Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Dagurinn í dag...

...er vonandi upphafið á nýjum tímum, nýjum vinnubrögðum, þar sem fagleg sjónamið en ekki pólitísk ráða för við ráðningar í  stöður hjá ríkinu, háar sem lágar.

Þetta er vissulega góð byrjun.


mbl.is Már mættur í Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er bullinu engin takmörk sett?

Græðgi og útrásarvíman er greinilega ekki runnin af öllum enn.

Þjóðin liggur í organdi timburmönnum en þeir hjá Straumi halda að veislan standi enn sem hæst.


mbl.is Stjórnendur vilja milljarða í bónus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf ekki einbeittan (brota)vilja....

....að sjá engin tengsl milli Björgólfs Thors Björgólfssonar og bankans.

Rétt eins og rakkinn að tarna á myndbandinu sem telur afturfótinn á sér vera sér algerlega ótengdan.


mbl.is Litu ekki á Björgólf Thor sem tengdan aðila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Sænska leiðin, ....

Hooker-018....sem var sögð lausn lausnanna, ekki að virka?

Skrítið.

Gaman verður að heyra skýringu talsmanna sænsku-dásemdarinnar á þessu.


mbl.is Götuvændi eykst á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ug-andasave?

icesaveEr þetta ekki sama viðskiptamódel og  „hin tæra snilld“ Icesave?


mbl.is Bankinn sem hvarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að eignast ráðandi hlut....

....í banka, halló hljómar þetta ekki kunnuglega? Áður var í bland jafnvel talað um dreifða eignaraðild, hvar er það hugtak í dag?

 
mbl.is Skilanefndir eignast tvo banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Falbýður Tae kwon do (hvílu)brögð

taeEkki kemur fram í fréttinni hvort hann sinni sjálfur þörfum viðskiptavina hússins eða hafi ráðið aðra til að sjá um puðið.

 


mbl.is Vændishús fyrir ólympíudrauminn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Velmeinandi menn

gjaldþrotEr ekki eðlilegt að bankinn felldi þessar skuldir niður?

Þeir hefðu aldrei getað borgað þetta greyin.

Krafa um að þeir standi við sínar skuldbibdingar kostar aðeins fjárnám, gjaldþrot og allt það.

Svoleiðis er ekki gert við góða velmeinandi menn.

.


mbl.is Fengu milljarða að láni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru það bara beinharðir peningar sem geta flokkast sem greiðsla fyrir kynlíf?

Það virðist regla að þegar tvítugar stúlkur „falla“ fyrir sjötugum mönnum þá eru viðkomandi Casanovar vel múraðir,  í bak og fyrir.

Það þarf ekki að fara í grafgötur með að þessar snótir eru fyrst og síðast að sækjast eftir hinu ljúfa lífi, peningum og öllu því sem þeir veita aðgang að. Það þarf enginn að reyna að segja mér að sjötugur karl hafi líkamlegt aðdráttarafl fyrir „barnungar“  konur.

Eitthvað vill lukkunnar pamfíllinn fá í staðin, hvort sem hann heitir Hefner eða Berlusconi.  

Berlusconi fer örugglega ekki tómhentur á fund tvítugrar stúlku hafi hann hugsað sér að sá fundur yrði annað og meira en spjall yfir kaffibolla.

Það mun vera til orð um þessi viðskipti, og þau eru víst bönnuð hér á landi, a.m.k. í lausasölu. 

 
mbl.is Hefur aldrei greitt fyrir kynlíf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fasteignamarkaðurinn við alkul en.....

 

....svo einkennilega sem það hljómar, þá biðu menn víst í röðum eftir því að þetta, einmitt þetta,  hús kæmi á sölu að sögn fasteignasala hjá Stakfelli.

Fyrrum húseigandinn hefur því auk hússins, lagt frosinn fasteignamarkaðinn í RÚST.


mbl.is Margir höfðu samband vegna hússins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.