Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
Fjárvana land
29.8.2010 | 16:06
Það er þá orðið eins í réttunum og í bönkunum þar er enn margt um manninn þrátt fyrir fjárskortinn.
Meira fólk en fé í réttunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 16:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Gölluð vara
23.8.2010 | 13:55
Hvað gera menn þegar fyrirtæki sem þeir hafa skipt við, bregst vonum þeirra og væntingum og stjórnendur þess vinna jafnvel ljóst og leynt gegn þeirra hagsmunum. Menn hljóta að láta af viðskiptum við þannig fyrirtæki og snúa sér annað.
Hvað er kirkjan annað en fyrirtæki sem falbýður ákveðna vöru og þjónustu. Rekstrarformið er það sama og í hefðbundnum fyrirtækjum, allt snýst um krónur og aura, hagnað og góða afkomu. Kirkjan getur ekki frekar en önnur fyrirtæki vænst þess að halda sínum viðskiptavinum út á gallaða vöru.
Kirkjan getur ekki dregið það lengur að taka sjálfa sig í ítarlega naflaskoðun og fylgja henni eftir með algerri uppstokkun og endurskipulagningu, vilji hún lifa.
Leiðrétting frá biskup Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hreint vatn, hvers virði er það okkur?
28.7.2010 | 20:13
Hér á Íslandi, hvar hefur alltaf verið ofgnótt vatns, er skilningur á raunverulegu virði vatnsins harla takmarkaður enn sem komið er. Vatnið er okkur sem sjálfsagður hlutur, við höfum ekki átt öðru að venjast. Það er okkur óskiljanlegt að sumstaðar er vatnið þyngdar sinnar virði í gulli.
Vatnið verður okkar olíuauður í nánustu framtíð. Héðan kunna að sigla risaskip hlaðin vatni, þurfandi vatnskaupendum til handa ef rétt verður á spilunum haldið.
En ekki kæmi mér á óvart, sé mið tekið af öllu verndum þetta og verndum hitt bullinu sem á undan er gengið, að upp spretti haugar af Svandísum, Kolbrúnum og Þórunnum sem leggist af alefli gegn því að vatnið verði frá náttúrunni tekið og vilji frekar láta það renna til sjávar, engum til gagns.
Það yrði skaði eins og öll önnur þröngsýni sem miðar að því að takmarka nýtingu auðlinda okkar sem mest.
Ég ætlaði að enda þetta með því að hvetja til þess að umræddar Svandísir, Kolbrúnir og Þórunnir, úr hvaða flokki sem þær kæmu, yrðu á safn settar, en ég læt það ógert.
Hreint vatn er mannréttindi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Klæðum klámölið í.
22.7.2010 | 09:32
Þetta er svo vitlaust að það er ekki einu sinni fyndið. Útlit umbúða á eplavíni þykir að mati ÁTVR of nautnalegt og samrýmast þannig ekki áfengisstefnu stjórnvalda sem virðist vera sú að umbúðirnar megi ekki vera meira spennandi en innihaldið.
Til hvers er vín til sölu yfir höfuð ef það má ekki seljast? Það væri kannski ráð að klæða dósirnar í svart plast eins og gert var við karlablöðin svokölluðu hér um árið og gert var að kröfu kvenna sem gátu sennilega ekki skoðað sig naktar í spegli nema vera íklæddar svörtum rusla- pokum.
Umbúðirnar þóttu of djarfar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 10:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Það er alveg makalaust...
9.7.2010 | 16:02
...að núna á verstu og erfiðustu tímum sé markvisst unnið að því að drepa niður sprotafyrirtækin og frjálst framtak.
.
.
15 mánaða fangelsi fyrir vændi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 16:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Hvað, var hótelið kyrrsett?
5.7.2010 | 15:38
Var hótelið á einhverju flandri og hætta talin á að það kynni að lauma sér úr landi?
Fasteignin 101 Hótel kyrrsett | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vandinn mikli
24.6.2010 | 08:04
Mikið vandræðaástand ríkir í þjóðfélaginu vegna dóms Hæstaréttar. Bankarnir eru í öngum sínum og þykjast ekki vita sitt rjúkandi ráð, en meðal skuldara ríkir hálfgert gullgrafara ástand. Staðan er sögð sú að bankarnir fari lóðbeint á hausinn verði afleiðingar dóms Hæstaréttar látnar standa. Ekki er ég dómbær á það en lítið fór fyrir slíkum fullyrðingum meðan þeir afskrifuðu hægri vinstri milljarða tugi, á miljarða tugi ofan af skuldum útrásarvíkinga.
Almenningur var mjög ósáttur við að þurfa, með þeim afskriftum, að axla skuldir útrásarvíkinganna að ósekju, eðlilega. Er almenningur sáttari núna að þurfa að axla þessar skuldir?
Það er deginum ljósara að hefði hið ólöglega gengistryggingarákvæði ekki verið inn í lánasamningunum, hefðu vextir þeirra verið hærri, verðtrygging eða annað komið í staðin til að tryggja endurgreiðslu lánsins. Lánin hefðu verið tekin eftir sem áður.
Það er spurning hvort ekki felist í dæminu sem tekið er í fréttinni réttlát lausn? Þá greiddi lántakandi sanngjarna endurgreiðslu á láninu eins og hann staðfesti með undirskrift sinni að hann ætlaði að gera.
Eða er komin upp ný staða þar sem meiri sanngirni þykir fólgin í því að lántakendurnir sleppi nánast alveg en skuldin verði þess í stað greidd af þeim sem engin lánin tóku?
Nú eru allir litlu gengislánaþegarnir komnir í spor útrásarvíkinganna og spurningin er hvort þeir séu enn sömu skoðunar um sanngirni þess að afskrifa skuldir þeirra?
Eftirstöðvar sexfaldast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 08:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Mr. Tony Hayward forstjóri BP er í óvissu og mjög leiður.
17.6.2010 | 23:43
Sennilega stafar leiði hans og óvissa aðallega af áhyggjum af eigin skinni. Hann á yfir höfði sér reiði hluthafa, fyrir að hafa mistekist að afla þeim fúlgur fjár með því að hundsa öryggisreglur og hafa í staðin valdið þeim tjóni.
Enginn glæpur er verri í augum þeirra sem taka fégildi framyfir manngildi.
Hluthafarnir munu örugglega skipta forstjóranum út fyrir annan sem getur þá tekið upp sama skollaleikinn til að skapa hluthöfunum hámarksgróða.Hayward baðst afsökunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 23:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Aumingja maðurinn.
16.6.2010 | 16:46
Sigurmar K. Albertsson, lögmaður Lýsingar hf. og SP-fjármögnunar, segir hundruð milljarða vera í húfi og hafa í för með sér mikla erfiðleika, þá fyrir bankanna væntanlega.
En er ekki nákvæmlega sama upphæð, upp á krónu, í húfi fyrir lántakendur?
Hafa gengdarlausar hækkanir afborgana ekki haft í för með sér mikla erfiðleika fyrir viðskiptavini bankanna?
Dómurinn mun skapa erfiðleika | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 17:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Dýr myndi frúin öll ef svo skal hver dropi!
11.6.2010 | 03:11
En hvað ætli karlmenn geri við brjóstamjólk sem kostar 24.000, kr lítrinn?
.
.
Selur brjóstamjólk á netinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 03:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)