Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Nýjustu færslurnar
Nýjustu albúmin
Eldri færslur
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Látum ekki okkar (drasl) eftir liggja, þessa helgi
27.7.2011 | 17:30
Verslunarmannahelgin er framundan, hjá mörgum hefst hún í kvöld eða á morgun.
Íslenskt veður er óútreiknanlegt og hefur gert mörgum manninum marga skráveifuna þessa helgi.
En samt sem áður storma þúsundir landsmanna á vit ævintýranna og óvissunnar um þessa helgi, ár eftir ár.
Góða skemmtun Íslendingar, hvernig sem veðrið verður.
Komið heil heim og auðvitað með allan farangurinn, látið ekki ykkar dót eftir liggja!
Margir á flugi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:14 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Tenglar
Mínir tenglar
- MYNDAALBÚM Ljósmyndir síðuhafa
- Skagaströnd Heimasíða Sveitarfélagsins Skagaströnd
- Húnahornið Fréttavefur Húnvetninga
- LJÓSMYNDASAFN SKAGASTRANDAR
Heimsóknir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 1027595
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- axelma
- beggo3
- emilssonw
- snjolfur
- saemi7
- asthildurcesil
- thorsteinnhgunnarsson
- jensgud
- reykur
- joningic
- nafar
- bofs
- olijon
- gthg
- olafurjonsson
- kristjangudmundsson
- mosi
- josefsmari
- hlf
- johanneliasson
- svarthamar
- heidarbaer
- thruman
- ludvikjuliusson
- stefanjul
- axelaxelsson
- svanurg
- viggojorgens
- rlingr
- boggi
- fosterinn
- arikuld
- trj
- kliddi
- kristbjorn20
- ksh
- helgigunnars
- maggib
- prakkarinn
- hecademus
- skari60
- gudjul
- jonsnae
- krissiblo
- aztec
- kristjan9
- gisgis
- komediuleikhusid
- flinston
- muggi69
- gorgeir
- keh
- arnorbld
- gullilitli
- skarfur
- sveinne
- zerogirl
- finni
- kaffi
- taraji
- keli
- gretarmar
- zeriaph
- fun
- seinars
- hordurj
- esgesg
- jonhalldor
- icekeiko
- kjarri
- siggisig
- bjornbondi99
- gullaeinars
- gustichef
- gusg
- raftanna
- himmalingur
- baldher
- minos
- huldumenn
- valli57
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Mér finnst besta að vera bara heima. Home sweet home!
Flott nýja myndin af þér. Hvað eru að drekka svona glæsilegt.
Bergljót Gunnarsdóttir, 27.7.2011 kl. 17:47
Ég segi það sama Bergljót, ég hef aldrei verið mikill verslunarmannahelgarmaður, heima er best þegar allir hinir eru að keppa hver við annan úti á þjóðvegunum.
Takk fyrir, myndin er tekin á Tenerife, ég man ekki hvaða sull þetta er, einhver bragðgóður kokteillinn þó.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.7.2011 kl. 17:55
Heima er best um þessa helgi og ég er hrædd um að draslið verði víða og það mikið
Ásdís Sigurðardóttir, 27.7.2011 kl. 19:30
Ég óttast það Ásdís, að draslið verði yfirgengilegt.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.7.2011 kl. 19:50
Ég verð nú að vera sammála ykkur hér að ofan.
Eftir að hafa alist upp á stað sem dróg að sér margmennið um akkúrat þessa helgi, þá hef ég alla tíð aldrei verið mikið fyrir það að fara neitt um þessa helgi. Enda hef ég aldrei gert það.
Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 27.7.2011 kl. 23:37
Ég á hús á Bídudal líka og þar höfum við dvalist sumrin löng, þó það verði stopulla með árunum, því húsið er lítið og fjölskyldan stór.
Eitt sinn fyrir Verslunarmannahelgina var ég spurð, hvert ætlið þið að fara um helgina og mér varð á að svara, við erum farin og komin hingað. Þetta þótti spyrjandanum ansi slakt, því maður fer bara eitthvað annað. Ég var svo vitlaus að átta mig ekki á þessu en þarna í Bíldudalssælunni er besti staðurinn að vera á í fríi að mínu mati, fyrir utan þetta gamla góða, að vera bara heima og njóta þess líka.
Bergljót Gunnarsdóttir, 28.7.2011 kl. 01:24
Hvað draslið snertir verður það alltaf meira og meira, en mitt álit er að því meira því auðvelara að raka saman.
Bergljót Gunnarsdóttir, 28.7.2011 kl. 01:26
Það er verst hvað unga fólkið er kærulaust varðandi verðmætin. Það er jafnvel keyptur búnaður fyrir tug þúsundir og svo er allt skilið eftir að gleðinni lokinni.
Reyndar er það ekki bara unga fólkið. Ég man hvað ég varð hissa fyrir nokkrum árum þegar jólatré fóru að sjást utan lóðamarka eftir jólin með skrauti, seríum og alles, tilbúin að stinga í samband. Þá nennti fólk ekki að tína af trénu og lét bara allt gossa. Það mátti jú alltaf kaupa nýtt skraut fyrir næstu jól.
Þetta hefði þótt glæpur í mínu uppeldi.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.7.2011 kl. 06:52
Því miður er það oft svo að unglingarnir drekka sig útúrfulla, æla og pissa jafnvel inni í tjöldin hver hjá öðrum, þannig að skelþunnir geta þeir bara ekki hugsað sér að taka saman viðlegubúnaðinn, hvað þá þegar tjaldið er fullt af drasli og óþrifnaði.
Bergljót Gunnarsdóttir, 28.7.2011 kl. 09:21
Ekki ósennileg skýring. Ég kannast sjálfur við þessi ólukkans ónot, en lét aldrei mitt eftir liggja, þá sjaldan ég álpaðist á svona samkomur, enda þekktist slíkt einfaldlega ekki í þá daga og hefði orðið hverjum þeim sem það gerði til minnkunar.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.7.2011 kl. 09:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.