Mér er í dag dóttursonur fæddur

Yngri dóttir mín,  Ingibjörg Axelma og hennar maður,  Alistair Jón, eignuðust myndarstrák um miðjan dag  í dag.

Fæðingin gekk bæði fljótt og vel fyrir sig og móður og barni heilsast vel. Benjamín er 51 cm og 3760 gr.

Þá eru fjögur barnabörn í höfn og það fimmta á leiðinni.

Þetta verður gott ár.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Gæfumaður, Axel. Til hamingju!

Heimir Lárusson Fjeldsted, 7.5.2010 kl. 19:27

2 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Flottur! Innilegar hamingjuóskir.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 7.5.2010 kl. 19:27

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir það elskurnar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.5.2010 kl. 19:28

4 Smámynd: hilmar  jónsson

Til hamingju kæri bloggvinur.

hilmar jónsson, 7.5.2010 kl. 20:18

5 identicon

Við erum mjög rík elsku ástin mín

Herborg Þorláksdóttir (IP-tala skráð) 7.5.2010 kl. 20:24

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk Hilmar

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.5.2010 kl. 20:34

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk elskan, sömuleiðis, Bryndís og Hallgrímur báðu að heilsa.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.5.2010 kl. 20:35

8 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Til hamingju Axel og bestu óskir til nýbakaðra foreldra líka, á sjálfur 4 barnabörn.

Kristján Hilmarsson, 7.5.2010 kl. 20:43

9 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Ég er svo aldin að ég á 13 barnabörn og bíð eftir fyrsta langömmubarninu sem er væntanlegt í júní. Enn og aftur til lukku Axel!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 7.5.2010 kl. 20:48

10 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þakkir Kristján.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.5.2010 kl. 20:49

11 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Vá Silla, þú ert efnuð þykir mér og til hamingju. Það er nokkuð langt í langafabarn hjá mér.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.5.2010 kl. 21:14

12 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Til hamingju félagi bloggvinur

Jón Snæbjörnsson, 7.5.2010 kl. 21:44

13 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk Jón. Við svona tilefni líður manni eins og fugli sem nær fluginu í fyrsta skiptið.  

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.5.2010 kl. 21:52

14 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Innilegar hamingjuóskir Axel. Þetta verður frábært ár!!!

Guðmundur St Ragnarsson, 8.5.2010 kl. 01:06

15 Smámynd: Árni Gunnarsson

Til hamingju með piltinn! Nú er ég farinn að basla við að halda tölunni á langafabörnunum

Árni Gunnarsson, 8.5.2010 kl. 07:13

16 identicon

Frábært! Til hamingju með það!!

DoctorE (IP-tala skráð) 8.5.2010 kl. 12:18

17 identicon

Heill og sæll; Axel Jóhann - sem og, þið önnur, hér á síðu hans !

Mínar innilegustu hamingjuóskir; ykkur feðginum til handa, með nýja fjölskyldumeðliminn, Axel minn.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 8.5.2010 kl. 16:05

18 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þakkir, ég fór og kíkti á gæjann í morgun, fjallmyndarlegur eins og afinn.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 8.5.2010 kl. 16:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband