Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2013
Dagur vonar
30.11.2013 | 14:25
Dagurinn í dag er eflaust mörgum dagur vonar.
En verður vísast dagur vonbrigða.
Ráðherrarnir verða í beinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Það sem aðrir mega vita en ekki við
30.11.2013 | 03:57
Bresk stjórnvöld hafa samið við Íslensk stjórnvöld að þeim verði veittar upplýsingar um bankareikninga Breta hér á landi. Samningurinn var gerður til að auka upplýsingaflæði og gegnsæi að sögn fjármálaráðherra Bretlands, George Osborne.
Þetta er allt gott og blessað.
Hvernig væri að þessi sömu Íslensku stjórnvöld gerðu líka samning við Íslensku þjóðina og upplýstu hana hverjir eiga Íslensku bankanna og hverjir eru helstu kröfuhafar föllnu bankanna?
Eða er gegnsæi ekki fyrir heimska Íslendinga?
Upplýsa um bankareikninga Breta á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miklihvellur - þegar allt varð til úr engu
29.11.2013 | 12:30
Megaskuldurum þykir meira en sjálfsagt að þjóðin taki fulla hlutdeild, sjálfskuldarábyrgð raunar, í vanda þeirra og greiði fyrir þá skuldirnar svo þeir sjálfir þurfi sem minnst að raska sínum lífsstíl.
Í þeim tilgangi fylktu yfirskuldsettir Íslendingar sér um Framsóknarflokkinn og kosningaloftbóluloforð hans, sem helst mætti líkja við undur Miklahvells. Fjármagnið virðist eiga að verða til úr engu, sennilegast kemur það bara siglandi út úr þokunni í höfði formannsins, rétt sisvona án þess að nokkur leggi það til.
Mig grunar að hefði framsjalla bóluhagkerfið ekki hrunið og brask- og gullgrafaraæði þessa fólks að lokum skilað því feitum hagnaði, en ekki skuldum, þá væri tómt mál um að tala að þjóðin ætti einhverja hlutdeild í þeim hagnaði. Þó fullkomlega eðlilegt þyki að jafna út skuldunum.
Það læðist að manni sá grunur að tímasetning og aðferðafræði uppsagnanna hjá RUV hafi ekki verið tilviljun. Að RUV bomban sé í raun óvenju fiturík og súr smjörklípa og slengt fram til að draga athyglina sem mest frá komandi floppi Framsóknar, þeirri staðreynd að töfralausnin sú verður hvorki fugl né fiskur. Útkoman verður eins og flokkurinn allur og loforð hans, innantóm froða.
Hvaðan koma peningarnir? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Afréttari íhaldsins
27.11.2013 | 11:29
Aukin halli á ríkissjóði kallar á öflugan afréttara. Ríkisstjórnin mun ekki sjá aðra leið til að stoppa í fjárlagagatið en leggja allt traust sitt á máttarstólpa þjóðfélagsins. Því verða bætur almannatrygginga að sjálfsögðu skertar og sjúklingaskattar , komu- og þjónustugjöld hækkuð.
Aðrir þjóðfélagshópar munu víst ekki aflögufærir nú um stundir. Allrasíst hinir eiginlegu ríkisómagar, útgerðarmenn og stóreignamenn, sem búa við afar þröngan kost og hafa engan vegin jafnað sig eftir hremmingar hrunsins.
Slæmt er íhaldsins ranglæti, en verra er þess réttlæti.
25,5 milljarða halli í stað 3,7 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sök bítur sekan
25.11.2013 | 15:11
Sigmundur Davíð sagði á fundi á Selfossi um helgina að stjórnarandstaðan muni ljúga til að sverta skuldatilfærslu hugmyndir ríkisstjórnarinnar.
Forsætisráðherra óttast mjög að núverandi stjórnarandstaða muni apa upp stjórnarandstöðutrikkin þeirra Bjarna boy og gera að sínum.
En Simmi silfurskeið getur verið alveg rólegur, lítil hætta er á að einhver leiðist út í það því engum langar til að lenda í þeirri martröð að sjá andlit Framsóknarflokksins í speglinum alla morgna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hálka á ferð og flugi
24.11.2013 | 23:16
Enn einu sinni hefur hálkan sig til flugs á mbl.is. Vonandi fá blaðabörnin, sem skrifa fréttirnar á mbl, hálkuna ekki fljúgandi í höfuðið þegar þau fara út að leika.
Varað við fljúgandi hálku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Breytt 25.11.2013 kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Feigðarsigling
23.11.2013 | 14:00
Þegar Ólafur Jóhannesson myndaði vinstristjórn sína 1978 höfðu ýmsir efasemdir strax í upphafi þeirrar vegferðar og ekki þarf að fjölyrða hvernig fór svo um sjóferð þá. Ástæða skammlífis stjórnarinnar var einfaldlega opinn og illa útfærður stjórnarsáttmáli.
Páll Pétursson frá Höllustöðum, þingmaður Framsóknar og síðar ráðherra, var einn efasemdamanna. Páll er hagyrðingur góður og sagði oft hug sinn í bundnu máli. Þegar málefnasamningur stjórnarinnar lá fyrir kastaði Páll fram eftirfarandi stöku:
Við förum í róður, þótt fleyið sé lekt
og framundan leiðinda starf.
Nú gerum við allt sem er ómögulegt
en ekkert af hinu, sem þarf.
Stakan er eins og hún hafi verið samin um núverandi stjórn svo fullkomlega fellur hún að óvissustefnu stjórnarinnar, erindi og illverkum fram að þessu. Örlög silfurskeiðarstjórnarinnar verða því klárlega hin sömu og stjórnar ÓlaJó og því fyrr, því betra.
Farin verði blönduð leið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Forhert síbrotakirkja
22.11.2013 | 14:24
Það er megn stækja af kaþólsku kirkjunni í þessu máli. Afgreiðsla kirkjunnar og úrvinnsla málsins opinberar aðeins einbeittan og forhertan brotavilja hennar.
Kirkjan endurtekur níðingsverkin með þessari afgreiðslu. Er niðurstaðan í anda Krists og hans boðskapar? Gaman væri að sjá rökstuðning fyrir því.
Líklegast eru kirkjunnar menn ánægðir eftir vel unnið verk brosa út í annað um leið og þeir tauta eins og við sjálfan sig: Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þig og sé þér náðugur. Amen.
Oj-bara!
Niðurstaða kirkjunnar smánarleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 17:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Með fullri virðingu við ábúendur á Þorvaldseyri þá er ólíklegt að allir flugfarþegar sem um Keflavíkurflugvöll fara eigi einungis erindi á Skóga og nágreni, þótt áhugaverðir staðir séu.
Ef þannig háttaði væri hreinlega ódýrara að flytja Skóga og nágrenni í heilu lagi vestur á Miðnesheiði. Ferðamenn gætu horfið af landi brott strax að loknum stuttum hring um safnið og repjuakrana og þyrftu þá ekki að sóa fé og tíma í óþarfa ferðalög um landið, sem enginn hefur áhuga á að sjá.
Hvers eiga ferðamenn að gjalda, sem koma með skemmtiferðaskipum til landsins, eiga þeir áfram að hossast frá Reykjavík eftir vegunum austur í repjuna. Þarf þá ekki líka stórskipahöfn í repjuakurinn? En auðvitað eru menn lítillátir, ætla sér ekki um of og taka bara eitt fyrir í einu.
En kannski eru repjubændur austur þar komir í samstarf við flugvallarvitringana í Reykjavík að á Skógasandi og hvergi annarstaðar sé framtíðarflugvallarstæði Reykjavíkur! Ef þannig er í pottinn búið, verður fljótlega mjög stutt til Reykjavíkur.
Er þetta ekki fullmikil "2007" hugsun á þessum tímapunkti?
Vill fá flugvöll í Skógum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 10:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Friðhelgir sendiherrar glæpasamtaka?
20.11.2013 | 12:40
Varla er nokkur svo grænn að halda að það fari framhjá erlendum glæpasamtökum frekar en öðrum hvernig staðið er að afgreiðslu hælisumsókna af hálfu íslenskra yfirvalda. Að hér dvelji "hælisleitendur" mánuðum og jafnvel árum saman í boði samfélagsins, full frjálsir ferða sinna á meðan umsóknin mjakast á hraða snigilsins úr einni opinberu skúffunni yfir í aðra.
Ofan í kaupið hafa glæpir sem umsækjendur eru staðnir að engin áhrif á hælisumsóknina eða ferli þeirra í kerfinu. Þetta er í raun hinn fullkomni glæpur, glæpamennirnir eru ósnertanlegir, þeir eru flokkaðir eins og "aðrir" erlendir sendiherrar með fulla friðhelgi og fá því aðeins vingjarnlegt klapp á bakið og nánast afsökunarbeini yfirvalda að þau hafi þurft að trufla tómstundagaman þeirra.
Svo má heldur ekki gleyma meðvirkni þjóðarinnar í þessum málum, í einfeldni sinni brestur hálf þjóðin í grát í hvert sinn sem hér bankar uppá tárvotur skilríkjalaus umsækjandi með sjálfgefið vottorð um eigið ágæti. Stofnuð eru samtök og stuðningshópar um óþekkta umsækjandann og allt ætlar vitlaust að verða efist einhver um ótrúlega sögu aðkomumannsins, sem breytist oftar en ekki eftir því hvernig vindurinn blæs.
Því hærra er grátið og hrópað sem "hælisleitandinn" er dekkri á hörund. Fólk veigrar sér orðið við því að segja skoðun sína á þessum málum, geri það einhver er sá hinn sami samstundis stimplaður rasisti.
Margt óljóst í máli hælisleitanda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)