Framsóknarmaðurinn Obama

obama greenFramsóknarmenn efast ekki um sigur Obama í kosningunum á þriðjudaginn eftir stuðnings- yfirlýsingu Framsóknarflokksins við hann.

Það er trú Sigmundar Davíðs að Bandarískir framsóknarmenn allra flokka munu svara kalli íslenska móðurflokksins og tryggja kjör þeirra manns.

Utan Framsóknarflokksins vöktu  fréttir af viðbrögðum forsetans enga undrun. Forsetinn varð samkvæmt áræðanlegum heimildum, gubbugrænn í framan þá þegar hann hafði spurnir af stuðningsyfirlýsingu Framsóknarflokksins.

Mitt Romney mun hafa brugðist hart við og vottað forsetanum hluttekningu sína.


mbl.is Framsóknarflokkurinn styður Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skv. þessari mynd er hann kálhaus :)

Ásdís Sigurðardóttir, 5.11.2012 kl. 12:14

2 Smámynd: hilmar  jónsson

Ég fékk hláturskast þegar ég las yfirlýsingu Lúðaflokksins.

hilmar jónsson, 5.11.2012 kl. 12:22

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ásdís, kálhausinn er afleiðingin af framsóknargenunum.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.11.2012 kl. 13:12

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Verst er að maður veit ekki Hilmar, hvernig á að flokka þetta rusl.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.11.2012 kl. 13:13

5 Smámynd: hilmar  jónsson

Ja, það er allavega ekki hægt að endurvinna það lengur..

hilmar jónsson, 5.11.2012 kl. 13:22

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

En ég trúi því að forsetinn sigri, þrátt fyrir að hafa verið bendlaður við Framsókn. Sigur hans verður þá enn glæsilegri fyrir vikið.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.11.2012 kl. 13:22

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er rétt hjá þér Hilmar, þetta er orðið að "hreinu" rusli og verður ekki endurnýtt frekar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.11.2012 kl. 13:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband