Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009
Vilhjálmur þú ert flottur!
11.6.2009 | 16:07
Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta og lektor við Háskóla Íslands er sá maður Íslenskur sem ég hef borið hvað mesta virðingu fyrir síðustu misseri.
Hann hefur verið óþreytandi að vekja athygli á öllu mögulegu, sem betur hefði mátt fara í fjármálaumhverfinu síðustu árin.
Enginn hefur komist með tærnar þar sem Vilhjálmur hefur hælana á því sviði.
Takk Vilhjálmur.
![]() |
Óskar eftir rannsókn á lánum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hvað gerðist?
11.6.2009 | 14:51
Eitthvað hefur klikkað hjá Egyptum. Þeir slátruðu öllum svínum í landinu til varna gegn flensunni, en samt kemur hún óbermið að tarna.
Æ,ææ,æ.
![]() |
Nýtt flensutilfelli í Egyptalandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
„Já ráðherra“
11.6.2009 | 13:22
Eru embættismenn eitthvert sérstakt mannkyn? Það er yfirleitt talað um þennan flokk manna eins og þeir standi til hliðar og tilheyri ekki okkur hinum og séu nánast ósnertanlegir. Þeir sjálfir eru hvað best meðvitaðir um þennan skilning.
Þetta núverandi fyrirkomulag kann að vera skýringin á því hvers vegna margir embættismenn telja sig þess umkomna að koma fram við fólk fullir hroka, stærilætis og drýginda.
Ég er fullkomlega sammála Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra að núverandi fyrirkomulag um embættismenn sé óviðunandi, en er henni ósammála að endurskoða þurfi kerfið. Kerfið þarf að brjóta niður og endurbyggja frá grunni.

Af hverju ætti skipun til 5 ára að vera meginreglan. Er ekki eðlilegast að þessir menn (og konur) séu ekki skipaðir heldur ráðnir rétt eins og aðrir og sagt upp rétt eins og öðrum með venjulegum fyrirvara?
Hvað ráðuneytisstjóra snertir er núverandi kerfi heimskan ein. Það er ljóst að þær stöður eru hápólitískar. Eðlilegast er að hver ráðherra skipi sinn ráðuneytisstjóra við komu sína í ráðuneytið, en þurfi ekki að sitja uppi með jafnvel pólitískan andstæðing sinn sem verkstjóra. Mann sem ekki hefur minnsta snefil af áhuga á því sem ráðherrann er að gera.
Þegar því er svo haldið því fram að fagmennskan ein ráði störfum ráðuneytisstjóra og persónulegar skoðanir þeirra og aðrir mannlegir þættir hafi ekkert að segja, er það í besta falli barnaskapur og einfeldni.
![]() |
Vill endurskoða reglur um embættismenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laus til leigu eða kaups.
11.6.2009 | 11:26
Fjölmiðlafulltrúi Hilton fjölskyldunnar hefur látið þau boð út ganga að snótin Paris Hilton sé á laus til leigu eða kaups. Hún mun vera nýuppgerð og yfirfarin yst sem innst.
Áhugasamir vinsamlegast snúi sér til.....
Þá mun fjölskylda hennar fagna því að tekist hafi að rifta samningi hennar og fyrri notanda. Því hann hafi aðeins verið að notfæra sér þessa hlédrægu og saklausu sveita snót til að vekja athygli á sjálfum sér.
Já..... það sem fólki dettur í hug.
![]() |
Paris laus á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Scapaflóa nautið - „Der Stier von Scapa Flow“
10.6.2009 | 19:43
Við upphaf síðari heimsstyrjaldar hafði árás á bresku flotastöðina í á Orkneyjum lengi verið sérstakt athugunarefni hjá Flotastjórn Þjóðverja og Karl Dönitz þáverandi yfirmaður Þýska kafbátaflotans hafði mikinn áhuga á hugmyndinni.
Í fyrri heimstyrjöldinni í október 1918 hafði árás á Scapa Flow verið reynd á kafbátnum UB-116 undir stjórn Hans Joachim Emsmann. Sú tilraun mistókst þegar báturinn fórst með manni og mús við ásiglingu á tundurdufl. Bretum var kunnugt um þetta og því höfðu allar varnir í Scapa Flow verið styrktar og efldar til mikilla muna. M.a. hafði herteknum Þýskum herskipum verið sökkt þar eftir lok fyrra stríðs til að hindra siglingar um sundin.
Þetta var sérlegt áhugamál Dönitz, því tækist að lauma kafbát inn á flóann væri hægt að veita Bretum þungt högg, því það gæti tekið þá 3 til 4 ár að bæta úr skaðanum. Auk þess yrði það hefnd fyrir Þýsku skipin sem var sökkt þar. Dönitz vissi að svona aðgerð tækist ekki nema saman færi frábær kafbátsáhöfn, góð upplýsingaþjónusta ásamt talsverðu magni af heppni. Hann hafði unnið að upplýsingaöflun og öðrum undirbúningi í nokkurn tíma fyrir upphaf styrjaldarinnar. Það var svo sunnudaginn 1. október 1939, mánuði eftir upphaf styrjaldarinnar, sem Dönitz boðaði einn af efnilegustu kafbátaforingjum sínum, Günther Prien, skipherra á U-47, á sinn fund og bauð honum að taka að sér þetta erfiða verkefni. Prien tók með sér heim öll gögn um málið og lá yfir þeim næstu nótt. Um morguninn gekk hann á fund yfirmanns síns og tók að sér verkefnið.
U-47 var af annarri kynslóð kafbáta af gerðinni VII og kallaðist VIIB og var smíðaður hjá Krupp Germaniawerft í Kíl. Þar voru líka míðaðri bátar þeirra Otto Kretschmer U-99 og U-100 sem var bátur Joachim Schepke. Þeir voru líka í hópi svokallaðra Ása, afkastamestu kafbáta- foringja Þjóðverja.
Áhöfnin á U-47 sá að eitthvað sérstakt var í bígerð þegar venju- bundnar byrgðir bátsins voru teknar í land og báturinn búinn á ný til stuttrar ferðar. Það var svo 8. október sem U-47 sigldi frá Kíl út á Norðursjóinn. Þeir forðuðust eftir megni að komast í nálægð við nokkurt skip eða vekja eftirtekt á ferð bátsins á leið sinni norður Norðursjóinn.
Það var síðan rétt fyrir miðnætti 13. október sem þeir hófu siglinguna inn á Scapa flóann. Þá fyrst var áhöfn kafbátsins gerð grein fyrir því sem til stóð. Þeir urðu að sigla inn á liggjandanum, því þarna eru harðir straumar sem hefðu hæglega getað borið bátinn ofurliði. Þeir þræddu á hægri ferð á yfirborðinu milli skipsflaka sem hafði verið sökkt í þeim tilgangi að hefta siglingu sem þessa. Auk skipsflaka voru tundurduflagirðingar þvers og kruss. Um tíma voru þeir svo nálægt landi að þeir lentu í ljósgeisla bifreiðar sem ók eftir vegi á ströndinni. En heppnin var með þeim, þeir sluppu óséðir.
Það var svo kl. 00.27 sem Prien ritaði í skipsbókina Wir sind in Scapa Flow!!!. Þeir voru sloppnir í gegn. Þeir sáu tvö skip til norðurs og þokuðu sér í skotfæri og kl. 00.58 skutu þeir þrem tundurskeytum að þeim. Bátnum var samstundis snúið undan og skotið úr skuthlaupi bátsins, eftir þrjár mínútur kvað við ein sprenging. Þeim til mikillar undrunar urðu engin merkjanleg viðbrögð af hálfu Breta. Bátnum var því aftur snúið við til annarrar árásar. Kl. 01.22 var enn skotið þrem tundurskeytum og þrem mínútum síðar kváðu við öflugar sprengingar þegar skeytin sprungu á síðu 31.000 tonna orrustu skipsins HMS Royal Oak. Það sökk á 13 mínútum og með því fórust 834
menn, aðeins 375 komust af. Royal Oak var næst stærsta skipið sem þýskir kafbátar sökktu í stríðinu.

Þetta er sennilega djarfasta sendiför allra tíma, sem kafbátur hefur verið sendur í.
Günther Prien var eftir Scapaflóa árásina kallaður Scapaflóanautið, vegna táknsins sem var á turni U-47, en það var griðungur í vígahug. Þetta tákn varð síðar tákn alls 7. flotans. Prien var sæmdur eikarlaufum við járnkrossinn 1940.
U-47 fór í samtals 10 árásarferðir og sökkti 30 skipum, samtals 186,253 tonn og laskaði 8 skip uppá 63.000 tonn. Þetta skilaði Prien, þótt á stuttum tíma væri, í hóp 10 hæstu kafbátaása Þjóðverja og hann var sá eini þeirra tíu, sem ekki lifði styrjöldina af.
Günther Prien lét lífið þegar U-47 fórst með allri áhöfn 7. mars 1941 þegar hann gerði árás á skipalestina OB-293 vestur af Írlandi. Lengi var talið að tundurspillirinn HMS Wolverine hefði grandað U-47 en síðari upplýsingar hafa kollvarpað því. Hvað varð Günther Prien og áhöfn hans á U-47 að fjörtjóni er því ekki ljóst og verður kannski aldrei. Kafbátaflotinn var sá hluti hernaðarmaskínu Þjóðverja sem varð fyrir mesta manntjóninu, af 40.000 manns sem þjónuðu á kafbátunum í stríðinu, snéru 30.000 ekki heim.
Vísindi og fræði | Breytt 11.6.2009 kl. 15:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kirkjubændur?
10.6.2009 | 16:08
Kúabændur, fjárbændur, kjúklingabændur og grænmetisbændur eru kunnuglegar starfsstéttir en af kirkjubændum hef ég ekki heyrt fyrr.
Hvaða búskap stunda kirkjubændur? Rækta þeir kirkjur?
Hvar er hægt að kaupa þessa framleiðslu, fæst hún fersk eða fryst?
![]() |
Kirkjubónda gefinn kostur á andmælum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það þykir örlítið skrítið .......
10.6.2009 | 00:22
.....svo ekki sé meira sagt þegar karlmaður er sagður hafa gengið með og alið barn. En kannski verður það eðlilegasti hlutur í heimi þegar hinu fullkomna jafnræði milli kynjana verður náð.
![]() |
Karlmaður fæðir annað barn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 02:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er fullkomlega eðlileg skýring á því......
9.6.2009 | 21:08
....hvers vegna Gunnar bæjó sér ekki að lög hafi verið brotin eða að skýrslan sé áfellisdómur ......

![]() |
Gunnar segir lög ekki brotin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Var ekki Gunnar bæjó......
9.6.2009 | 16:42
....búinn að fá opinberlega aflausn sinna synda hjá nafna sínum í Krossinum? Getur nokkuð mannanna verk rofið þá gjörð?
![]() |
Hugsanleg brot á lögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fólk byrjað að greiða inná Icesave
8.6.2009 | 17:21
Þegar ég sá að fólk væri að kasta peningum í Alþingishúsið varð mér ljóst að það væri misskilningur að þar væru mótmælendur á ferðinni.
Þetta hljóta að vera skilvísir og æstir fylgjendur samkomulagsins, sem ekki geta beðið með að byrja að borga.
.
.
.
![]() |
Henda smápeningum í þinghúsið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)