Bloggfærslur mánaðarins, október 2014

Heyrst hefur....

....að Norðmenn muni hafa sama háttinn á með jólatréð, sem Osló "gefur" Reykjavík,  og morðtólin sem Haraldur Jóhannessen ríkislögreglustjóri óskaði sér í jólagjöf.  Norðmenn munu að sjálfsögðu senda reikning  eftir jólahátíðina og innheimta gjöfina fullu verði.

Gaman væri ef Hólka Halli gæti leyst nokkrar af „gjafa“ byssunum úr tollinum og lánað borginni til að hengja á tréð, svo sameina megi anda jólanna og friðarboðskap morðtólanna sem best.  

Byssurnar væru þannig, hvorutveggja í senn, skraut og áminning til allra óþjóðhollu einstaklinganna, sem nafngreindir eru í Geir Jóns skýrslunni, hvers sé að vænta hugsi þeir sér að nota Austurvöll og tréð til einhvers annars en sé guðlegum valdhöfunum þóknanlegt.


mbl.is Oslóartréð fundið!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Inúítaandúð

Ekki er laust við að nokkurra kynþáttafordóma gæti í þessari vandlætingarfrétt Moggans, yfir þeirri ósvífni erlendra fjölmiðla, að geta sér til, af útliti Bjarkar Guðmundsdóttur, að um æðar hennar renni ekki „ómengað“ íslenskt blóð.  Jafnvel ganga fjölmiðlarnir svo langt að ætla Björk grænlensk gen. Lengra verður vart gengið í niðurlægingunni!


mbl.is Björk sögð inúíti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurt er í viðhengdri frétt: Hverju á maður að klæðast þegar gengið er á fund drottningar?

Svarið er einfalt, það skiptir nákvæmlega engu hverju gestir Englandsdrottningar klæðast. Sé mið tekið af algeru fatasmekkleysi Betu, þá verða aumustu druslur glæsilegar í samanburði við það sem hún klæðist. Jafnvel  skítugur strigapoki fengi nokkurn sjarma.

 


 


mbl.is Hitti drottninguna í sérsaumaðri dragt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnaður skemmtikraftur.

Ég í tvígang notið leiðsagnar og fararstjórnar Jörundar Guðmundssonar í dagsferð frá Tenerife til La Gomera. Ferðirnar voru ógleymanlegar og stórbrotnar skemmtanir frá upphafi til enda. Þær voru óteljandi persónurnar sem Jörundur túlkaði í ferðinni og gerði að þátttakendum í ferðunum.   

En fararstjórn Jörundar hafði afleitan galla, óhjákvæmilega og illvíga strengi í magavöðvunum, eftir allan hláturinn.

Takk fyrir frábærar ferðir Jörundur!

 


mbl.is „Mest fíflagangur framan af“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mafía er bankinn og Mafía skal hann heita

Lágmarksgjald fyrir þessa „þjónustu“ Arion banka, sem er nákvæmlega engin, er 990 krónur! Ef konan hefði verið með minna en 990 krónur í mynt, hefði hún augljóslega lent í skuld við bankann. Bankinn hefði svo rukkað þá skuld með sínum hefðbundnu óþverra aðferðum og kostnaði, út yfir gröf og dauða.  

Á Íslandi eru svona rán stunduð fyrir opnum tjöldum, með velþóknun ríkisstjórnar og Alþingis. Ekkert má trufla  Mammon og lögverndaðan djöfladansinn í kringum hann.

Best gæti ég trúðað því að fjármálaráðherranum líði illa að geta ekki skattlagt 72ja krónu „hagnað“ konunnar sem hún gekk með út, úr greipum Mafíunnar.


mbl.is Sat eftir með aðeins 72 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.