Nakið varnarleysi

Það er merkilegt með þessa miklu þjóð Bandaríkin sem virðist ekkert ómögulegt, hvort heldur það er að leggjast í víking um heiminn hægri vinstri til bjargar frelsinu, senda menn til tunglsins eða skjóta forsetana sína reglulega, skuli vera gersamlega varnarlaus og fara á hliðina í hvert sinn sem nakin mannvera sést á almannafæri.

 
mbl.is Sektuð fyrir að koma nakin fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Helsta vandamál bandaríkjamanna er kristni... Ég býst fastlega við því að á endanum liðist bandaríkin í sundur, svona eins og sovétríkin... þau munu skiptast niður í Ameríkana í Ameríku vs Kristnir í Jesúlandi.

Biblían og flest trúarrit byggja algerlega á tribalisma.. tribalismi getur bara sundrað þjóðum

Mark my words....

doctore (IP-tala skráð) 18.8.2010 kl. 15:06

2 Smámynd: Landfari

Það er svolítið magnað að það verður allt vittlaust þarna ef sést í bert hold en enginn kippir sér upp við það þó maður sé skotinn í tætlur eða limlestur á annan hátt.

Hérna um árið var það blaðaefni í fleir daga að einhver söngkona hafði mistt annað brjóstið upp úr brjóstahaldaranum á sviði í eitt sekúndubrot. En það er ekki fréttaefni hvað margir eru skotnir á dag í þessu byssulandi.

Landfari, 18.8.2010 kl. 16:29

3 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Blygðunarkennd Bandaríkjamanna fer stigversnandi með ári hverju, a.m.k kemur það þannig fyrir sjónir.

Þeim á örugglega eftir að detta það í hug einhvern daginn að markvisst sekta mæður fyrir að börnin þeirra séu ekki í fötum er þau koma í heiminn.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 18.8.2010 kl. 16:32

4 identicon

Það fer nú eftir því hvar þú ert staðsettur í bandaríkjunum.

Hérna í San Francisco eru þeir t.d. mun frjálslegri en á íslandi.

Hef oftar en ekki séð fólk hjóla hér um alsnakið, ásamt því að það er ekki óalgengt að sjá bert fólk í skrúðgöngum eða öðrum "viðeigandi" viðburðum.

Ekki ósvipað og að tala um nekt í Þýskalandi vs. Tyrklandi eða Vatíkaninu.

bmson (IP-tala skráð) 18.8.2010 kl. 17:13

5 Smámynd: Landfari

Eru reglurnar þá svona mismunandi eftir fylkjum eða var bara enginn nærri sem langaði til að kæra?

Landfari, 18.8.2010 kl. 17:20

6 identicon

Þær eru mjög mismunandi eftir fylkjum.

Hvort sem það séu hjúskapar-, byssu- eða lög um nekt.

Bandaríkin er í rauninni 50 lítil lönd sem eru jafn misjöfn og þau eru mörg.

bmson (IP-tala skráð) 18.8.2010 kl. 17:39

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir innlitið og innleggin.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 18.8.2010 kl. 17:54

8 identicon

Það er merkilegt með þessa miklu þjóð Íslendinga, sem fara í útrás um allan heim, setja allt bankakerfið á hausinn ,afskrifa  miljarða lán hjá bankaelítunni skuli vera gersamlega varnarlaus þegar að einhver hleypur á nærbuxunum út á knattspyrnuvöll og er sennilega gert að greiða 50000kr í sekt fyrir atvikið. Svo maður tali nú ekki um landann sem roðnar upp fyrir haus ef heyrist af einhverri konu sveifla sér um á súlu.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 18.8.2010 kl. 18:55

9 identicon

ég bjó nú í bandaríkjunum um nokkurt skeið,það er að vísu mjög rétt að margir eru verulega firtir en ég verð nú einnig segja það að íslendingar eru mjög líkir þeim,í anda og þroska,við erum ekki eins evrópsk og við viljum halda,erum mun nær ameríkananum í hegðun en gerum okkur grein fyrir.

Svavar (IP-tala skráð) 18.8.2010 kl. 19:16

10 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég er nokkuð viss um að áhorfendur hafi haft lúmskt gaman að þessu innhlaupi Rafn og að enginn hafi lokað augunum af blygðun. Maðurinn verður væntanlega sektaður fyrir að raska leiknum frekar en fyrir blygðunarbrot.

Ég þekki engan sem fékk roða í kinnar yfir súlustöðunum, gerir þú það Rafn?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 18.8.2010 kl. 19:26

11 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég er ekki sammála þessari greiningu þinni Svavar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 18.8.2010 kl. 19:28

12 identicon

"Ég er ekki sammála þessari greiningu þinni Svavar."

Hver er sammála sannleikanum?

Ég er búinn að segja þetta í mörg ár og held áfram að segja þetta sama og Svavar. Ísland er og verður ávallt litlu Bandaríkin.

Þórir (IP-tala skráð) 18.8.2010 kl. 21:02

13 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þá þarf ekki frekari vitna við.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 18.8.2010 kl. 21:44

14 identicon

Tek undir med Svavar.

Er búsettur í San Francisco og við erum likari mörgum fylkjum Bandaríkjana en mörgum löndum Evrópu.

bmson (IP-tala skráð) 18.8.2010 kl. 23:22

15 Smámynd: Sigurður Jökulsson

Svo má ekki gleyma að á Íslandi væri þetta einnig ólöglegt, þar sem að hún hefur tekjur af nekt sinni..

Sigurður Jökulsson, 19.8.2010 kl. 00:51

16 identicon

Leiðrétta Sigurð:

Hún hefur tekjur af tónlistinni sinni.

Ætli þetta hafi ekki fátt að segja um söluna á laginu (fyrir utan að vera publicity stunt).

Gunnar (IP-tala skráð) 20.8.2010 kl. 08:29

17 Smámynd: Óskar Arnórsson

Það er eitthvað verulega bogið við Ísland og Íslendinga...eitthvað voðalega heimskt og barnalegt...ætli sé eitthvað að þeim sem þeir geta ómögulega skilið sjálfir?...ég sá t.d. þessa nöktu konu 150 sinnum og mér finnst ekkert varið í myndina...var hún skotinn í alvörunni?...

Óskar Arnórsson, 22.8.2010 kl. 00:16

18 Smámynd: Landfari

Er ekki eitthvað verulega bogið við þig Óskar að horfa á þetta 150 sinnum ef þér finnst ekkert varið í myndina?

Landfari, 23.8.2010 kl. 11:18

19 Smámynd: Óskar Arnórsson

ja, bogið við mig? Hvernig ætti ég að geta vitað það? Ég er jú íslendingur sjálfur... ég er komin upp í 250 sinnum núna...iss hvað Þetta er leiðinleg mynd...

Óskar Arnórsson, 23.8.2010 kl. 11:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.