Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Pólitískt sérálit
21.1.2011 | 13:35
Jóns Steinars Gunnlaugssonar Hæstaréttadómara verður vafalítið minnst í sögunni sem dómarans sem oftar en ekki skilaði pólitískum sérálitum við dómsuppkvaðningar.
![]() |
Telur rök skorta fyrir gæsluvarðhaldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íslandsmethafinn í skuldsetningu bæjarfélags, veitir fjármálaráðgjöf!
18.1.2011 | 23:53
Jæja vill Árni bæjó í Reykjanesbæ selja ríkinu þessa mikilvægu framtíðartekjulind bæjarins, sem svo var kölluð í rökstuðningi með sölunni á HS-Orku og átti að vera bæjarfélaginu bjargræði og þvílík lyftistöng inn í framtíðina.
Það hefur að stórum hluta gleymst, segir Árni, að í umræðunni um HS orku og Magma að bæjarfélagið fái ríkulegt auðlindagjald að þeim auðlindum sem Magma fékk yfirráð yfir til 65 ára með möguleika á framlengingu um 65 ár, þegar félagið keypti HS orku. Þá skapi orkan mörg hundruð vel launuð störf hérlendis.
Skapaði orkan fyrst störf hér á landi eftir að hún var véluð í eign útlendinga? Það er vægast sagt undarlegt að Árni, þessi Íslandsmethafi í skuldsetningu bæjarfélags og eignaeyðingu þess, skuli dirfast að koma upp á dekk og ætla að veita ríkinu fjármála- og eignastýringaráðgjöf.
Vill Árni virkilega selja ríkinu þessa mikilvægu tekjulind Reykjanesbæjar? Þessi örvænting bæjarstjórans bendir sterklega til að staða bæjarfélagsins sé langtum verri en fram að þessu hefur verið upplýst.
![]() |
Semji beint við HS orku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.1.2011 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Einmenningsmótmæli morgundagsins
16.1.2011 | 23:37
(Birt með leyfi Sálarrannsóknarfélagsins Undur Veraldar)
![]() |
Boða til mótmæla á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.1.2011 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Áfram Ísland, ekkert annað er í boði!
15.1.2011 | 22:47
Frábær leikur, en nú er um að gera að liðið haldi sér á jörðunni og ofmetnist ekki, eins og viljað hefur brenna við.
Liðið sýndi í leiknum gegn Brasilíu að það hefur þá breidd að sigur er ekki bundin við þátttöku Ólafs Stefánssonar, besta hamboltamanns heims fyrr og síðar. Það eru gleðitíðindi í sjálfu sér, þótt enginn fagni því að Ólafur sé utan vallar.
En hvernig sem mótið fer þá koma strákarnir heim sem sigurvegar og verða aldrei annað en strákarnir okkar. Annað verður aldrei í boði.
Áfram Ísland!
![]() |
Þarf bara að hlaupa fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Vertu rólegur, þeir vita þetta Jón!
15.1.2011 | 17:57
Það er svo sem góðra gjalda vert hjá Jóni Bjarnasyni að benda stjórnlagaþinginu á nauðsyn þess að setja ákvæði um þjóðareign náttúruauðlinda í stjórnarskránna. En ólíklegt verður að telja, eftir það sem á undan er gengið, að stjórnlagaþingmönnum verði eitthvað annað efst í huga þegar þingið kemur saman til að sinna sínu hlutverki.
Happadrýgst er, að mínu mati, að stjórnmálamenn, alþingismenn og þá ekki hvað síst ráðherrar láti það alveg eiga sig að senda stjórnlagaþinginu pillur og ábendingar um þeirra hlutverk og vinnu.
Jón Bjarnason ætti frekar að kvíða því þegar hann og aðrir misvitrir alþingismenn fá niðurstöðu stjórnlagaþingsins í hendurnar, að sú vinna verði ekki eyðilögð af þingmönnum sem telja það frekar sitt hlutverk að þjóna sérhagsmunagæslu fyrir fámennar klíkur, en almannaheill og þjóðarhag.
![]() |
Jón sendi stjórnlagaþingi bréf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Minkarnir í hænsnakofanum
14.1.2011 | 23:00
Birgitta Jónsdóttir þingkona var í Kastljósinu í kvöld að ræða um kröfu Bandaríkjastjórnar að fá afhenta tölvupósta og önnur gögn varðandi hana eins og tíðrætt hefur verið í fréttum.
Fátt nýtt eða merkilegt kom fram í því bragðdaufa rabbi en rúsínan í pylsuendanum var þegar Helgi spurði hana út í Mark Kennedy flugumann bresku lögreglurnar, sem starfaði með Saving Iceland. Eftir fálm og fuður Birgittu að sverja af sér manninn kom bomban.
Birgitta sagðist aldrei hafa hitt ofbeldishneigðan aðgerðarsinna. Komið hefði í ljós að alltaf þegar ofbeldi eða skemmdarverk hefðu verið unnin þá hefðu verið að verki löggur í dulargervi, sem hefðu laumað sér inn í hópinn!!
Ekkert minna!
Menn hljóta þá að spyrja sig hvor níumenningarnir sem ákærðir eru fyrir árásina á Alþingi séu, eftir allt saman, á launaskrá lögreglunnar!
![]() |
Dulbúin lögga í fararbroddi mótmæla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þarf frekari vitnanna við?
14.1.2011 | 18:20
Ef Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Sigurjóns Þ. Árnasonar segir hann saklausan, þá þarf ekki frekari vitnanna við. Enda hefur Sigurður ekki lagt í vana sinn að verja einhverja skúrka til að koma þeim undan réttvísinni.
Og það sem meira er um vert þá veit Siggi hver er sekur og liggur ekki á því. Það er að sjálfsögðu ekki karlinn í brúnni, skjólstæðingur hans, sem ber ábyrgð á strandi bankans heldur einhver hásetaræfill sem hafði ekkert með siglinguna að gera.
Ef vammlausir lögfræðingar eins og Sigurður G. Guðjónsson geta ekki lyft þjóðarandanum upp á hærra plan með réttsýni sinni og yfirlýsingum, á þessum síðustu og verstu tímum, er vandséð hverjum takist það.
![]() |
Engin skilyrði fyrir gæsluvarðhaldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Gefið á kjammann
14.1.2011 | 00:01
Öruggar heimildir herma að Sigurjón Þ. Árnason hafi alls ekki getað sætt sig við pizzur í kvöldmat þótt áleggið væri að eigin vali. Sigurjón heimtaði svið með mús og engar refjar.
Lögreglumennirnir sem fylgdu Sigurjóni úr húsi voru því aðeins að flytja Sigurjón niður á Umferðarmiðstöð, svo hann gæti sjálfur valið réttan kjamma úr því úrvali sem þar leynist.
Von er á, hersingunni aftur í hús á hverri stundu, lögreglumönnunum og Sigurjóni ásamt sérvöldum sviða kjamma.
Verði Sigurjóni að góðu.
![]() |
Lögregla flutti Sigurjón brott |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Í hvaða liði er Bjarni Ben?
9.1.2011 | 20:03
Lítill er ég aðdáandi Birgittu Jónsdóttur og myndi seint veita henni stuðning í kjörklefanum. En í þessu máli styð ég Birgittu 100%, það hljóta allir íslendingar að gera, skyldi maður ætla.
En svo undarlegt sem það er, þá er því ekki þannig farið. Samþingmaður hennar og samherji í stjórnarandstöðunni, Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins, tekur sér stöðu gegn Birgittu, gegn hagsmunum hennar og réttindum, gegn landi og þjóð, til að þjóna sínum æðsta herra, Bandaríkjunum.
Kjósendur Sjálfstæðisflokksins ættu að hafa í huga að fulltrúar flokksins á Alþingi eru þar ekki til að gæta hagsmuna Íslands og íslendinga, fari þeir ekki saman með hagsmunum Bandaríkjanna eða stjórnvalda í Votatúni!
Hvaða orð íslenskt er það sem hægri bloggarar, margir hverjir, hafa ítrekað notað undanfarið um fólk sem þeir telja að gæti ekki hagsmuna Íslands nægjanlega gagnvart öðrum ríkjum? Það orð nota þeir ekki núna heldur mæra, visku Bjarna, skarpskyggni, æðruleysi, stefnufestu og rökvísi.
Ja mikill er andskotinn!
![]() |
Bandaríkjamenn beita lögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Er Íslendingar undirlægjur?
8.1.2011 | 20:10
Öll Íslenska þjóðin, hvar sem menn í flokk skipast, hlýtur að fylkja sér að baki utanríkisráðherra í fordæmingu á þessari aðför Bandarískra stjórnvalda að friðhelgi Íslenskra alþingismanna svo ekki sé talað um árásina á tjáningarfrelsið og heilaga skyldu allra borgara að gera sitt til að sporna við lögbrotum og glæpum.
En svo undarlega sem það hljómar þá hafa heyrst mjóróma raddir hér innanlands að áður en utanríkisráðherrann derri sig, skuldi hann fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna og þjóð hennar, í heild sinni, afsökunarbeiðni fyrir að hafa ekki sjálfkrafa nælt á dömuna Fálkaorðunni fyrir það eitt að hafa heiðrað landið með nærveru sinn við starfslok hennar hér á landi.
Er hægt, í skítlegu undirlægjuhætti, að leggjast lægra?
![]() |
Sendiherrann kallaður á fund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)