Bloggfærslur mánaðarins, september 2013
Vel látinn
15.9.2013 | 13:47
Elsti maður heims er merkilegt fyrirbrigði. Hann er alltaf að deyja! Á nokkra vikna eða mánaða fresti koma nýjar fréttir af láti hans.
Orðasambandið að vera vel látinn er orðið einkar viðeigandi um þennan merkilega mann.
![]() |
Elsti maður heims látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Karpað um keisarans skegg
14.9.2013 | 11:16
Afhendi Sýrlendingar efnavopn sín, verður þá Bashar al-Assad einræðis- skúrkur Sýrlands aftur fínn karl og virtur meðal manna? Getur hann þá haldið áfram að drepa þegna sína, bara hann geri það ekki með efnavopnum?
Er þá allt unnið?
Verður ástandið í Sýrlandi og þjáningar íbúanna áfram aukaatriði eins og virðist hafa verið raunin meðan alþjóðasamfélagið hefur velt sér upp úr hugsanlegri efnavopnaeign Assads og hvernig hagsmunum stórveldanna sé best fyrir komið.
![]() |
Áætlun um Sýrland samþykkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 11:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Flugvöllurinn má missa sig, verði Landspítalinn fluttur út á land
13.9.2013 | 19:12
Það er einföld lausn á þessu flugvallarvandamáli, sem allir ættu að geta sætt sig við. Byggjum nýja hátækni Landspítalann í nágrenni flugvallarins á Akureyri. Akureyringar skynja mikilvægi flugvallarins of vel til að þeim detti nokkurn tíma í hug sú fásinna að bola honum burt úr bænum.
Þá fá þeir sínu framgengt þöngulhausarnir sem vilja Reykjavíkurflugvöll burt og halda því fram fullum fetum að engu skipti um öryggi sjúklinga í sjúkraflugi að innanlandsflugið færist úr Vatnsmýrinni til Keflavíkur.
![]() |
72% vilja flugvöll í Vatnsmýrinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Sannkallaður hvalreki
8.9.2013 | 09:45
Flott hjá heimamönnum að nýta sér þennan hvalreka í stað þess að urða þetta dýrindis kjöt, engum til gagns.
Sumir hefðu eflaust frekar viljað jarðsetja þessa ættingja sína með viðhöfn og sálmasöng í stað þess að vita þá hljóta þau hræðilegu örlög að enda í mannskjafti.
![]() |
Tugir hvala drápust í Rifi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 10:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ógnvænleg tíðindi
1.9.2013 | 15:47
Í ljósi þess að Vigdís Hauksdóttir er sennilega næst í ráðherra goggunarröð Framsóknar, þá er þessi tilkynning forsætisráðherra hrein og klár hamfaratilkynning og sönnun þess að lengi getur vont versnað.
Það er óvíst að Geir H. Haarde hefði talið það duga að biðja landinu Guðs blessunar með slíka vá fyrir dyrum.
![]() |
Nýr ráðherra kynntur fljótlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |