Hvað hverfur?

Hver er tilgangurinn að leggja niður einhverja stofnun að nafninu til ef starfsemin og kostnaðurinn verður aðeins flutt  óbreytt á  aðra stofnun?

Hættir kostnaðurinn við óeðlilega hernaðarþátttöku Íslendinga að vera til við það eitt að flytja bókhaldslykilinn milli skúffa í utanríkisráðuneytinu?

Hvað breytist?

Ekkert!

Össur ????


mbl.is Varnarmálstofnun lögð niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Sæll Axel

Það er reyndar ekki bara tlað um að flytja þetta yfir á aðra stofnun, heldur dreifa þessu litla starfi á margar stofnanir...

Í mínum huga þýðir það bara eitt... Enn meiri flækja í stjórnkerfinu.

Í raun átti þessi stofnun að vera öll undir hatti Landhelgisgæslunnar þar sem hún er eina stofnunin hjá ríkinu sem hefur í raun eitthvað með varnir landsins að gera.

Kveðja

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 30.3.2010 kl. 21:03

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ef breytingin felur ekki í sér einföldun opinberra útgjalda og sparnað er hún til lítils. Ég sé engan tilgang í sjálfu sér að flytja einhverja "greiningadeild" -njósnir á Íslensku- úr einni skúffunni í aðra. 

Axel Jóhann Hallgrímsson, 30.3.2010 kl. 21:32

3 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Tek undir þetta alla leið. Niðurlögð stofnun, gott mál en kostnaðurinn flyst til...

Sama tóbakið í opinbera geiranum, aldrei hægt að skella í lás, tína lyklinum og hvað þá að segja upp fólki.

Sindri Karl Sigurðsson, 30.3.2010 kl. 21:37

4 identicon

Auðvitað eru þarna fullt af verkefnum sem þarf að sinna áfram en svo má að sjálfsögðu deila um hvaða verkefni mætti hreinlega leggja niður. Það sparast kannski eitthvað í yfirstjórnarkostnaði. Heyrði því fleygt fram að stofnunin væri orðin geymslustaður fyrir verkefnalausa lögfræðinga utanríkisráðuneytisins. En það þurfa allir að hafa vinnu áfram og sennilega á góðum launum :)

En varðandi færslu Kalda þá eru varnir landsins ekki verkefni Landhelgisgæslunnar og ekkert minnst á slíkt í lögum um gæsluna. Það er miklu frekar að lögreglan hafi eitthvað með slíkt að gera. Ég er hins vegar sammála því að mörg verkefni varnarmálastofnunar eiga líklega hvergi betur heima en hjá gæslunni m.a. vegna tengsla gæslunnar við erlend hermálayfirvöld.

Guðmundur (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 22:37

5 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Sæll Guðmundur, Varðandi það að lögreglan hefði frekar með landvarnir að gera en LHG er í meira lagi skrýtin hugsun. Ástæðan er sú að lögreglan hefur með löggæslu að gera ekki hermensku, lögreglan gæti í mesta lagi þjónað her sem herlögregla. LHG er hinsvegar sú stofnun hjá Íslenska ríkinu sem sver sig mest í ætt við hermensku eða í það minsta sjóher(mensku)... Þar liggur munurinn helst.

Svo ef farið er að skoð betur þá sést að til þess að komast að landinu þá þarf yfir haf að fara og er það því LHG sem er löggæsla hafsins umhverfis landið. Að sama skapi þá er LHG eina stofnunin sem hefur yfir flugflota að ráða sem hægt er að nota við eftirlit (njósnir) sem gætu notast til landvarna.

Miðað við þetta get ég ekki séð að lögreglan hafi neitt með landvarnir að gera enda eru löggæslustofnunum oft haldið gangandi í hernumdum löndum til að innrásarlið þurfi ekki að notast við eginn mannafla. Undantekningin á þeirri reglu er Íraksstríðið þar sem allar opinberar stofnanir í Írak voru lagðar niður þegar "bandamenn" unnu það stríð. Það hefur svo verið talað um það sem ein heljarins mistök að hafa lagt niðu lögregluna í Írak þar sem nota mátti hana til að halda uppi lögum í landinu eftir stríðið... Allar aðrar stofnanir en lögregla máttu missa sín þar.

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 31.3.2010 kl. 17:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.