Hverjar eru áherslur RÚV?

Það hefur varla farið framhjá nokkrum manni að forsetakosningar eru í Bandaríkjunum í dag.

Ríkisútvarpið hefur haft spurnir af kosningunum og stekkur til með kosningavöku sem hefst kl. 23.15, í sjónvarpinu, dagskrárlok eru auglýst kl. 06.00 samkvæmt vef RUV.

Hvernig stendur á því að Ríkissjónvarpið telur ástæðu til að halda sérstaka og langa kosningavöku um kosningar í Bandaríkjunum þegar sama stofnun gaf nýafstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi um stjórnarskrárfrumvarpið fingurinn og fjallaði um hana af fullkominni léttúð með ómerkilegu innskoti í dagskrá?


mbl.is Kosningavaka á Nordica
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er til háborinnar skammar hvernig fjármunir RÚV eru notaðir. Ég sé ekki hvern andskotann okkur varðar um hver verður foringi stærstu hryðjuverkasamtaka heims þannig að RÚV þurfi að vera med dagskrá alla nóttina.

Hann stjórnar ekki neinu þarna, það eru auðhringar og önnur glæpasamtok sem fara með öll völd þarna.

Trausti (IP-tala skráð) 6.11.2012 kl. 19:19

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég vil ekki að mínum peningum sé eytt í þetta, en hvenær í ósköpunum hef ég fengið að ráða einhverju. :((

Ásdís Sigurðardóttir, 6.11.2012 kl. 19:51

3 Smámynd: hilmar  jónsson

Meira segja spaugstofan er áhugaverðara efni, er þá langt seilst...

hilmar jónsson, 6.11.2012 kl. 20:03

4 identicon

Þetta er ekki alvarlegra en svo að þarna verður stuttur umræðuþáttur og síðan er skipt yfir á kosningaútsendingu CBS.

Egill Helgason (IP-tala skráð) 6.11.2012 kl. 21:11

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

SKil þetta ekki.  Þó það se skipt yfir á CBS hljóta einhverjir að þurfa að vera á vakt í stofnuninni ef eitthvað færi úrskeiðis. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.11.2012 kl. 21:26

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Egill, það var kona í viðtali um kosningarnar í Kastljósinu, man ekki nafnið á henni. Hún sagðist verða í kosningavökunni og reiknaði með að sitja frameftir nóttu og rýna í fréttirnar á CBS.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.11.2012 kl. 21:41

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Silja Bára heitir held ég. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.11.2012 kl. 22:23

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Já - takk fyrir það Ásthildur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.11.2012 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.