Færsluflokkur: Matur og drykkur
Veitt í matinn
10.7.2010 | 17:09
Fólk þyrpist niður að höfnum til að moka upp Makríl sem þar svamlar. Hvað ætlar fólk svo að gera við aflann?
Ekki get ég sagt að veiði úr menguðum höfnum landsins sé girnileg til átu í mínum augum.
En sínum augum lítur hver silfrið.
![]() |
Makríll í Kópavogshöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Það nístir inn í bein - ég gleymdi að kaupa hamsatólg...
5.5.2010 | 19:56
...og því þurfti ég að nota vestfirðing út á saltfisk kvöldsins. Það var svo sem í lagi því saltfiskur er losæti sama hvaða flot er notað, en betra hefði verið að hafa hamsatólgina.
Þó ég hafi verið kvæntur vestfirðingi , ja ég man ekki hvað lengi, hef ég aldrei orðið fullkomlega sáttur við vestfirðing út á fiskinn.
En þegar ég hef hlustað á Bad To The Bone þá fellur allt í sömu skorður og áður þrátt fyrir tólgarleysið.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 20:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Dýr mun Hafliði allur...
4.5.2010 | 16:36
Er það ekki full þung refsing, fái konukindin 50 ára fangelsi fyrir að narta í eyrað á karlpungnum?
Ég var að hugsa um að hafa svið í kvöldmatinn. Ég hugsa að ég láti vera að narta í eyrun.
.
![]() |
Kona beit eyra af manni í gleðskap |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 16:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Leit er hafin að týndum kjúklingi...
16.4.2010 | 18:20
...sem talið er að sé sýktur af salmonellu. Ekkert er vitað um ferðir kjúklingsins síðan um miðjan dag í gær. Kjúklingurinn var þegar síðast var vitað klæddur í glært plast.
Kjúklingurinn er talinn hættulegur og fólk er beðið um að forðast beina snertingu við hann. Þeir sem verða hans varir eða hafa upplýsingar um ferðir hans síðan í gær eru beðnir um að hafa samband við lögregluna.
![]() |
Grunur um salmonellusmit í kjúklingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvað er betri samfélagsþjónusta....
2.4.2010 | 14:19
.....en að bera bjórinn í bjórþyrstan lýðinn, þegar þörfin er hvað mest?
Engar konur eru vinsælli á Oktoberfestival en bjórbúskurnar.
.
.
![]() |
Refsað fyrir að drekka bjór |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ó nei...
8.3.2010 | 20:25
...ekki aðra Keikó vitleysu. Þá er betra að hakka hann strax í refafóður.
![]() |
Vill frelsa háhyrninginn Tilly |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kransakökumanía Íslendinga
28.11.2009 | 22:54
Í dag var sprengt í gegn í Bolungarvíkurgöngunum og af því tilefni var auðvitað slegið upp veislu.
Það var vitanlega boðið upp á kransaköku, hvað annað, því ekki virðist hægt að halda veislu á Íslandi nema þar sé kransakaka í öndvegi.
Þessi ást Íslendinga á kransakökum er stórundarleg af þeirri einu ástæðu að enginn étur þær. Þær standa yfirleitt nær ósnertar í veislulok.
Mig grunar að ekki hafi verið mikil umferð um þessi Óshlíðarkransakökugöng hafi eitthvað annað og ætilegt verið á boðstólnum.
![]() |
Kristján sprengdi í göngunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þær verða dýrar...
30.10.2009 | 17:32
...jólarjúpurnar í ár, og að venju niðurgreiddar af björgunarsveitunum.
Einn Pilsner takk! Ertu með skilríki góði?
29.10.2009 | 19:30
Ef svaladrykkur með 0,5% styrkleika í henni Ameríku flokkast sem áfengi, þá lægi gamli góði Pilsnerinn laglega í því, með sín 2,25%.
Rótsterkur djöfull sem ætti að vera lyfseðilsskyldur svei mér þá.
Skál.
![]() |
Appelsínusafi bannaður innan 21 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Næsta skyndibitatilboð veður...
13.9.2009 | 23:44
...reykt pizza..... á brunaútsölu.
![]() |
Reykur í Rizzo-pítsustað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |