Bloggfærslur mánaðarins, september 2010

Ó.....

....my goooood!

 


mbl.is Penélope Cruz með barni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er pottþétt....

....að einhverjir falla fyrir þessu. Það er sama hve illa og heimskulega er staðið að svindli, það eru alltaf einhverjir sem eru enn vitlausari, ef gróðavon er í sigtinu.

Það er ekki langt síðan að þeir sem ekki spiluðu í útrásar- og græðgislotteríinu voru úthrópaðir sem hálfvitar.


mbl.is Bilun til að mæta þörf dagsetningu færslu þinni verður öryrki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já fyrir alla muni

Það þarf fyrir alla muni að koma á nýju kvennaframboði, ef það gæti orðið til þess að megnið af öfgafemínistunum söfnuðust í einn flokk.

Þannig gæti það orðið til þess að losna aðra stjórnmálaflokka við þetta lið, sem heltekur starfsemi þeirra og leggur umræðuna innan þeirra að stórum hluta undir einskisnýta og þarflausa hluti, beinlínis bull  og þvælu, sem engu skilar og síst auknum réttindum kvenna.


mbl.is Tími fyrir nýtt kvennaframboð?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bragðað á eigin meðulum

Vopnin eru að sjálfsögðu ætluð til að verja og viðhalda núverandi spilltu og rotnu stjórnkerfi Sádi-Arabíu, alræði örfárra fjölskyldna, kúgun kvenna og misskiptingu landsins gæða.

Það er undarlegt að Bandaríkjamenn skuli ekki hafa sama ofuráhugann að koma á lýðræði í Sádi-Arabíu og í Írak.  Mikið má vera ef þessum vopnum verður ekki, í fyllingu tímans, snúið gegn þeim sjálfum eins og gerðist í Írak og það væri þeim rétt mátulegt.

Eins og allir vita höfðu Bandaríkin engan áhuga á lýðræði fyrir íbúa Íraks meðan Saddam var bandamaður þeirra og vopnum af öllum gerðum og stærðum var mokað í Saddam til að verja hann - fyrir lýðræðinu, sem öðrum óvinum.

  


mbl.is Yrðu stærstu vopnaviðskipti í sögu Bandaríkjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er allt, sem múslímar gera, rangt?

Nútíma Íslendingum hryllir við því að fé sé „á háls skorið“  til aflífunar. Þetta var samt sú aðferð sem viðhöfð var hér á landi um aldir. Raunar er ekki um hálsskurð eyrna á milli að ræða eins og sjá má í hryllingsmyndum heldur miklu frekar einfalda og vel útfærða hálsæðastungu sem aflífar skepnuna á örskammri stundu.

Auðvitað vilja sómakærir Íslendingar og sér í lagi rollurnar að þær séu skotnar til að tryggja heiðvirðan og góðan dauðdaga.

En á þessari glansmynd, sem menn gera sér af göfugri slátrun á dýra, er svartur blettur og það stór. Flest allur bolfiskur sem veiddur er við Ísland er aflífaður með hálsskurði, ekki stungu heldur skurði „eyrna á milli“. Aðrir fiskar eru ekki svo heppnir, þeir eru bara látnir kafna eða kremjast til dauða, svo sem loðna, síld, makríll og fleiri tegundir.

Ef menn vilja vera sjálfum sér samkvæmir hlýtur krafan að vera sú að hver fiskur sem á Íslenskt skip kemur sé skotinn til að tryggja sem best kvalalausan dauðdaga, ef við viljum ekki níðingar heita, eins og þessir „andskotans“ múslímar sem vilja kvelja lömbin okkar.

  


mbl.is Fé slátrað að hætti múslima
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Ísland

Styttri og snubbóttari gerast þær ekki stórfréttirnar. Enn einu sinni er það merkilegast við  Moggafrétt, sem látið er ósagt.

Ekkert  minnst Mogginn á forsöguna og ástæður brotthvarfs Þorgerðar af Alþingi. Þá vék hún af þingi því hún taldi að áframhaldandi seta hennar á þingi gæti skaðað flokkinn, já takið eftir - skaðað Sjálfstæðisflokkinn – hennar óbreyttu orð.

Ekkert minntist Mogginn á þann skaða sem þjóðin varð fyrir. Ekki orð um kúlulánið sem þau hjón sendu í innheimtu á þjóðina.

Núna er það mat Þorgarðar að nærvera hennar skaði ekki lengur Sjálfstæðisflokkinn þess vegna snýr hún til baka, henni er sama þó hún misbjóði þjóðinni og valdi henni skaða,

Til hamingju Ísland!

  
mbl.is Þorgerður sest aftur á þing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni litli Ben er hræddur, því upp hefur fyrir honum runnið lítið ljós.

Bjarna er að vonum brugðið því hann áttaði sig skyndilega og óvænt  á því að þjóðin setur vitaskuld samasem merki á milli andstöðu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í þingmannanefndinni við rannsókn á bankahruninu og beinnar sektar í því máli, þjóðin getur ekki annað.

Einhver utanaðkomandi hlýtur að hafa hvíslað þessu að Bjarna því ekki örlar á innhverfri gagnrýni í Sjálfstæðisflokknum eftir hrunið. Þar ríkir svartnætti afneitunar og meðvirkni. Í angist kemur Bjarni fram og segir að rannsókn geti hugsanlega, kannski, mögulega og ef til vill farið fram.

Sigmundur Davíð á sennilega eftir að gefa frá sér svipaða yfirlýsingu, úttroðna af sannleiksást og vilja til að allt verði fram í dagsljósið dregið og engu undan skotið en að sjálfsögðu með öllum fyrirvörum í bókinni.

  


mbl.is Möguleg samstaða um rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opinber diplómatísk fjárkúgun

Með þessari lausnargjaldskröfu hafa Írönsk yfirvöld formlega staðfest að þau eru glæpalið sem stundar opinber, ríkisrekin mannrán og fjárkúgun.

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans hefur sýnt og sannað að orð hans eru einskis virði enda maðurinn ólíkindatól og óútreiknanlegur.

CIA drap Salvador Allende og reyndu árum saman að drepa Castro,  en Ahmadinejad fær að lifa.

 
mbl.is Íranir setja upp 500.000 dala lausnargjald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viljum við að okkur verði stjórnað með ógnunum og hótunum?

Þetta Moskumál í NY er komið í algera vitleysu. Fyrir það fyrsta hefur bænahús Múslima verið á Ground zero svæðinu síðan 1930 og eitthvað. Þannig að andstaðan við Mosku á svæðinu  er eingöngu byggð á misskilningi og fordómum gegn Íslam, sem mönnum hættir til að gera í heild sinni ábyrg fyrir gjörðum fárra öfgamanna og brjálæðinga, sem þeirri trú fylgja.

Eins var með kristna fordóma- og öfgaprestinn sem ætlaði að brenna Kóraninn, eins og það væri einhver lausn á ríkjandi vandamálum eða sáluhjálp fyrir Kristna.

Það gekk maður undir mannshönd að koma í veg fyrir brennuna, ekki af því að mönnum fyndist það beinlínis rangt og ósiðlegt heldur af þeirri ástæðu að menn fengu hland fyrir hjartað af ótta yfir því hvaða  afleiðingar brennan hefði á Íslömsk öfgaöfl. Ekki má fyrir nokkurn mun styggja þá.

Núna er klerkurinn sem vill byggja Moskuna við Ground zero komin á þessa sömu línu og varar við afleiðingum þess að styggja þá sem ekki má styggja, með því að hindra byggingu Moskunnar.  Inn á hvaða braut eru menn komnir og hvaða skilaboð eru menn með þessu  að senda öfgafullum brjálæðingum? Er ekki verið að segja pakkinu að með hótunum einum geti þeir stjórnað og ráðskast með almenning á vesturlöndum á þann hátt sem þeim best líkar?

Á Íslandi er uppi veruleg og undarleg andstaða við byggingu Mosku í Reykjavík, byggð á fordómum og vanþekkingu,  m.a. virðast margir halda að öll hryðjuverk séu skipulögð í Moskum. Glæpamenn þurfa ekki bænahús til að hittast og skipuleggja glæpi, hvort heldur þeir fylgja Kristi eða Íslam. Auk þess hafa Múslímar á Íslandi sitt bænahús þannig að engin Mosku bygging hindrar ekki að þeir hittist.

Þá vaknar sú spurning, hvort afstaða Íslendinga til fyrirhugaðar Mosku breytist, verði því komið á framfæri að  bin Laden karlinn verði verulega ósáttur við þjóðina, verði Moskan ekki reist?

  


mbl.is Varasamt að færa moskuna annað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talandi um ábyrgð og verklag.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ætlar að snúa aftur á Alþingi eftir heimalagaða „hundahreinsun“ að eigin forskrift.  Það mætti ætla að hún sé illa upplýst og lítt meðvituð um þá ábyrgð, siðferðislega jafnt sem pólitíska, sem fylgir því að sitja á Alþingi Íslendinga.

Þorgerður þarf greinilega að endurskoða það verklag  sem hún ætlar að viðhafa með endurkomu sinni á Alþingi og huga ögn meira að þjóðarvilja í málinu.

Það væri henni verulega hollt og þá ekki síður þjóðinni að hún láti ekki eigin duttlunga og hentisemi ráða för.

Þorgerði fer það einstaklega illa að gefa öðrum ráð í siðferðislegum álitamálum.


mbl.is Í stórum málum þarf öll stjórnin að vera upplýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband