Úrhrök og útvaldir.

Ísrael hefur aldrei í einlægni ætlað að semja frið við Palestínumenn. Allir tilburðir þeirra í þá átt hafa verið sýndarmennskan ein til að kaupa tíma.

Tíma sem þeir hafa notað markvisst og skipulega til að leggja undir sig hægt og bítandi lönd Palestínumanna með nýjum og nýjum landnemabyggðum.

Palestínumenn bera enga ábyrgð á helförinni og viðbjóðslegum glæpum Nasista gegn Gyðingum. En samt eru þeim einum ætlað að bera fórnarkostnaðinn.

Hvenær ætlar heimsbyggðin að taka sig saman í andlitinu hætta þessari afneitun gegn Ísrael og segja stopp, hingað og ekki lengra?


mbl.is „Dagur reiði" í Jerúsalem
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óþokkar eða snillingar?

Þetta tiltæki sjónvarpsstöðvarinnar er líklega alveg á grensunni. Allavega í því ljósi sem við sjáum það núna, þegar það er nýskeð.

wp_t1_800x600Þetta „óþokkabragð“  á sér hliðstæðu í sögunni þótt tilgangurinn hafi verið annar.  Í október 1938 var flutt í útvarpi í Bandaríkjunum leikrit sem byggt var á sögu H.G.Wells  „Innrásin frá Mars“.

Leikritið var flutt í formi frétta af „innrásinni“, höfundur þess og leikstjóri var Orson Welles. Mikil skelfing greip um sig því hlustendur héldu að um raunverulegan fréttaflutning væri að ræða af raunverulegri innrás, rétt eins og í Georgíu núna.

Höfundar gabbfréttarinnar í Georgíu eru fordæmdir fyrir vikið en engum dettur í hug að segja að Orson Welles hafi verið neitt annað er tær snillingur.


mbl.is Vestrænir sendimenn gagnrýna gabbfrétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Syndugur satans lýður

Hvað merkir það að svart skattkerfi hafi verið inni í bönkunum? Merkir það að bankarnir hafi skipulega tekið þátt í skattsvikum með völdum viðskiptavinum?

Hverjir bera ábyrgð á því, eru það ekki stjórnendur bankanna eða verður syndin skrifuð á kennitölu bankans eins og gert var í samráðsglæp olíufélaganna?

Er ekki kominn tími til að sækja bankastjórnendurna og hengja til þerris? Er það ekki vinnureglan þegar  smákrimmar eiga  í hlut, að þeir eru sóttir og að þeim saumað?

   
mbl.is Hundraða milljarða skattsvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sómakær ráðherrann...

... hefur litið undan meðan hann nældi orðunni á brjóst, fyrirgefið í brjóst leikkonunnar.


mbl.is Stakk leikkonu með orðuprjóni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skýrslan kemur, skýrslan kemur!

Mikil spenna hefur byggst upp varðandi væntanlega skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, svo ekki sé talað um þær væntingar sem til hennar eru gerðar.

smábókMikil leynd er viðhöfð og öryggisgæsla öll hin strangasta við prentun skýrslunnar í Odda svo helst líkist spennuatriði í Bond mynd.

Starfsfólk var sent heim og til verksins fengnir sérvaldir bleksprautu- prentarar. Að starfi loknu verður þeim eytt. Engin vitni, takk.

Heyrst hefur að yfirstrikunar sérfræðingur frá CIA hafi verið fenginn til að hafa umsjón með lokafrágangi.

Meðfylgjandi mynd var tekin af prófarkalestri skýrslunnar og eins og sjá má er þetta doðrantur mikil.

 
mbl.is Fræðimenn verða á skýrsluvakt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ungur unglingur.

Það er von að Svíar hafi áhyggjur af þessari þróun.  Því ekki eru glæsilegar fréttirnar sem reglulega berast um skotárásir í Bandarískum skólum,  þótt  í Svíþjóð séu ólíkt heilbrigðari viðhorf til skotvopna en í Mekka byssunnar, Bandaríkjunum.

Vonandi er þetta einhver stundar bóla. En ein málsgrein í fréttinni var öðrum áhugaverðari:

„Ungur fjórtán ára piltur mætti með dínamít í skóla í Ramsele. Lögreglan gerði það upptækt og ók honum heim“.

Ef þetta hefði verið aldraður fjórtán ára piltur hefði honum örugglega verið ekið í grjótið. Það getur sannarlega  borgað sig að vera ungur.


mbl.is Nemendur hóta morðum í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mulningur #14

Þegar dóttursonur minn og nafni var á 4. ári dundaði frændi hans sér við að kenna honum ný orð, sem sum hver áttu ekki beinlínis heima í orðaforða barns á þessum aldri. Það var eftir eina slíka „kennslustund“ sem sá stutti kemur til mín og...

Slakaðu aðeins á Steingrímur.

Hvernig væri að bíða rólegur nokkra daga Steingrímur, í stað þess að liggja stöðugt á bjöllunni í Downing street? Gæti ekki verið að þeir færu að ókyrrast og könnuðu málið ef alger þögn ríkti á Íslandi í tvær þrjár vikur? Er það góð taktík að liggja...

Fær ekki verkalýðurinn þá foringja sem hann á skilið?

Mér þykir það standa Gylfa Arnbjörnssyni nær að standa sjálfur með sínu fólki í verki áður en hann gerir þá kröfu á aðra. Hvað ætlar Íslensk alþýða að reyna það lengi á sjálfri sér að hagfræðingar og annað langskólalið skilar aldrei átakamiklu og...

Fuðraði upp hún Búkolla...

...en ekki kom stóra nautið að pissa á bálið.

Steingeldur spyrill

Gettu betur var skemmtilegt og áhugavert sjónvarpsefni. Hreint magnað hefur verið að horfa á unga fólkið fara á kostum af þekkingu og færni. En núverandi spyrli, Evu Maríu Jónsdóttur, hefur tekist að eyðileggja þáttinn gersamlega með steingeldri framkomu...

Er syndin ekki lævís og lipur?

Ef Vatikanið vottar flekklausa æru Páfa er ekki minnsta ástæða til að efast um að satt sé og rétt. Eru forkólfar Kaþólsku kirkjunnar ekki einmitt þekktir fyrir að hafa sannleikann og ekkert nema sannleikann að leiðarljósi ef upp hefur komið grunur um...

Mulningur #13

Kunningi minn vann um tíma mjög mikið og var gangandi auglýsing á stress- og þreytueinkennum. Þegar honum var boðið að taka þátt í námskeiði í slökun og streitulosun var hann fljótur að þiggja það. En hann komst fljótt að því að námskeiðið var ekki rétta...

Er skrattinn sestur upp í páfagarði?

Ekki segja mér að hann hafi farið þangað til að hitta ömmu sína.

Ólafur fær prik.

Hörð og réttmæt gagnrýni Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands á Norðurlöndin fyrir neðanbeltis afgreiðslu þeirra á lánaloforðum til Íslands, virðist hafa hitt í mark og skilað árangri. Noregur hefur dregið nokkuð í land frá fyrri afstöðu, en Svíar...

Pink Floyd - Mother

(Margmiðlunarefni)

"Dónalegar" teikningar.

(Margmiðlunarefni)

Ögmundur vildi út, því er best að hann sé úti.

Hvaða bull er þetta að Ögmundur komi aftur inn í ríkisstjórnina? Til hvers, svo hann geti hoppað af vagninum aftur við fyrsta mótlæti og endurtekið píslarvottar leikritið sem margir virðast hafa kolfallið fyrir, á æði misjöfnum forsendum. Ef líf...

Æ,æ, misstu þeir alveg af þessu greyin!

Starfsmenn bresku leyniþjónustunnar, MI5, hafa þá verið einu Jarðarbúarnir sem ekki vissu að Bandaríkjamenn pyntuðu fanga í Guantanamo, hægri, vinstri!! Vart verður á milli séð hvort þessi Buller-bredda er fýldari yfir því að hafa verið höfð útundan frá...

Á hvaða leið er SÁÁ?

Í frétt á visi.is er greint frá mánaðarlegum lista SÁÁ um verð á fíkniefnum. Ég hef aldrei skilið tilgang SÁÁ með þessum verðlista birtingum. Í nýjasta verðkynningar- bæklingi SÁÁ er frá því greint að verð- lækkun hafi orðið á kókaíni og kannabisefnum!...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.