Barnapössun Sáms frænda ehf.

engaráhyggjurJæja þá er Sámur frændi kominn aftur til að passa litlu sætu ungana sína. Komi útkall þá sprettur Sámur frændi á fætur, skiptir um bleyju, hitar pelann og kemur ungunum sínum aftur í ró á fimm til tíu mínútum.

Enginn skákar Sámi frænda í barnapössun, hann víkur ekki af verðinum. Við getum sofið róleg meðan Sámur frændi vakir yfir okkur, litlu krílunum.

 
mbl.is Bandaríkjamenn sinna loftrýmisgæslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stefán Júlíusson

Mogginn þekkir ekki muninn á F-15 og F-22 ;)

Stefán Júlíusson, 8.5.2012 kl. 16:47

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Krakkarnir á Mogganum myndu ekki þekkja sundur fugladrit og risaeðluskít, þó þeir ættu að vinna það sér til lífs.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 8.5.2012 kl. 16:58

3 Smámynd: Stefán Júlíusson

Vonandi eru þeir jafn klárir Rússa megin;)

Stefán Júlíusson, 8.5.2012 kl. 17:05

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Rússarnir eru mun klárari, þeir eyddu t.d. ekki, eins og kaninn, miljörðum til að finna upp blekpenna fyrir geimfara, sem væru nothæfir í þyngdarleysi.

Rússarnir eyddu nokkrum rúblum í þennan tæknilið og notuðu blýanta, sem virkuðu mun betur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 8.5.2012 kl. 17:17

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Reyndar eru bæði F-15 og F-22 þota á myndinni.

Hinsvegar er þetta hvorki meira né minna en í annað sinn sem mbl.is notar þessa sömu mynd úr safni og kallar báðar þoturnar F-15 í myndatexta.

Guðmundur Ásgeirsson, 8.5.2012 kl. 21:52

6 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Gleymdu hinar þjóðirnar sem voru að passa okkur bæði pelanum og dúsunni?

Hvaða munur er á fugladriti og risaeðluskít ef út í það er farið, já eða svona tittlingaskít.

Bergljót Gunnarsdóttir, 8.5.2012 kl. 22:54

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Aha þar kemur skýringin á herþyrlunni sem hér flaug yfir. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.5.2012 kl. 09:54

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það væri til að mynda mikill munur á því Bergljót, að fá fugladrit í höfuðið eða "dino-dropping", engin tittlingaskítur það.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.5.2012 kl. 22:22

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

..og leið þér ekki betur að heyra hljóðin í bjargvættunum fljúga hjá, Ásthildur?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.5.2012 kl. 22:26

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei eiginlega ekki.   Varð undrandi frekar.  Hugsaði Hvað er nú að gerast??

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.5.2012 kl. 23:28

11 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er ámælisvert að almenningur skuli ekki vera meðvitaður um það öryggis sem hann býr við á þessum síðustu og verstu ..... .

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.5.2012 kl. 23:35

12 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Líklega myndi ég bara droppa dead, skyldi ég verða fyrir droppinu úr næstu risaeðlu sem flýgur yfir. 

Bergljót Gunnarsdóttir, 9.5.2012 kl. 23:43

13 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sem betur fer er sú hætta ekki fyrir hendi lengur Bergljót.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.5.2012 kl. 00:02

14 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Ó ! 

Bergljót Gunnarsdóttir, 10.5.2012 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband