysa að maður sem fer út í svoleiðis kostnað bara til þess að geta sagt barnabörnunum sínum fallegar sögur er ekki við bjargandi.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 19.3.2010 kl. 17:40

11 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég hvet alla bangsa að hefna harma sinna og gadda í sig mannaket

Finnur Bárðarson, 19.3.2010 kl. 19:12

12 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Mannakjöt er örugglega besti matur hafi viðkomandi ekki horfallið.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.3.2010 kl. 19:16

13 identicon

Ég held að bangsabjörgun væri ódýr auglýsingar leið fyrir Íslendinga.  Það væri hægt að koma á lagirnar Ísbjarnargarð.  Við eigum alveg fullt af hæfu fólki til að  sinna því verkefni.

Rabbi (IP-tala skráð) 20.3.2010 kl. 07:35

14 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Eigum við að nota hvað sem er til auglýsa okkur, hversu órökrétt og bjagað það er, Rabbi?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 20.3.2010 kl. 14:03

15 identicon

Frekar en að eyða milljarð í einhverja auglýsingaherferðir og prentun á auglýsinga pésa Axel minn.  Sem er þvílík sóun á papír í þokabót....

Rabbi (IP-tala skráð) 20.3.2010 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.