Kynrembu fréttaskýring

Að konur hafi kosið konur til valda, er að mati Kristínar Ástgeirsdóttur helsta skýringin á jöfnu kynjahlutfalli hjá VG, Samfylkingunni og Borgarahreyfingunni. kynjahlutfall

Ef konur sem greiddu þessum framboðum atkvæði voru að kjósa konur, hvað vorum við karlarnir sem kusum þessa lista að kjósa?  

Mér finnst Kristín raunar gera lítið úr kynsystrum sínum að ætla þeim að þær kjósi frekar eftir kyni en mannkostum eða stefnumálum. Er til gleggra dæmi um kynrembu.

Er skýringin ekki einfaldari en þessi hugsýn Kristínar? Er ekki jafnt hlutfall kynja á framboðslistunum eina skýringin á jöfnu hlutfalli kynjanna í þingflokkunum?

Ef konur eru ekki á framboðslistum er ekki líklegt að þeir skili konum inn á þing, gildir þá einu hversu margar konur kjósa þá lista. 


mbl.is Konur kusu konur til valda á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Svavarsdóttir

Sæll félagi, gaman að sjá að þú ert að blogga aftur.

En varðandi þessa frétt. 

Jafnara hlutfall kynjanna á þingi er auðvitað vegna þess að listarnir sem í boði, hafa jafnara hlutfall kynjanna.

Anna Svavarsdóttir, 27.4.2009 kl. 11:42

2 identicon

Já þakka þér fyrir. Ég sé allavega ekki að ég hafi kosið konur fram yfir karla, ekki allavega stóð ég og strokaði yfir alla karlana!! Frekar fáranleg frétt nema hún hafi komist að því af kjörseðlinum hver kaus hvað. Bæði lélegt gagnvart konum og körlum að halda þessu fram.

Hrefna (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 13:07

3 identicon

Ég veit ekki hvernig konur ættu að fara að því að kjósa einstaklinga frekar en karlar.

Í kosningum á íslandi fær almenningur aðeins að velja um flokka en ekki einstaklinga og það er í besta lagi vafasöm tölfræði að halda því fram að "konur hafi kosið konur" þó svo útkoman sé konum hagstæð hjá þeim flokkum sem konur kusu mest.

Fransman (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 09:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband