Lausn Manson væri móðgun við mannkynið.

Það verður eflaust forvitnilegt að sjá hvaða siðferðis- og lagalegu rök lögfræðingur  Charles Manson færir fram í tilraun sinni að fá hann lausan frá lífstíðarlöngum dómi hans, sem upphaflega var dauðadómur.

Skrímslið Manson má aldrei aftur, undir neinum kringumstæðum, um frjálst höfuð sér strjúka, það væri vanvirðing við minningu fórnarlamba hans og móðgun við almenna siðferðiskennd.

  


mbl.is Ný mynd birt af Charles Manson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vonandi margir sammála þér Axel Jóhann, allavega ég sem man þennan atburð.

Aðalbjörn Steingrímsson (IP-tala skráð) 7.4.2012 kl. 09:46

2 identicon

Það er nú bara reglulegur lögmannaviðburður að fá að ropa upp úr sér lausnarbeiðni fyrir kallinn og fá enn eitt nei-ið.

Þetta er dálítið hátíðlega orðað í fréttinni; hlusta á rök.. bleble.. held nú samt að það sé yfirleitt lesin sama ræðan og síðast.

Og hvaða dómari ætli hafi áhuga á því að verða frægur að endemum fyrir að sleppa Charles Manson?

Það er fyrir lifandis löngu búið að ákveða að hann geispi golunni innan fangelsisvegga.

Jói (IP-tala skráð) 7.4.2012 kl. 15:40

3 identicon

Djö.. er ég sammála þér Axel.

Þetta morðóða kvikindi á að geyma í skólpræsi það sem eftir lifir af hans aumkunarverða lífi.

runar (IP-tala skráð) 16.4.2012 kl. 11:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband