Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009
„Saving Iceland“ vekur Friðriki Sophussyni samúð.
31.7.2009 | 21:32
Í yfirlýsingu frá skemmdarvörgunum segir að þau vilji líf sín, frelsi og náttúru til baka! Það hyggjast þau gera með því að skvetta málningu og líma hurðir fastar.
Ekki er að sjá af næturvinnu þess óþokkaliðs að þau hafi verið svipt lífi eða frelsi, enn sem komið er, en náttúrulaust er þetta pakk örugglega orðið í þrengstu merkingu þess orðs.
Að skvetta málningu er eitt en að líma hurðir fastar er klár glæpur. Hugsum okkur ef upp hefði komið eldur í húsinu og á örlagastundu hefði ekki verið hægt að flýja út um dyr hússins, því hurðir sátu fastar.
Þetta næturverk hefur ekki fært þetta ógæfulið nær yfirlýstum markmiðum sínum heldur aðeins fullnægt um tíma sjúklegri skemmdarfíkn þessa rumpulýðs.
Dyr límdar aftur og málningu slett | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Breytt 1.8.2009 kl. 00:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hvað veldur því að 22 þotur....
31.7.2009 | 12:25
... British Airways eru kyrrsettar, gallar eða lélegt viðhald? Hugsaði ég þegar ég las fyrirsögnina.
Nei, nei þegar fréttin hefur verið lesin er ljóst að flugfélagið er aðeins að leggja flugvélunum vegna samdráttar í rekstri.
Sögnin að kyrrsetja merkir að hindra eða banna brottför, leggja hald á. Flugvélar eru að öllu jöfnu ekki kyrrsettar nema eitthvað skorti á flughæfi þeirra og þá gert af yfirvöldum.
Með fyrirsögninni fer mbl.is með rangt mál og gerir úlfalda úr mýflugu.
Kyrrsetja 22 þotur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 12:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Halló, halló...
30.7.2009 | 22:22
...getum við átt von á því að gröf okkar og leiði verði fréttaefni ef ekki er farið þar fullkomlega að forminu?
Hafi það verið ósk þess sem undir merki þessu hvílir að svo væri um búið er það þá í okkar valdi að breyta þar um eða gera að því gys?
Vill sá er hér fer um með háðung láta á sama hátt um sitt leiði hafa?
Út yfir gröf og dauða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Og hvað........................
30.7.2009 | 20:50
..............................með það!
En.... hvað með þá sem greiða ekki neitt...... en eiga samt ekki til hnífs né skeiðar?
Hreiðar Már greiðir mest | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þjóðhátíðarstemming á þjóðhátíð!
30.7.2009 | 17:35
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kviðristubarn??????
30.7.2009 | 11:38
Óhuggulegur atburður, barn skorið burt og rænt úr móðurkviði og mbl.is kallar barnið kviðristubarn.....! Er barnið morðingi, skar það sig út sjálft?
Kviðristukobbi fékk nafngift sína af því hann drap gleðikonur og risti upp, en ekki af því að hafa sjálfur verið ristur úr móðurkviði.
.
.
Kviðristubarn fundið í Bandaríkjunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Breytt s.d. kl. 14:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Já, nei, já, nei, já ......!
30.7.2009 | 09:59
Nú munu ryðjast fram völlinn með látum ofurbloggarar og andstæðingar Evrópusambandsins og lýsa þessa könnum ómarktakandi, illa unna, leiðandi, falsaða og þeir markleysingjar sem hana gerðu o.s.f.v. Fylgjendur aðildar munu lofa könnunina á sama hátt með öfugum formerkjum.
Svo kemur önnur könnun með annarri niðurstöðu og þá snýst allur bloggheimurinn um 180°.
Skoðanakannanir um málið hafa enga þýðingu hvaða niðurstöðu þær kunna að sýna, með eða móti. Allt eins mætti plokka Baldursbrá til að kanna stöðuna .
Það verður stóra skoðanakönnunin, þjóðaratkvæðagreiðslan um inngöngu að loknum aðildarviðræðum sem gildir. En eitt er víst að þá verða ekki allir sáttir hvernig sem fer.
Meirihluti styður viðræður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Rangur misskilningur?
30.7.2009 | 09:28
Hefur því verið haldið fram hér á landi að lífrænt ræktuð matvæli væru næringarríkari en við hefðbundna ræktun? Hvort það hafi verið gert í Bretlandi þekki ég ekki.
Helstu rökin fyrir lífrænni ræktun er að hún er grænni en önnur ræktun. Aðal ávinningurinn er umhverfislegur, ekki er notaður tilbúinn áburður eða eiturefni við ræktunina, sem situr eftir í jarðveginum eða skilar sér út í ár og vötn með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Hvað mig varðar þá finnst mér grænmeti og önnur matvæli sem státa af yfirlýsingu um að yfir þau hafi engum eiturefnum hafi verið spreðað vera til muna álitlegri valkostur en vara sem gerir það ekki.
Segja lífrænt ekki hollara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sending SMS samhliða akstri er dauðans alvara....
29.7.2009 | 23:37
...það er ekki spurning, en hvernig á framfylgja viðkomandi banni við SMS endingum við akstur?
Það er minna en gagnslaust að banna eitthvað með lögum sem engin vegur er að framfylgja.
.
Vill bann við sms undir stýri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Athyglisverð grein JVJ
29.7.2009 | 21:29
Taldi rétt að vekja athygli á þessari grein JVJ um nafna hans Magnússon.
Er nema von að Jóni Val Jenssyni sé brugðið og verulega misboðið að aðrir bloggarar skuli taka upp á því að ritskoða bloggin sín og henda út athugasemdum, samrýmist þær ekki fyrirframgefnum rétttrúnaði.
Hvernig var nú máltækið? Hver hitti nú aftur ömmu sína?
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 23:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)