Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
Sérhönnuð bifreið fyrir Íslandsmarkað.
15.10.2008 | 15:33
Óþarfur ráðgjafi?
15.10.2008 | 15:05
Tryggvi Þór Herbertsson er mjög svo óvænt hættur sem efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar eftir tveggja og hásfs mánaðar starf. Þegar menn láta af störfum jafn skyndilega og með þessum hætti þá er ástæðan yfirleitt aðeins ein, megn óánægja.
Ætli geti verið að Tryggvi Þór hafi fengið höfnunartilfinningu þegar ráðgjöf hans var að engu höfð en ráðum og fyrirskipunum úr Svörtuloftum í hlýtt í hvívetna?
![]() |
Tryggvi Þór hættur sem efnahagsráðgjafi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Seðlabankinn hefur loks gáð til veðurs.
15.10.2008 | 10:16
Flestir reiknuðu með að stýrivextir færu niður í 6 til 8%, en því er ekki að heilsa, lækkunin nemur aðeins 3,5%. Niðurstaðan er 12%.
En svo einkennilega sem það hljómar sjá þeir Seðlabankamenn enn válind veður og þensluhvetjandi storma fyrir dyrum þótt algert logn sé skollið á í Íslensku efnahagslífi. Ætli þeir í bankanum bíði eftir að vindurinn blási afturábak?
Hvaða hagsmunagæsla ræður ríkjum í Svörtuloftum er ekki alveg ljóst en svo mikið er víst að ekki eru það hagsmunir þjóðarinnar eins og ætla mætti að væri þeirra helsta hlutverk.
![]() |
Stýrivextir lækkaðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
The Icelandic vikings
15.10.2008 | 08:50
Þetta eru "the Icelandic vikings" sem standa keikir í stafni á sínum knerri og hirða ekki um boða og brot.
Nú hefur komið smábakslag og þegar við höfum náð vopnum okkar á ný, getum við aftur lagst í víking, höggvið mann og annan.
Flýtur á meðan ekki sekkur.
![]() |
Svalir Íslendingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Verður uppgjör?
15.10.2008 | 02:06
Það var ánægjulegt að sjá það í fréttunum í kvöld að Ingibjörg Sólrún er hin brattasta og á góðum batavegi.
Ólyginn segir að ágreiningur innan stjórnarinnar og óleystur pirringur Samfylkingar í garð samstarfsflokksins hafi hrannast upp í síðustu dagana. Heimkomu Ingibjargar er beðið áður en skorið verður á kýlið.
Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu mála dagana á eftir heimkomu hennar.
![]() |
Ingibjörg Sólrún á leið heim |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dramb er falli næst
14.10.2008 | 23:31
Ég hugsa að Gordon Brown eigi erfiða daga og vikur framundan.
Eftir því sem dagar líða munu staðreyndir málsins verða ljósari og hart mun verða að honum sótt, bæði af andstæðingum og samherjum.
Gott ef hann hrökklast ekki úr embætti með skömm áður en árið er á enda.
Hans verður ekki saknað.
![]() |
Brown sakaður um ragmennsku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Undir pressu!
14.10.2008 | 18:04
Þetta sýnir að rónar jafnt sem ríkir eru undir pressu þessa dagana.
![]() |
Sofnaði í ruslagámi og lenti í ruslaþjöppu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Reynslusaga brjóstmylkings?
14.10.2008 | 11:18
Þeir toppa stöðugt sjálfa sig Kanarnir í bullinu. Ævisaga 15 ára barns?
Hvað kemur næst, ævi- og reynslusaga brjóstmylkings?
Það verður biðröð við bókabúðirnar.
![]() |
Ævisaga 15 ára unglingastjörnu væntanleg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Glatað útrásartækifæri
13.10.2008 | 08:44
Þótt íslensku útrásarhaukarnir stæðu í ströngu að toppa hver annan í fáránleikanum, halda dýrustu veisluna, eiga flottustu þotuna , dýrasta og flottasta þetta og hitt, þá náði enginn þeirra að fara í geimferð.
Það var nú eiginlega synd þar sem farmiðinn kostar aðeins 3,3 milljarða, sem voru þeim hreinir smáaurar meðan allt lék í lyndi.
Útrás í geiminn hefði getað bætt reikistjörnunum, sólkerfinu eða jafnvel allri Vetrarbrautinni í glæsilegt eignasafn íslenskra athafnarmanna.
En þeir geta huggað sig við að hafa valdið stærsta gjaldþroti veraldarsögunnar miðað við þjóðarframleiðslu. Það verður aldrei toppað.
![]() |
Geimfarar til geimstöðvar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Komið í veg fyrir vanskil
13.10.2008 | 08:08
Íslendingar geta andað léttar. Jennifer Lopez og Marc Anthony hafa endurnýjað hjúskaparheit sitt og þannig forðað því að lenda í vanskilum með hjónabandið.
Vanskil hefðu haft áhrif á gengi krónunnar.
![]() |
Gengin aftur í hjónaband |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |