Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010

Seinir eða alls ekki?

Hvernig stendur á því að Morgunblaðið, Mbl.is steinþegir um þessa frétt sem lesa má á Vísi.is og þessa frétt.

Þeir eru þá ekki alltaf fyrstir með fréttirnar hjá mbl.is, svo mikið er víst.


Happi úr hendi sleppt

Mikið eru íslenskir fjölmiðlar slappir, miðað við þá Bandarísku, að sleppa því að birta æsifrétt kringum þessa mynd að eldlaug hafi verið skotið úr Borgarfirðinum og henni miðað á......., ja á hvað ætli Borgfirskum eldflaugum sé miðað?


mbl.is Sérstök skýjamyndun yfir Hvalfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað ber að forðast!

Hver er fyrsta og oftast eina ráðlegging íslenskra fararstjóra í ferðum erlendis varðandi verslun og viðskipti?

Jú hún er þessi: Forðist fyrir alla muni öll viðskipti við Indverja og Indverjabúðir. 

Öll þeirra viðskiptahagfræði byggist á að blekkja og svíkja.

Svo hittir auðvitað skrattinn ömmu sína þegar hann hittir ágjarna kerlingu ofan frá Íslandi.

Punktur! 


mbl.is Segir að auðmaðurinn hafi gefið sér peningana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landeyjahöfn afskrifuð?

4bc21cdc117d1Þessi öra grynnkun í Land- eyjahöfn kemur örugglega engum á óvart þótt aðilar tengdir þessari vitleysu, þykist enn vera hissa. 

Ef dýpkun verður hætt í höfninni og henni lokað þar til aðstæður breytast hefur höfnin í reynd verið afskrifuð, því ólíklegt er að aðstæður breytist nokkurn tíma til hins betra fyrir höfn á þessum stað.

Því fyrr sem höfnin verður afskrifuð og viðurkennd sem mesta sam- gönguflopp Íslandssögunnar, því ódýrara og betra fyrir alla.

  


mbl.is Vilja loka Landeyjahöfn tímabundið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brjóstasala

breastÞegar maður hefur greitt fyrir vöru hlýtur maður að teljast eigandi hennar.

Því hefði ég, fyrir mína parta,  krafist þess að fá brjóstin afhent, enda búinn að greiða fyrir þau og það eftir vigt.

.

.

 
mbl.is Brjóstin blekktu neytanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styrkja Guddi verður sér til skammar!

Ríkisstjórnin og bæjarstjórnir á Suðurnesjum tóku höndum saman í dag að ryðja úrbótum í atvinnumálum svæðisins braut. Það var ánægjulegt að heyra þann samhljóm sem var í Árna Sigfússyni bæjarstjóra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra í Kastljósinu áðan. Við vinnum okkur ekki  upp úr kreppunni nema menn beri gæfu til að leggja pólitískan ágreining til hliðar, snúi bökum saman og rói að sama markmiði.

Þeir voru óvenju aumlegir Sjálfstæðismennirnir á Alþingi í dag og urðu sér illa til skammar því þeir höfðu ekkert annað til málana að leggja en háð og spott. Það var athyglisvert að þar fór styrkja Guddi, með öll sín óuppgerðu mál, fyrir lúðaliðinu og sló hvert vindhöggið eftir annað í misheppnaðri tilraun sinni að vera fyndinn. 

Það er greinilegt að Sjálfstæðismenn ætla  engu að breyta, þeir ætla áfram að þvælast fyrir úrlausnum og umbótum af þeirri ástæðu einni að þær eru ekki á þeirra forsendum.  Getur skömm formanns og þingflokks Sjálfstæðisflokksins orðið öllu meiri?

Þetta er nú auma helvítis liðið!


Enn eitt höfðatöluheimsmetið

Það eru sjö háskólar á Íslandi. 7 háskólar í 310.000 manna þjóðfélagi!  Einn slíkur á hverja 44 þúsund íbúa, er þetta hægt? Hvernig getur þetta gengið, hvernig datt mönnum þessi vitleysa í hug í upphafi?

Þessari vitleysu þarf að linna, eðlilegt væri að tveir háskólar væru á landinu, þótt mannfjöldi landsins beri það varla, einn í Reykjavík og hinn á Akureyri.

En það er viðbúið að smákóngarnir berjist hart gegn skynseminni, ekkert nýtt í því.


mbl.is Breytt afstaða rektors óvænt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er álíka spennandi ...

...lestrarefni og væntanleg bók um sögu kertagerðar á Hveravöllum.

 
mbl.is Ímynd Íslands í molum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er sjóhræddi Bjarni að vilja upp á dekk?

seasickNei, er hann Bjarni sjóhræddi ekki að kíkja upp á dekk  að gá til veðurs? Athuga hvort óveðrið sé gengið yfir og skollin á rjómablíða svo stjórnarandstaðan geti skriðið upp á dekk úr felustöðum sínum og látið mannalega?

Bjarni hefur sagt að stjórnarandstöðunni komi ekki við það óveður sem af þeirra völdum gengur yfir landið og miðin, þeir hafi ekki verið kosnir til að leysa þau vandamál, til þess sé stjórnin.

Já Bjarni, haltu þig neðanþilja og hjúfraðu þig upp að kjölsvíninu, þú ert best geymdur þar, alltaf!

  
mbl.is Meinum ekkert með þessu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svei þér Bush

TortureDevices-ePyntingar við yfirheyrslur hafa þann augljósa kost  að oftast er hægt að ná fram þeim upplýsingum sem yfirheyrendurnir sækjast eftir á skjótan hátt.

En þessi yfirheyrsluaðferð hefur þann leiða ókost að upplýsingarnar og játningar sem fanginn gefur eru ekki endilega sannleikurinn sem slíkur, heldur aðeins sá „sannleikur“ sem kvalararnir vilja heyra hverju sinni.

Það væri vandalaust með þessum aðferðum að fá Bush karlinn til að játa að hann hefði krossfest Krist og CIA væri eflaust tilbúið að trúa því, henti það hagsmunum Bandaríkjanna.

   


mbl.is Bush heimilaði vatnspyntingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.