Færsluflokkur: Lífstíll
Geta konur, ólíkt körlum, gert margt í einu?
12.2.2013 | 12:42
Vonandi hefur stúlku kindin ekki líka verið að mála sig við aksturinn eins og iðulega má sjá í morgunumferðinni.
.
.
![]() |
Tekin á 169 km hraða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 12:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Playboy mellumamman er öll
28.1.2013 | 14:57
Mary O'Connor ritari Playboy kóngsins Hugh Hefner til 40 ára er öll. Hún virðist hafa haft þann starfa helstan að finna og smala saman frægðarsjúkum ungum stúlkum, sem tilbúnar væru að gera hvað sem er fyrir frægðina jafnvel sofa hjá líkinu af Hug Hefner.
![]() |
Sorg á Playboy-setrinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Undarleg er hún mannskepnan
19.11.2012 | 11:53
Þessi undarlega hegðun er hreint ekki einsdæmi, eins og ætla mætti. Það er algengt a.m.k. í Bandaríkjunum að ástarbréfum nánast rigni yfir dæmda fjöldamorðingja með tilboðum um hjúskap, frá ókunnugum konum sem telja morðingjann vera stóru ástina í sínu lífi.
Er þetta ást eða brenglun á háu stigi eða þá undarleg blanda af þessu tvennu með vænu dassi af athyglissýki?
![]() |
Kaldrifjaða ísdrottningin fyrir rétt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 12:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Brosað þvert og endilangt
15.11.2012 | 21:59
Hver gæti tilgangurinn með fegurðaraðgerðum á skapabörmum verið annar en sá að geta brosað eins í báða enda?
![]() |
Skapabarmaaðgerðum fjölgað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Burt með þetta skaðræði
15.11.2012 | 12:00
Hingað og ekki lengra, þessum álvera óskapnaði veður að eyða. Það gengur ekki lengur að inn í landið flæði, í ómældu magni, skítugur gjaldeyrir erlends auðvalds í óþökk saklausa íslenska ofurtrúar náttúrusinna, sem eiga sér þann draum helstan að fá að deyja rómantískum hungurdauða við berja- eða fjallagrasatínslu frekar en að þurfa að engjast ævilangt við alsnægtaborð auðvaldsins.
Þá er nú betra að árnar renni ónýttar til sjávar en að þær nýtist erlendu auðvaldi til að murka lífið úr íslendingum með auknum þægindum og betri lífsgæðum.
![]() |
Kaupa verkfræðiþjónustu fyrir 11 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hættur á hverju horni
28.10.2012 | 07:27
Farið varlega í umferðinni elskurnar!
![]() |
Ökumaður sofnaði undir stýri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta er auðvitað alger "bilun"...
15.10.2012 | 12:21
...eða þannig! Þetta er magnað en að manni setur hroll. Þarf að segja meira!

![]() |
Felix Baumgartner rýfur hljóðmúrinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Tækjaátrúnaður
21.9.2012 | 08:44
Það er stöðugt vaxandi að fólk standi slefandi í löngum biðröðum við raftækjaverslanir, jafnvel dögum saman, eftir að koma höndum yfir það nýjasta í tæknibúnaði hverskonar og þar eru símar og annar samskiptabúnaður hvað eftirsóttast. Enginn þykir maður með mönnum nema skarta því nýjasta á því sviði.
3G símar, iPhone, spjaldtölvur, eða hvað þetta heitir allt saman, eru orðin að hreinum átrúnaði. Þessir nýju guðir samtímans hafa það þó fram yfir gömlu guðina, að þeir sýna þó viðbrögð við ákalli trúandans, þeir svara hið minnsta bænunum og reyna að uppfylla óskir notandans.
En gömlu guðirnir, Guð, Allah, Óðinn, Shiva, eða hvað þeir kappar heita nú allir saman, eru enn við sama heygarðshornið og þeir hafa verið síðan þeir voru fundnir upp í árdögum mannkyns og láta enn eins og þeir heyri hvorki né sjái þá sem á skeljunum liggja um heim allan og biðja um áheyrn.
Ætli gömlu guðirnir hreinlega ekki að verða undir í samkeppninni við nýja tækjaátrúnaðinn verða þeir að taka sig saman í andlitinu, appa sig upp eins og það er kallað, og taka upp beint samband við átrúendur sína.
Ef þeir gera það ekki er þeim ekki viðbjargandi frekar en mér, sem er enn að nota 10 ára gamlan síma, sem hægt er að hringja úr og svara hringingum, en fátt annað. Það er víst púkó!
![]() |
iPhone 5 æðið breiðist út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 09:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Átakanlegt átak
19.7.2012 | 23:41
Það er frábært þegar fólk tekur sér tak í eigin heilsu og líferni. En það eru samt ekki margir sem gera jafn stórhuga megrunaráætlun og stórstjarnan Jessica Simpson.
Þegar til slíkra stórverkefna er ráðist þarf auðvitað að ráða til starfa þjálfara, sérhæfðan í þannig stjörnuvandamálum. Það dugir auðvitað ekkert minna þegar menn hafa sett sér þau öfgafullu og ómennsku markmið að losa sig við hvorki meira né minna en heilt pund, og það á aðeins einni viku.
Það gera rúmlega 64 grömm á dag.
Það samsvarar einum góðum viðrekstri hjá meðalmanni og það án leiðsagnar sérstaks þjálfara!
![]() |
Ætlar að losna við hálft kíló á viku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt 20.7.2012 kl. 00:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gefum öðrum líf, eftir lífið
7.6.2012 | 19:45
Það er þjóðþrifamál, raunar hreint lífsspursmál, að þetta frumvarp, hvar ætlaðri neitun við líffæragjöf verði snúið í ætlað samþykki, verði samþykkt á Alþingi.
Það má ekki gerast öllu lengur, að þeir sem vilja að þeirra dauði verði öðrum til lífs með líffæragjöf verði hindraðir í því fyrir þá sök eina að þeir hafi trassað að skrá þann vilja sinn formlega.
Ég hef trú á, að þeim sem ekki hugnast slík lífsgjöf, eftir eigin dauða, muni ekki trassa þá skráningu.
![]() |
Þingið samþykki tillögu um líffæragjöf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)