Bjóðum Breivik sömu vist og hann bauð 77 fórnarlömbum sínum

Jæja er hann farinn að væla ræfillinn um mannréttindabrot. Látum helvítið væla,  allt sem hann fær er of gott. Til að eiga kröfu til mannréttinda verður viðkomandi að teljast til manna. Breivik hefur með gjörðum sínum algerlega fyrirgert sér þeim rétti að teljast maður.

„Ég efast um að það fyrirfinnist verri íverustaður í Noregi,“ vælir Breivik um 3ja herbergja  fangaklefann sinn og segir aðbúnaðinn ómannúðlegan.

Ekki þarf að efast um að íverustaður Breiviks er til muna hlýlegri og þægilegri vistarvera en kaldar grafirnar sem hann bjó 77 fórnarlömbum sínum af fullum ásetningi og án minnstu iðrunar.

Það ætti að bjóða honum að dvelja niðri á sex fetum í smá tíma, ætli hann þráði ekki fljótlega aftur hlýjan og vistlegan klefann.

Það þyrfti svo að skoða undir húddið á þeim sem taka að sér smygla bréfum út úr fangelsinu fyrir þetta óbermi.


mbl.is Breivik finnst illa farið með sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Menn eins og hann eiga varla rétt á rennandi vatni.

Fólk sem hefur framið minni glæpi en hann búa í litlum dimmum klefa, með einn glugga sem hleypir lítilli eða engri birtu inn, og hafa fötu til þess að ganga örna sinna í.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 9.11.2012 kl. 20:31

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Leyfum honum að prófa fangelsin í Thailandi og Columbíu og nokkrum slíkum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2012 kl. 20:44

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ef Breivik væri íslendingur og vistaður í fangelsi austur þar, er hætt við að fljótlega yrði upphafinn harmagráturinn að bjarga yrði gæðingnum úr þeirri krísu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.11.2012 kl. 21:20

4 identicon

Það hefur aldrei verið betri ástæða en þessi mannleysa til að endurskoða dauðadóms refsingu.

hrefna lúðvígs (IP-tala skráð) 10.11.2012 kl. 00:02

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Veistu Axel ég gæti næstum því trúað því.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.11.2012 kl. 00:19

6 identicon

Yfirleitt hefur maður nú meðaumkvun með þeim sem telur að sé farið illa með sig en í tilfelli þessa manns þá fyllist maður eiginlega bara viðbjóði í hvert sinn sem nafn hans er nefnt. Ég hugsa stöðugt til aðstandenda þeirra sem hann myrti með köldu blóði og hvað það hlýtur að vera erfitt fyrir marga þeirra að vita af þessu skrímsli á lífi.

Ég myndi ekki vorkenna Breivik þótt hann væri geymdur í gluggalausu allan tímann og ljósin slökkt. Best þætti mér að hann dræpist sem fyrst. Ljótt að segja en glæpur hans er þvílíkur að manni finnst hann ekki eiga neinn rétt á neinu nema dauðanum.

Bergur Ísleifsson (IP-tala skráð) 10.11.2012 kl. 00:56

7 identicon

Hvað með þjóðkjörna leiðtoga sem láta drepa fyrir sig fólk í hrönnum dags daglega. Hvað eiga þeir skilið? Hvað með þá sem eru ábyrgir á bankahruninu og hafa ýtt fólki út í sjálfsvíg hvað eiga þeir skilið? Hvenær drepur maður mann?

Nemo (IP-tala skráð) 10.11.2012 kl. 03:28

8 identicon

Ofboðslega væri maður ósáttur við sjálfan sig eftir að hafa talað svona um manneskju eins og þið - og segjum síðan að hann slyppi úr fangelsi - og á leiðinni bjargaði hann börnunum manns úr sjávarháska. hann nefnilega labbaði fram hjá bryggju og börnin manns duttu út í og hann náði í þau.

Ha? Maður var nýbúinn að óska honum alls hins versta. Mynduð þið þakka honum fyrir?

Sósi (IP-tala skráð) 10.11.2012 kl. 08:36

9 identicon

Það eru að koma jól. Hátíð ljóss og fyrirgefningar. Og þið talið svona um manneskju. Hann drap 77 manns og er að taka út refsingu. Biðjið frekar fyrir honum ef þið eruð kristin og viljið smjatta á jólasteikinni með frið í ykkar beinum.

Sósi (IP-tala skráð) 10.11.2012 kl. 08:39

10 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Við deilum skoðun á þessu máli Bergur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.11.2012 kl. 09:23

11 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Nemo - þér er ekki alvara er það?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.11.2012 kl. 09:23

12 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sósi/móðgaði kani hér er þitt sannkristna tækifæri. Breivík er verulega ósáttur við sitt viðurværi og verður trúlega einmanna um jólin. Tak jólasteik þína og fjölskyldu og gakk yfir til Noregs og haltu jól með Breivik og deildu þínum friðar- og kærleiksbeinum með honum.

Eftir matinn getur þú svo setið og notið þess að sjá hann leika við börnin og taka upp pakkana með þeim. Gleðileg jól!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.11.2012 kl. 09:37

13 identicon

Þar sem ég bý í Noregi, hef ég spurt Norðmenn að því hvað gerst hefði ef eins og EINN maður úr landi hefði komist út í Útey með riffil með sér og drepið Breivík. Segjum að þetta hefði gerst á þeim tímapunkti þegar hann var búinn að drepa u.þ.b. helminginn af þessum ungmennum sem hann drap. Þá hefðið þessi  miskunsami maður "bjargað" lífi 30 ungmenna. Spuringinn er: Hefði hann verið dæmdur fyrir morð, eða hefði hann fengið orðu fyrir björgunarafrek og settur á stall sem hetja.

Jens (IP-tala skráð) 10.11.2012 kl. 10:21

14 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Gefum okkur að einhver í Útey hefði getað fellt Breivík. Dettur einhverjum heilvitamanni í hug að sá/sú sæti núna inni sem dæmdur morðingi?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.11.2012 kl. 10:26

15 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

En hverju svöruðu Norðmenn spurningu þinni Jens?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.11.2012 kl. 10:27

16 identicon

Bara að hengja helvítið. Á undanþágu/neyðarlöggjöf.
Quisling var skotinn, það þætti Breivík vera heiður hygg ég.

Nú eða beita hryðjuverkalögum á hann og senda til Quantanamo.

Jón Logi (IP-tala skráð) 10.11.2012 kl. 13:33

17 identicon

Auga fyrir auga.. erum við ekki betri en þetta ? Jesús segir að fyrirgefa 7 sinnum 77 Ekki láta hatrið og reiðina ná tökum á ykkur, það er leiðin yfir á myrku hliðina, believe me, i should know

maggi220 (IP-tala skráð) 10.11.2012 kl. 18:32

18 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

Þó sumum finnist of djúpt í árina tekið að kalla manninn ljótum nöfnum, er ég viss um að mörgum þykir það örlæti að láta fjöldamorðingja fá 24 m2 klefa sem skiptist niður 3 rými, m.a. í líkamsræktarstöð. Mér finnst það lúxus. Og þó hann hafi ekki aðgang að rofum til að hringla sjálfur með ljós og sjónvarpsskjá, gerir það bara ekkert til.

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 10.11.2012 kl. 19:26

19 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég held að þeir sem rituðu "sögu" Jesú hafi ekki haft hugmyndaflug fyrir náunga eins og Breivik þegar þeir lögðu Jesú þessi orð í munn.

Er engin misgjörð maggi220, sem er svo stór og ill að þú fyrirgefir hana ekki með það sama?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.11.2012 kl. 19:40

20 Smámynd: Hjördís Vilhjálmsdóttir

Maður á ekki að gjalda illt með illu, sama hvaða dæmdur fangi á í hlut. Ekki að það virðist væsa of mikið um hann, sem er annað mál og erfitt að vita með vissu hver aðbúnaður hans er út frá lekri frétt og án staðfestingar yfirvalda um hvað sé rétt í lekanum og hvað ekki.

Sem betur fer eru samfélög okkar ekki enn á Auga fyrir auga planinu ! Frelsisvipting á að nægja hverjum dæmdum manni, hefnd á ekki að vera til og því síður innan veggja fangelsa, nema ef lög heimila slíkt sem þau gera sem betur fer ekki svo ég viti til. Amk ekki í okkar heimshluta, þar með Noregi og á Íslandi.

Sammála þér með það Axel að það er alvarlegt að það leki upplýsingar út frá honum og að fjölmiðlar skuli voga sér að taka þátt í því með því að birta það sem rennur út....hvað ef hann heldur áfram nasista boðskap sínum...? Slæmt og alvarlegt mál eins og ég sé það. Sama hver í hlut á sem þannig hugsar að einhver kynstofn sé betri en annar. Við erum ólík, og það er í fínu lagi. 

Hjördís Vilhjálmsdóttir, 10.11.2012 kl. 21:07

21 identicon

Reyndar er Brevik algert lamb miðað við Jesú sem ætlar að pynta og brenna næstum allar manneskjur sem hafa fæðst,framdi heimsmorð á öllu lífi samkvæmt galdrabókinni.. og Brevik er krissi.. þannig að þetta er hlægilega fáránlegt hjá maggi220

DoctorE (IP-tala skráð) 10.11.2012 kl. 22:58

22 identicon

Axel: Hvað hjálpar það að níðast á andlega veikum manni ? ekki vekur það fórnarlömb hans til lífs á ný, erum við eitthvað bættari með það ? Og heldur þú að ofbeldi, fjöldamorð  og annar eins viðbjóður hafi ekki verið í gangi á tíma Jesú, sennilega var það mun verra en það er núna, síðan endaði jú maðurinn sína mannlegu æfi á frekar hrottalegann hátt með því að vera barinn sundur og saman og síðan látinn hanga negldurá kross í nokkra daga.

 DoctorE: átta mig ekki alveg á hvort þú ert einhversskonar lame troll eða ekki, en finnst a.m.k. röksemdarfærslur þínar fáránlegar

maggi220 (IP-tala skráð) 10.11.2012 kl. 23:25

23 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

Mér finnst það ekki vera hefnd að láta mann af þessu tagi dúsa í fangelsi og skítt með það þó hann fái ekki allt sem hann bendir á og kvarti undan lélegri þjónustu. Það er ekki hefnd að losa umheiminn við að hafa siðblindan fjöldamorðingja leikandi lausum hala og ógnandi öllu í kringum sig. Það er nauðsyn og varðar öryggi allra. Enda sýnir hann af sér þannig hegðun og hugsun, að fái hann frelsi, heldur hann örugglega áfram á sömu braut. Þennan mann á að láta dúsa í tukthúsi um aldur og ævi. Annað væri glæpur við mannkynið.

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 15.11.2012 kl. 18:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.