Frábær orkusparnaðar hugmynd

dbrn888lÁ útvarpi Sögu er þáttur sem heitir Okurvaktin. Þar taka Arnþrúður útvarpsstjóri og  Svana, held ég að hún heiti, fyrir verðlagsmál allskonar. Margar góðar ábendingar koma þar fram m.a. frá hlustendum, en margt er hinsvegar gersamlega á hinum endanum og alger steypa.

Í morgun voru þær stöllur m.a. að ræða bensínverðið, sem var að hækka um 6 krónur, þeim blöskraði eðlilega verðið á dropanum og eru ekki einar um það.

cars_2Og  þær vissu hvernig hægt væri að spara dýrmætt bensínið. Það væri leikur að láta bílinn renna niður brekkur. Það væri t.a.m. hægt að láta bílinn renna úr Breiðholtinu og alla leið niður í bæ. Svo væri hægt að fá kranabíl til að draga bílinn upp brekkurnar, til að spara bensínið!

Segið mér að þessi snilld hafi hvarflað að ykkur!

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Axel. Það má ekki útiloka það, hvað örvæntingarfullt fólk gerir, þegar það verður að komast í vinnuna, en á ekki fyrir bensíni til að komast í vinnuna!

Það er því miður margt fólk sem ekki getur stundað vinnu, þótt það vilji, vegna þess að það hefur ekki efni á að koma sér til og frá vinnu. Þetta er sorgleg staðreynd, sem sjaldan er talað um í fréttum íslenskra fjölmiðla.

Það tekur langan tíma að labba eða taka marga strætóa milli austurs og vesturs í henni Reykjavík, sérstaklega ef fólk þarf að koma börnum á leikskóla í leiðinni!

Það eru ennþá bara 24 tímar í sólarhringnum, og fólk þarf víst ennþá að elda mat, borða matinn og vera með börnunum sínum og sofa nokkra tíma á sólarhring?

 M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 8.7.2011 kl. 23:03

2 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Hvað kostar að láta kranabíl toga sig í Breiðholtið?

Ég segi bara eins og unglingarnir fyrir nokkrum árum líklega, Djísös maður. Gáfur eru gull!

Bergljót Gunnarsdóttir, 9.7.2011 kl. 00:41

3 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Eru þessar kvinnur að gera grín að fólki eða hvað. Ég er sammála þér Anna Sigríður, en þessi vitleysa þeirra þarna á Sögu ríður ekki við einteyming. Ef þær eru að grínast, held ég að fáum sé hlátur í hug. 

Bergljót Gunnarsdóttir, 9.7.2011 kl. 00:48

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sumir eru svo birgir af viti að þeir geta haft vit fyrir öðrum.

Það er engu líkara en margir sem hringja inn á útvarpsstöðina trúi því að útvarpsstýran sé ný stigin niður af krossinum.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.7.2011 kl. 01:03

5 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Þá á hún bara eftir að rísa upp aftur, eða hvað, og bíða svo ansi mikið lengi eftir að tekið sé mark á henni, eða er það ekki einhvernveginn þannig?

Bergljót Gunnarsdóttir, 9.7.2011 kl. 01:07

6 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Það eru bersýnilega miklar mannvitsbrekkur þarna á ferð.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 9.7.2011 kl. 10:23

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Mestu mannvitsbrekkurnar eru í kjörstöðu í þessari orkukrísu, þær geta látið sig renna niður eigin brekku, fram og til baka.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.7.2011 kl. 10:59

8 identicon

Kannski ættu Saga og Omega að íhuga sameiningu

DoctorE (IP-tala skráð) 9.7.2011 kl. 11:24

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þá hitti skrattinn ömmu sína.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.7.2011 kl. 11:37

10 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Flott hugmynd DoctorE

Bergljót Gunnarsdóttir, 9.7.2011 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband