Er fullur aðskilnaður á búk Bashar al- Assad og höfði, helsta friðarvonin?

al-AssadHvað þarf Bashar al-Assad forseti Sýrlands að brjóta marga samninga og yfirlýsingar um að stöðva bardagana, áður en Kofi Annan og aðrar slíkar fígúrur átta sig á því að ekki fylgir hugur máli hjá forsetanum.

Eitt skil ég ekki, í svona stríðsrugli eins og í Sýrlandi. Samkomulag náðist í síðustu viku um vopnahlé! Þá hefði mátt ætla að bardögum yrði hætt strax! Nei ekki aldeilis, samþykkt var að menn héldu áfram í viku til viðbótar að drepa hvern annan, en hættu svo!

Reynslan segir hinsvegar að lítil von sé til þess að bardögum í Sýrlandi ljúki fyrr en fullur aðskilnaður hefur átt sér stað á búk forsetans og höfði.


mbl.is Vopnahlé eins og olía á ófriðarbál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Axel Jóhann; æfinlega !

Reyndar; voru hinir fornu Assýringar (Assýríumenn), forfeður þorra núverandi Sýrlendinga, grimmlyndir mjög, og gáfu Spartverjum - sem ýmsum annarra, lítt eftir, í þeim efnum.

Gæti hugsast; að augnlæknirinn Assad (sem reyndar; átti ekki að verða Forseti þar eystra - heldur; eldri bróðir hans, sem fórst í bílslysi), sæki til hins eldforna þjóðararfs síns, sem ég gat hér um, í byrjun, fornvinur góður.

Með beztu kveðjum, sem jafnan, í útsuðrið, héðan; að austan /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 8.4.2012 kl. 22:58

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Assad hangir auðvitað á roðinu eins og aðrir hundar, meðan honum er  stætt þó hann viti að hans tími sé bæði kominn og liðinn.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 8.4.2012 kl. 23:36

3 identicon

Heill; á ný, Axel !

Nákvæmlega; á þessa vegu, má álykta, Axel minn, sýnist mér.

Sömu kveðjur - sem seinustu /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 9.4.2012 kl. 01:12

4 Smámynd: el-Toro

getur verið snúið að stoppa bardaga í sýrlandi þegar ríku persaflóaríkin dæla peningum og vopnum (að beiðni bandaríkjanna og fleirri) til uppreysnarmanna sýrlands.  þess vegna er uppreysnin orðin svolítið stærri í sniðunum heldur en hún þyrfti annars að vera.  vígamenn frá írak eru farnir að tvinna sér stakk innan um uppreysnarflokkana....alveg eins og í Líbíu.

Þegar ríki styðja með öllum tiltækum ráðum vopnaða uppreysn í fullvelda landi...hvað köllum við það aftur....

...JÚ, ÞAÐ KALLAST HRYÐJUVERK.

en auðvitað má kalla aðgerðir Assad ALLT OF grófar miðað við magn uppreysnar.  en hvað á kallin að gera eftir það sem gerðist í Líbíu...???

stríð er alltaf viðbjóður....þess vegna sem þegn vestræns samfélags finnst mér ömögurlegt að vera á annari hlið slíks stríðs sem geysar í Sýrlandi.

el-Toro, 9.4.2012 kl. 12:46

5 Smámynd: el-Toro

gleymdi að ég ætlaði að láta þessa frétt fylgja með úr DV:

http://www.dv.is/frettir/2012/4/1/andofsmenn-launaskra/

el-Toro, 9.4.2012 kl. 12:47

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það virðist litlu breyta el-toro, hvort þessi eða hinn er við völd í arabaríkjunum. Skítur kemur í stað kúks.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.4.2012 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband