Eru fjölskylduorgíur það sem koma skal?

Samkvæmt frétt á Vísi.is þá vill Einingalistinn í Danmörku afnema úr lögum, bann við kynlífi systkina. Málið hefur vakið mikla athygli úti þar og samkvæmt fréttinni snýst umræðan aðallega um lögfræðihliðina og einhvern undarlegan samanburð á þessu kynlífi og hinu í bland við gamla forræðishyggju drauginn, en ekki er minnst á siðferðislegu hliðina.

Það kann að vera að menn geti talað sig út í það öngstræti að kynlíf milli systkina ætti ekki að vera refsivert en það er mér hulin ráðgáta hvernig þetta lið ætlar að rökstyðja það fyrir óbrengluðu fólki að kynlíf milli systkina sé eðlilegt, siðlegt og sjálfsagt.

Hvað á að lögleiða næst, kynlíf foreldra og barna?

Á hvaða leið er þetta lið, eða er það bara ég sem sé ekki „ljósið“?

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta er nú ógeðslegt í mínum huga. Hvernig er hægt að hugsa til enda kynlíf milli systkina?

Ásdís Sigurðardóttir, 6.11.2012 kl. 12:36

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég segi það sama Ásdís. Mér er spurn; hvað er það sem rekur fólk til þess hugsa þetta hvað þá að leggja þetta til? Svarið er einfalt í mínum huga, það hlýtur að eiga "hagsmuna að gæta".

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.11.2012 kl. 12:59

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

svei mér þá, vil ekki skilja svona lagað.

Ásdís Sigurðardóttir, 6.11.2012 kl. 13:34

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ásdís, ég held ég muni það rétt að samkvæmt íslenskum lögum mega systkinabörn giftast og eiga börn.

Þetta vefst nokkuð fyrir mér. Sú hugsun er mér nokkuð framandi að geta mögulega átt langafabörn þar sem ég væri afi beggja foreldra þeirra.

Ég er kannski svona gamaldags.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.11.2012 kl. 14:33

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, held að þetta sé rétt hjá þér með systkynabörn, finnst það líka skrítið eins og þér, því ég er það skild mínum frændum finnst mér að sambland við þá væri fásinna.

Ásdís Sigurðardóttir, 6.11.2012 kl. 15:22

6 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

http://en.wikipedia.org/wiki/Inbreeding

Það eru meiri líkur á því að barn fæðist með erfðagalla deili foreldrar genum, heldur en að börn erfi líkamlega / andlega fötlun frá foreldrum sínum.

Það eru bara vissar fatlanir sem erfast frá einum aðila til annars, ekki allar. Margar fatlanir eru til komnar vegna sjúkdóma eða sýkinga sem móðir fékk á meðgöngu eða óheilbrigðu líferni, sem og sjúkdómum og sýkingum sem einstaklingar fá snemma á ævinni.

Svo bara út frá siðferðilegri hlið... ojbara, og nei takk.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 6.11.2012 kl. 16:03

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

einmitt oj

Ásdís Sigurðardóttir, 6.11.2012 kl. 16:07

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir þetta Inga mín.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.11.2012 kl. 16:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband