Bloggfærslur mánaðarins, desember 2013

Það er af sem áður var, núna er í lagi að borða forboðnu ávextina

Á síðasta kjörtímabili fann Gunnar Bragi ESB umsókninni allt til foráttu og taldi allt sem frá ESB kom vera af hinu illa og umsóknina vildi hann út í hafsauga. Hans fyrsta verk sem ráðherra var því að setja umsóknina á ís.

Þegar afleiðingar þess fara að koma í ljós ætlar ráðherrann alveg vitlaus að verða. Hann skilur bara ekki af hverju hann getur ekki haldið áfram að tína ávextina úr garði ESB, eins og ekkert hafi í skorist.

Ætli Gunnar Bragi hafi hugsað þessa snilld sjálfur? Nei það hafa húsbændur hans, sérhagsmunagæsluaðilar úti í bæ gert og sent á Gunnar með SMS. Að boði húsbóndans rýkur ráðherrann á lappir og gjammar sig hásan eins og hlýðinna rakka er siður. Viðsnúningur ráðherrans er því skiljanlegur.

Eins og opinbert er orðið er ráðherrann ekki sá þjónn þjóðarinnar sem hann gefur sig út fyrir að vera heldur fyrst og síðast senditík ýmissa hagsmunasamtaka t.a.m. LÍÚ mafíunnar. Mafíu sem vill fá og fær, þökk sé mönnum eins og Gunnari Braga, allt fyrir ekkert.


 


mbl.is Viðsnúningur ESB óskiljanlegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segjum takk, en nei takk!

Það á að hafna alfarið beiðni þessara bandarísku aðila að háhyrningurinn Tilikum verði fluttur hingað. Háhyrningurinn er alfarið þeirra vandamál. Þeir eiga ekki að velta sínum vandamálum yfir á aðra.

Það er miklu hreinlegra gagnvart dýrinu að deyða það strax, í stað þess að  flytja það norður í höf til þess eins að láta það drepast þar hægt. En svona þvo þeir hendur sínar.

Íslensk yfirvöld  áttu auðvitað í ljósi reynslunnar af Keykó að segja nei strax, í stað þess að rúlla erindinu fram og aftur um embættismanna kerfið með tilheyrandi kostnaði. En þannig þvær ráðherra hendur sínar.


 


mbl.is Framtíð Tilikum enn óráðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á svo að stíga næsta skref?

Talsmenn vopnaðar lögreglu hljóta að telja þennan hörmungaratburð vera mikilvægan áfangasigur að því markmiði sínu að vopna lögregluna.

Ég held að hugur ríkislögreglustjórans ætti ekki hvað síst að vera hjá lögreglumanninum sem skaut banaskotinu og vonandi fær hann alla þá aðstoð og hjálp sem hann mun klárlega þurfa á að halda á næstu vikum og mánuðum.

 


mbl.is Notuðu 9mm skotvopn við aðgerðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með öðrum orðum...

...allir sem í framtíðinni kunna að hafa aðra sögu að segja en Simmi silfurskeið og Bjarni barnungi  um skuldabrellu ríkisstjórnarinnar munu ljúga!

Ykkur er óhætt að trúa Simma og Bjarna í þessum efnum, þeir eru ekki að skrökva, kunna það hreinlega ekki. 

 


mbl.is Býst við áróðri kröfuhafa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrunadansinn í Hörpu

Vilhjálmur Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur þá ímynd meðal almennings að hann komi til dyranna eins og hann er klæddur, laus við fals og skrum og að hann láti ekki pólitík hindra sig í að segja sannleikann.


Vilhjálmur er ekki hrifinn af fyrirhuguðum skuldaaðgerðum og segir þær engan vanda leysa og skilja vestsetta fólkið eftir enn verr sett en áður. Vilhjálmur segir jafnframt að fjármögnun aðgerðanna sé alger óvissuferð. Í viðtali við RUV segir Vilhjálmur m.a.;

 

Hinn hlutinn, hann kann nú að leiða til þess að hér verður ný kollsteypa, nýtt verðbólguskot, nýtt gengissig þannig að allir verða í verri stöðu eftir en áður. Ég set sérstaklega spurningamerki við þær afleiðingar sem mér voru kynntar síðast í gær þar sem þetta átti að vera nokkurn veginn á núlli, en það bara gengur engan veginn upp“.  

 

Ég held að velflestir trúi Vilhjálmi margfalt betur en Simma silfurskeið og Bjarna barnunga, svo ekki sé talað um alla  framfroðusnakkana og frjálshyggjubörnin  á blogginu sem eru hreinlega að rifna af hrifningu yfir sviknum loforðum leiðtogana.


Hrifningin mun víkja fyrir vonbrigðum þegar þjóðin áttar sig  á innihaldsleysi pakkans, rotnu kartöflunni, sem hún fékk í skóinn frá fyrstu jólasveinum ársins. Svo víkja vonbrigði þjóðarinnar fyrir reiði þegar hún áttar sig endanlega á því að erlendu "hrægammarnir",  sem þessir dónar sögðu að borguðu brúsann, reyndust vera  íslenskir skattgreiðendur þegar upp var staðið.


 


Mogginn þegir, eðlilega um ákúrur  Vilhjálms. Mogginn er annars  upptekinn við  afmælis- og reisuhátíð sína í Hörpu. Hvar hann fagnar 100 afmæli blaðsins án þess að þakka þjóðinni  5 milljarða afskriftirnar af skuldum eiganda blaðsins, svo þeir gætu haldið áfram að gefa þessa dásemd út, dansa sinn hrunadans.


Heiðursveislugestir og dansfélagar Moggans eru auðvitað Bjarni barnungi og Simmi silfurskeið sem trúa því enn að þeim hafi tekist að stinga endanlega upp í þjóðina.


Forgangs verkefni Moggans næstu daga verður hinsvegar að gera Vilhjálm Bjarnason tortryggilegan í augum lesenda blaðsins,  með öllum þeim meðulum sem tiltæk verða. Það verður ekki fallegt.

 


mbl.is Hringnum lokað í Hörpu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tískusýning í Hörpu

 

Í gær var haldin vegleg tískusýning í Hörpu, að henni stóð kosningaloforðasjóður Simma og Bjarna.

Sýnd var nýjasta línan af  nýju fötum keisarans. 


mbl.is Greiðslubyrði lána lækkar strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband