Að efast, .... er ekki gott!
9.8.2009 | 18:22
Hvers konar helv.... bull er þetta að Davíð hafi ekki kunnáttu vit eða þekkingu til að taka að sér nánast allt undir sólinni. Hver leyfir sér að fullyrða svona rakalaust bull.... Davíð ekki hæfur!!.....hafið þið heyrt það betra????
Hugsum okkur að flugvél sé á leið til Tenerife full af bjartsýnum Íslendingum, en bilun verður í vélinni og flugstjórinn tilkynnir að ástandið sé alvarlegt og tvísýnt að flugvélin nái næsta flugvelli.
Blessunarlega kemur í ljós að Davíð Oddson er meðal farþega og léttir farþegum mjög. Hvað er eðlilegra en henda flugstjóranum fyrir borð og setja Dabba í flugstjórastólinn? Geti hann ekki reddað málinu getur það enginn. Allir í vélinni anda léttar.
Verst að fréttir daginn eftir verða ekki jafn léttar.
En engum dettur í hug að kenna Dabba um brotlendinguna, hann var jú bara farþegi.
![]() |
Segir Davíð hafa skort sérfræðiþekkingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvernig dettur mönnum það í hug að....
9.8.2009 | 13:31
.... Þráinn Bertelsson sé á leið í Samfylkinguna. Það er fullkomlega engin eftirspurn eftir honum þar.
Hvað sem því líður þá er Þráinn eini þingmaður Borgarahreyfingarinnar sem hefur fylgt þeirri stefnu sem hún boðaði fyrir kosningar.
Þráinn hefur ekki yfirgefið núllið, flokkurinn yfirgaf hann.
.
![]() |
Fyrr frýs í víti en ég skipti um flokk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Úlfar er flottur
9.8.2009 | 11:42
Það er hægt að geyma kjöt ansi lengi í frysti sé rétt frá því gengið, það glasserað og umbúðir lofttæmdar. Kjötið hlýtur að hafa verið í lagi því enginn kvartaði yfir gæðum kjötsins, þótt Úlfar sé snillingur þá verður geymslubragð ekki falið með kúnstum, sé það komið á annað borð.
En það sem vekur mesta athygli er að á þessum sautján árum hafi aðeins sjö af 530 þúsund gestum Úlfars gengið út vegna hvalkjötsins á matseðlinum!!
0,00132% gesta Úlfars gátu ekki sætt sig við hvalkjöt á matseðli hússins.Það er nú allur árangurinn af áróðrinum, hamaganginum, veiðibannsbullinu og brjálæðinu því tengdu.
Var það ekki líka í fréttum um daginn að ásókn í hvalaskoðun fyrir norðan hefði náð áður óþekktum hæðum, nú mitt í nýhöfnum hvalaveiðum?
Þetta er þveröfugt við hrakspár og úrtölur veiðiandstæðinga. Þetta sýnir að áróður þeirra nær ekki eyrum hugsandi fólks.
Það má færa að því rök að hvalveiðarnar sjálfar séu aðalástæða aukinnar aðsóknar í hvalaskoðun.
![]() |
Hvalkjötið dugði Úlfari í sautján ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hvað gæti hugsanlega verið verra en það er nú þegar?
8.8.2009 | 19:48
Það hefur ekki verið nokkur skortur á slæmum fréttum um bankahrunið og öllu því tengdu. Nú boðar Rannsóknarnefnd Alþingis að það verði ekki neitt fagnaðarerindi sem hún muni opinbera 1. nóv n.k.
Hvað geta hugsanlega verið verri fréttir en þegar eru uppi?
Það er í raun aðeins eitt sem getur valdið áfalli. Það er að nefndin komist að þeirri niðurstöðu að bankarnir og eigendur þeirra hefðu ekkert gert sem ámælisvert gæti talist, lögum, reglum og siðferði hafi verið fylgt í hvívetna. Fjármálastjórn og útlánastefna bankana hafi verið aðdáunarverð fyrir framúrskarandi fagmennsku og heiðarleika.
Að pólitískt og lagalegt umhverfi bankanna hafi verið gallalaust og vel ígrundað. Spilling fyrirfyndist hreinlega ekki hjá nokkrum kjafti. Ekki á Íslandi hinu góða.
Að allir sem að hruninu komu hafi á öllum tímum ætíð borið hag Íslands ofar sínum persónulegu hagsmunum.
Þetta væru verri fréttir en þegar eru uppi.
Þjóðin verður bara að sætta sig við að þetta hafi hún átt skilið.
![]() |
Verri fréttir en nokkur nefnd hefur þurft að færa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Dýr mun Davíð allur...
8.8.2009 | 11:41
Keypti Seðlabankinn virkilega erlenda ráðgjöf á árinu 2008 fyrir 1,1 milljarð?
Þurfti þessi óborganlegi andans snillingur Davíð Oddson, sem er sagður öllu getað bjargað, ráðgjöf?
Að kaupa ráðgjöf til gagns er eitt, en kaupa ráðgjöf bara til að kasta henni er annað.
Getur einhver bent á dæmi þess að Davíð Oddson hafi farið að ráðum annarra?Stóð Davíð þá á gati eftir allt saman?
![]() |
Ráðgjöf kostaði milljarð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nú verður Bjarni litli Ben gerður,....
7.8.2009 | 15:33
....í annað sinn í sömu vikunni, út af örkinni af (flokks)eigendum sínum til að mótmæla framgandi réttlætisins.
Annars finnst mér alveg óþarfi að auglýsa það sérstaklega að þetta standi til.
![]() |
Skatturinn fær að kyrrsetja eignir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hunda„æði“og maddama Ben
6.8.2009 | 19:31
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 19:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Leitt undir Knút.
6.8.2009 | 12:51
Fréttir | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sjálfvirkan teljara á flensuna takk.
6.8.2009 | 12:14
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 12:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Ákall um hjálp?
5.8.2009 | 20:29
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þeir sletta skyrinu.
5.8.2009 | 18:00
Grænlenska landstjórnin hefur formann ekki forsætisráðherra
4.8.2009 | 23:32
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 23:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mistök eða snjöll markaðssetning?
4.8.2009 | 14:14
Mönnum hefur verið brugðið....
4.8.2009 | 12:46
Oss er í dag frelsari fæddur!
4.8.2009 | 11:48
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tvær flugur í einu höggi.
3.8.2009 | 22:56
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hressileg lending
3.8.2009 | 21:26
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 21:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
„Aðgerðarsinni“, hver fjárinn er það?
3.8.2009 | 12:02
Eru menn nokkuð búnir að gleyma.....
2.8.2009 | 17:44
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Gaman að rifja upp....
2.8.2009 | 13:02