Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010
Barnagælan Ósómi bin Laden
12.2.2010 | 10:39
Mikill misskilningur hefur nú verið leiðréttur. Í ljós er komið að Ósómi bin Laden er ekki sá argi óþverri og óforskammaði morðingi sem hann hefur verið talin vera.
Binni Lati mun víst vera mannvinur hinn mesti sem verður að halda á lífi sem lengst, því verði hann felldur þá koma í hans stað menn, sem hafa að sögn Ómars sonar Binna Lata, ýmislegt misjafnt í huga, enda upp til hópa ekki jafn vandaðir menn og karl faðir hans.
Það er hræðileg tilhugsun að illmenni komist til valda í al-Qaeda, þá myndu væntanlega sakleysisaðgerðir eins og árásin á tvíburaturnana í New York víkja fyrir fullvöxnum hryðjuverkum. Það vill auðvitað enginn.
Raunar er ég þeirrar skoðunar að Bandaríkjamenn hafi alla tíð, frá því árásin á tvíburaturnana var gerð, vitað upp á klofið-kuntuhár hvar Ósóminn felur á sér krumlunnar. Það hefur einfaldlega ekki hentað pólitískri- og hernaðarlegri stefnu þeirra að fjarlægja aðalrökin fyrir góðhjörtuðum björgunaraðgerðum sem þeir, af miklu kappi, kjósa að þröngva upp á aðrar þjóðir hist og her.
Félagar bin Ladens mun verri en hann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Ég játa!
10.2.2010 | 19:16
Ég hef ekkert bréf fengið frá Rannsóknarnefnd Alþingis, þótt ég hafi steypt mér á óábyrgan hátt út í neyslukapphlaupið og keypt mér flatskjá um mitt sumar 2008.
Ég staðgreiddi hann að vísu eins og alla mína verslun s.l. 8 ár.
En ég játa, að með þessum kaupum hafi ég hugsanlega átt minn þátt í því að stefna efnahagsástandi þjóðarinnar í hættu og ég er reiðubúinn að taka afleiðingunum af því.
Virðingarfyllst,
Axel Jóhann Hallgrímsson.
12 hafa fengið bréf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Skiptar skoðanir...... já einmitt!
9.2.2010 | 23:03
Erfitt er að átta sig á því hverju það skiptir okkur Íslendinga hvort þeirra hafði sigur í forsetakosningunum í Úkraínu, Vikto Janúkovits eða Júlía Tímósjenkó.
En fullljóst er hver afstaða Morgunblaðsins og hjáleigu hans er til frambjóðenda þar eystra.
Því ólíklegt verður að telja að Mogginn myndi, ef Sjálfstæðisflokkurinn fengi meirihluta atkvæða í Alþingiskosningum, orða það þannig að skiptar skoðanir væru um úrslitin.
Þó veit maður aldrei.
Skiptar skoðanir í Úkraínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Gjafmildi
9.2.2010 | 13:08
Mér datt í hug að mikið væri það gott ef Íslenskir auðmenn fengju sömu flugu í höfuðið og þessi Austurríski miljónamæringur og gæfu eigur sínar. En við nánari hugsun sá ég að þetta væri fullkomið bull hjá mér.
Íslenskir auðmenn eiga ekkert, virðast raunar aldrei hafa átt neitt nema skuldir. Skuldir sem þeir hafa, af rausn sinni, þegar ánafnað Íslensku þjóðinni.
Ætlar að gefa allar eigur sínar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Enga Vítispúka hingað.
9.2.2010 | 09:59
Það er vissulega átakanlegt ef lög eru brotin á löghlýðnu og friðelskandi fólki. Því er það skiljanlegt að lögmanni Vítispúkans sé verulega misboðið, því skjólstæðingur hans hefur, að sögn lögmannsins, hreina sakaskrá á Íslandi, þótt því sé víst ekki að heilsa í Noregi.
Ég hefði talið að lögmaðurinn ætti að fagna þeim ásetningi Íslenskra stjórnvalda að sakavottorð skjólstæðings hans verði áfram hreint á Íslandi.
Vísa Vítisengli úr landi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Læra börnin ekki það sem fyrir þeim er haft?
8.2.2010 | 18:18
Ekkert er ógeðslegra en þegar fólk beitir sín eigin börn ofbeldi, svo ekki sé talað um pyntingar eða kynferðislega misnotkun.
Lægra verður ekki lagst.
Er ekki yndislegt þegar stjórnarstofnanir eins og CIA geta miðlað "unaðslegri" þekkingu sinni til almennings?
Beitti 4 ára dóttur sín vatnspyntingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Haugrottur" og önnur meindýr.
8.2.2010 | 17:14
Ekki ríður við einteyming bullið á Útvarpi Sögu. Arnþrúður Karlsdóttir fer hamförum, ill, örg og öfugsnúin út í allt og alla. Það var samt á vissan hátt unun að hlusta á þátt þeirra Arnþrúðar og Péturs milli 4 og 5 í dag.
Í þessum þætti sínum þá sitja þau hjúin og spinna samsæriskenningar hvort í kappi við annað og þar er tilgangurinn algerlega látinn helga meðalið.
Þema þáttarins var þjóðstjórnardraumórar þeirra hjúa, sem þau ein hafa ekki enn áttað sig á að er tálsýnin ein.
Arnþrúður komst á þvílíkt flug í þættinum í dag að Pétur náði ekki að fylgja henni eftir og varð að láta sér nægja að humma og skjóta inn einu og einu ha? þegar jafnvel skilningi hans var ofaukið.
Þau tóku viðtal við Sigmund Davíð sem kannaðist ekki við eitt né neitt, játaði hvorki né neitaði. Út frá þessu viðtali dró Arnþrúður þær ályktanir sem henni hentaði.
Arnþrúður er meira að segja komin með skiptingu ráðuneyta og ráðherralista í þessu hugarfóstri sínu!!!!!! Þeir sem fylgst hafa með stjórnarmyndunum vita að ráðherrar eru ekki ákveðnir fyrr en allt annað liggur á borðinu og stjórnarmyndun, stjórnarsáttmáli og skipting ráðuneyta hefur verið handsalað.
Þetta veit "haugrottan" Arnþrúður Karlsdóttir, en lætur þess ógetið því það passar ekki inní þessa samsæriskenningu hennar.
Rjóminn í þessari kenningu var að Jóhanna Sigurðardóttir hætti sem ráðherra og við forsætisráðherraembættinu tæki Sigmundur Davíð Sigmundsson.
HA HA HA HA HA HA HA HA HA hafið þið heyrt hann betri?
Biðla til Framsóknarmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Frú Palin forseti?
7.2.2010 | 22:54
Bandaríska þjóðin þyrfti að vera geggjuð til að kjósa hana yfir sig. En allt er greinilega mögulegt í þessum efnum vestanhafs, því þessi sama þjóð kaus George W. Busch yfir sig TVISVAR!
.
Palin útilokar ekki forsetaframboð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 23:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Virkar þetta?
7.2.2010 | 16:38
Þetta er undarleg og líklega mjög vanhugsuð aðferð hjá konunum til að auka lýðræði í karlaþjóðfélagi.
Líklegt má telja að þetta hvetji karlrembur frekar til skerðingar á lýðræðið, í stað þess að auka það, verði það til þess að konur fari almennt að hlaupa um hálf- eða alnaktar.
Nema auðvitað að þeir sem með völdin fara í Úkraínu séu hommar upp til hópa.
Hálfnaktar konur mótmæla í Úkraínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ólag hefur riðið yfir.
7.2.2010 | 02:15
Öll lögin í keppninni í ár báru í sér feigðina. Ekkert þeirra var lífvænlegt. Þrátt fyrir linnulausa spilun er ekkert lagana sem komust í sex laga úrslitin nálagt því að geta lifað deginum lengur.
Keppnin í ár var óvenju slöpp, þar lagðist allt á eitt rétt eins og um afburðaslappan árgang í víni væri að ræða.
Ég held að einu hafi gilt hvaða lag af þessum sex sigraði, ekkert þeirra hefur afl til að skila okkur uppúr undankeppninni. Punktur og basta.
Þá gengur bara betur næst.
Hera Björk fulltrúi Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)