Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Nýjustu færslurnar
- Trúverðugleiki Bergþórs
- Meðvirknin nær út fyrir Miðflokkinn
- Í framhaldi af því gos-tímabili sem að nú er hafið; að þá er rétt að halda til haga nýjum gögnum um VATNSLEIÐSLUR sem að munu renna í átt að höfuðborgarsvæðinu:
- Boðsmótið hefst 27. nóv
- Á hið góða að koma með friði frá Bandaríkjunum heimsófriðar valdinum mesta ? !!
- Viðreisn kyndir undir innanlandsófriði
Nýjustu albúmin
Eldri færslur
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Ófreskjan frá Utøya vill fá að halda áfram sínum óhæfuverkum
25.7.2011 | 11:38
Norska ófreskjan Anders Behring Breivik sprengdi sprengjuna í Osló aðallega í þeim tilgangi að skapa sér svigrúm og tíma til að framkvæma voðaverkin á Utøya.
Það er greinilegt að krafa hans að fá nánast að halda blaðamannafundi við dómsmeðferðina, til að útlista svartnættis hugmyndafræði sína, er aðeins enn einn liðurinn í árás hans á Norsku þjóðina.
Til að strá salti enn frekar í gapandi und norska samfélagsins vill ódámurinn fá að klæðast, við réttarhöldin, einkennisbúningi norskahersins, búningnum sem hann réðst gegn.
Það má aldrei verða, öll réttarhöldin verða að vera lokuð, það verður að koma í veg fyrir að ódámurinn geti útvíkkað enn frekar sitt ódæði með einhverjum leiksýningum meðan á réttarhöldunum stendur.
Ekki þarf að fara í grafgötur með þá ofsa reiði sem ríkir í Noregi i garð þessa manns. Ég yrði ekki hissa þó eitthvað svipað myndi gerast og þegar Jack Leon Ruby tók lögin í sínar hendur eftir morðið á John F. Kennedy.
Minntust látinna með þögn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 11:52 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Tenglar
Mínir tenglar
- MYNDAALBÚM Ljósmyndir síðuhafa
- Skagaströnd Heimasíða Sveitarfélagsins Skagaströnd
- Húnahornið Fréttavefur Húnvetninga
- LJÓSMYNDASAFN SKAGASTRANDAR
Heimsóknir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 1027596
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- axelma
- beggo3
- emilssonw
- snjolfur
- saemi7
- asthildurcesil
- thorsteinnhgunnarsson
- jensgud
- reykur
- joningic
- nafar
- bofs
- olijon
- gthg
- olafurjonsson
- kristjangudmundsson
- mosi
- josefsmari
- hlf
- johanneliasson
- svarthamar
- heidarbaer
- thruman
- ludvikjuliusson
- stefanjul
- axelaxelsson
- svanurg
- viggojorgens
- rlingr
- boggi
- fosterinn
- arikuld
- trj
- kliddi
- kristbjorn20
- ksh
- helgigunnars
- maggib
- prakkarinn
- hecademus
- skari60
- gudjul
- jonsnae
- krissiblo
- aztec
- kristjan9
- gisgis
- komediuleikhusid
- flinston
- muggi69
- gorgeir
- keh
- arnorbld
- gullilitli
- skarfur
- sveinne
- zerogirl
- finni
- kaffi
- taraji
- keli
- gretarmar
- zeriaph
- fun
- seinars
- hordurj
- esgesg
- jonhalldor
- icekeiko
- kjarri
- siggisig
- bjornbondi99
- gullaeinars
- gustichef
- gusg
- raftanna
- himmalingur
- baldher
- minos
- huldumenn
- valli57
Athugasemdir
Lokuð réttarhöld og svo dæma hann í einangrun til dauðadags; Hugsa að það komi lang verst við hann.
doctore (IP-tala skráð) 25.7.2011 kl. 12:01
Það verður honum þungbært að fá ekki að gera sig breiðan fyrir framan myndavélarnar. En því miður er hæsta hámarks refsing aðeins 21. árs fangelsi. Ég hygg að enginn afsláttur verði gefin af því.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.7.2011 kl. 12:23
Quisling karlinn hefur átt þann heiður óskiptan fram að þessu að vera hataðasti maður Noregs. Hann vann sér það til að nafn hans er alþjóðlegt orð yfir svikara.
Breivik hefur sennilega tekist að toppa Quisling. Það má mikið vera ef svona hryðjuverkamenn verði ekki framvegis kallaðir Breivíkingar.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.7.2011 kl. 12:32
Já það er ótrúlegt sem er að koma í ljós, eins og að hann vildi komast yfir kjarnorkuvopn og eiturefni til að geta drepið sem flesta. Svona maður á aldrei að fá að ganga laus framar, hann er gangandi tímasprengja. Þeir hljóta að geta komið því svo fyrir að hann eyði restinni af lífinu bak við rimla og lás og slá.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.7.2011 kl. 12:47
Ég er ekki fylgjandi dauðarefsingum, en játa að þegar svona gerist velti ég því fyrir mér hvort ég ætti að endurskoða þá afstöðu.
En það er deginum ljósara að í refsilöggjöfina hér á landi og í Noregi vantar heimild, í svona tilvikum, að dæma menn í lífstíðarfangelsi í réttri merkingu þess orðs, án möguleika á náðun.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.7.2011 kl. 13:05
Mér finnst mest "skondið" að sjá kristna fara í himnaleikfimi til að sýna að gaurinn hafi ekki verið kristinn .. hlægilegir alveg: Menn þurfa ekki nema bara það að horfa á videóið sem aulinn gerði til að sjá að þar á ferð er ofurkrissi af verstu sort.
JVJ sver hann af sér.. en þessi gaur vildi fá kaþólska kristni aftur, enga presta í gallabuxum og svona..
doctore (IP-tala skráð) 25.7.2011 kl. 13:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.